Fréttablaðið - 03.12.2014, Side 26

Fréttablaðið - 03.12.2014, Side 26
FÓLK|FERÐIR Sagnaálfar og gaulálfar vöknuðu til lífsins á fyrsta sunnudegi í aðventu þegar þeir röltu úr Klausturhæð í Fljótsdal inn í Gunn- arshús á Skriðuklaustri þar sem þeir sögðu heimamönnum frá og sungu um Grýlu og hyski hennar. Álfarnir hafa haft þennan háttinn á í fimmtán ár og eiga þannig góða dagsstund með fjöl- skyldum og börnum á þessum slóðum. Gleðin breyttist þó þegar Grýla sjálf og Leppalúði maður hennar birtust óvænt, létu ófriðlega og reyndu að hremma óþekka krakka ofan í poka sína. Enn hefur það ekki tekist þótt þau nái stundum einum og einum álfi að sögn Skúla Björns Gunnarssonar, for- stöðumanns Gunnarsstofnunar, sem fylgst hefur með þessum skrautlegu verum undanfarin ár. „Þetta hefur verið árviss viðburður hjá okkur síðustu 15 ár og markar að vissu leyti upphaf að- ventunnar hér á þessum slóðum. Þegar Grýla og Leppalúði höfðu loks yfirgefið húsakynnin var slegið upp jólaköku- hlaðborði hér á Klausturkaffi.” Í Grýlukvæði Stefáns Ólafssonar frá 17. öld staðsetur hann Grýlu og Leppalúða í Fljótsdalnum og segir frá því að þau eigi sér bústað í Brandsöxl og Urðarhrauni sem eru efst á háls- inum sem rís handan við Fljótsdalinn frá Skriðuklaustri. „Við vitum svo sem ekkert meira um þessa bústaði þeirra nema að þar búa þau með hyski sínu enn þann dag í dag og koma síðan til byggða þegar líður að jólum. Og líkt og á 17. öldinni reikar Grýla um sveitina í leit að matarbita.“ Sagnaálfarnir og gaulálfarnir eru álíka gamlir og Grýla þó að ekki hafi Stefán ort um þá. „En þeir búa hérna í Klausturhæðinni og muna það þegar munkar sungu messur í klaustrinu sem stóð hér á 16. öld. Þeir kunna því frá ýmsu að segja um Grýlu og það lið allt. Síðan kunna gaulálfarnir sérstaklega mikið af söngvum um þennan óþjóða- lýð.“ Skúli segir dagskrá þessa dags nokk- uð hefðbundna, þó með þeirri undan- tekningu að aldrei er vitað nákvæmlega hverjir af álfunum skila sér né hvort gömlu hjónin koma. „Heimamenn hafa alltaf fjölmennt á þessum degi. Stund- um troðfyllist húsið og þá verður nú oft mikill hávaði og læti þegar Grýla og Leppalúði birtast og leita að óþekkum börnum í hópnum. Þrátt fyrir það er þetta orðinn fastur liður í jólahaldinu hjá mörgum fjölskyldum á Austur- landi.“ ■ starri@365.is GRÝLA VILL FÁ KRAKKA Í POKANN GRÝLUGLEÐI Á Klausturhæð í Fljótsdal búa sagnaálfar og gaulálfar. Þeir vöknuðu til lífsins fyrsta sunnudag í aðventu og skemmtu íbúum með söng og sögum um Grýlu, Leppalúða og hyski þeirra. Leikar æstust þegar Grýla og maður hennar mættu í hús og reyndu að hremma óþekka krakka í poka sína. SKÚLI BJÖRN GUNN- ARSSON Forstöðu- maður Gunnarsstofn- unar. HRÆÐA ÁLFA Grýla og Leppalúði láta gjarnan ófriðlega. Hér eru gömlu hjónin að hrella gaulálfa. LIFANDI LEIKUR Sagnaálfurinn Dvalinn lýsir hér Grýlu fyrir spenntum áhorf- endum í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri. SUNGIÐ OG TRALLAÐ Sagnaálfar og gaulálfar syngja lög um Grýlu. HYSKI TIL BYGGÐA „Við vitum svo sem ekkert meira um þessa bústaði þeirra nema að þar búa þau með hyski sínu enn þann dag í dag og koma síðan til byggða þegar líður að jólum. Og líkt og á 17. öldinni reikar Grýla um sveitina í leit að matarbita.“ Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS For Women gegn sveppasýkingu,bakteríusýkingu og þvagfærasýkingu Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.