Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2014, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 03.12.2014, Qupperneq 28
FÓLK|FERÐIR V ið köllum þetta jóla-annir. Laufáshópurinn svokallaði bregður sér í hlutverk fjölskyldu sem undir- býr komu jólanna, eins og gert var í kringum árið 1900,“ segir segir Valdís Viðarsdóttir, um- sjónarkona og leiðsögumaður í Laufási í Eyjafirði, en næst- komandi sunnudag lifnar gamli bærinn við. Hægt verður að fylgjast með „heimilisfólkinu“ klippa út og búa til jólaskraut eins og gert var í gamla daga, skera út laufabrauð og fá að bragða á hangikjöti í hlóðaeldhúsinu. Þá verða bakaðar smákökur en smákökubakstur ruddi sér til rúms hér á landi snemma á 20. öld þegar bakarofnar komu inn á íslensk heimili. „Í Laufási eru tvö eldhús. Gamla hlóðaeldhúsið fékk annað hlutverk þegar nýtt eld- hús var byggt árið 1866 og ný baðstofa. Í hlóðaeldhúsinu verður reykta kjötið en kjötið var hengt upp í rjáfur og reykt meðan eldað var. Í nýja eld- húsinu verða bakaðar smákök- ur og brenndar kaffibaunir en þær komu hráar í sekkjum og þurfti fólk sjálft að brenna þær og mala. Í baðstofunni mun heimilisfólkið sitja á rúmum og skera út laufabrauðið. Hver fékk kannski bara eina köku á jólunum og því var vandað til verka. Þá bregður sr. Bolli Pétur Bollason sér í gamla prestshlutverkið og sest á skrifstofuna við skriftir, þjófótti jólasveinninn Mókollur verður á ferðinni og stelur fyrir framan heimilisfólkið, bæði handa sér og handa krökk- unum, spilað verður púkk og hægt að fá heitt súkkulaði og smákökur í prestssetrinu. Við búumst við notalegri stemm- ingu,“ segir Valdís en dagskráin hefst á hugvekju í Laufáskirkju klukkan 13.30 á sunnudaginn. ■ heida@365.is JÓLAANNIR Í LAUFÁSI JÓLASTEMMING Heimilislífið í gamla bænum í Laufási lifnar við um helgina þegar Laufáshópurinn sýnir hvernig undirbúningi jólanna var háttað um 1900. LAUFABRAUÐ Laufabrauðið verður fagurlega útskorið á sunnudaginn og hægt verður að gæða sér á smákökum og hangikjöti. MYNDIR/LAUFÁS JÓLAMATUR Hangikjötið var hengt upp í rjáfur í hlóðaeldhúsinu. GAMLI BÆRINN Dagskráin hefst klukkan 13.30 á sunnudaginn með hugvekju í kirkjunni. TÓLGARKERTI Kertasteypa var eitt af þeim verkum sem unnin voru á aðventunni. Parísartízkan býður upp á vandaðan tísku- og skófatnað frá Þýskalandi og Ítalíu í stærðum 36-50. Áhersla er lögð á gæði og góða persónulega þjónustu. Skipholti 29b • S. 551 0770 Parísartízkan vertu vinur okkar á facebook VETRARDAGAR 20% afsláttur af öllum fatnaði Erum búin að kveikja á jólaljósunum og erum með heitt á könnunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.