Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 27
NÝTT Á ÍSLANDI!
Að hætti Eyþórs
matgæðingur Hagkaups
og yfirkokkur á Gló
MALTSMÁGRÍSAFRAMPARTUR Í REYKTRI PAPRIKU, MEÐ SÆTUM KARTÖFLUM, RÓSAKÁLI OG PERUM
1 stk smágrísaframpartur
2 msk reykt paprika
3 msk salt
1 msk grófmalaður pipar
1 msk oregano
2 msk laukduft
1 tsk chiliduft
4 msk olífuolía
Blandið öllum kryddunum saman í skál. Setjið
frampartinn í ofnskúffu og hellið ólífuolíunni
yfir hann og nuddið hennai í. Hjúpið hann
með kryddblöndunni allan hringinn. Setjið inn
í ísskáp og látið standa þar í 24 tíma. Setjið
inn í 160°C heitan ofninn í 3 tíma takið hann
út úr ofninum og látið hann standa í 10 mín
með álpappír yfir.
Bakaðar sætar kartöflur,
rósakál og perur.
1 stk stór sæt kartafla
1 tsk kanill
250 gr rósakál
½ poki spínat
1 stk pera
2 msk sýrður rjómi
Safi úr 1 sítrónu
Sjávarsalt
Svartur pipar úr kvörn
Skrælið og skerið sætu kartöfluna í
kubba, kryddið með saltinu, piparnum
og kanilnum og bakið við 160°C hita í
60 mín. Skerið rósakálið í fernt og
setjið inn í 160°C heitan ofninn í
45 mín. Skerið peruna í kubba og
setjið í skál með spínatinu og sýrða
rjómanum bætið sætu kartöflunum
og rósakálinu út í og blandið öllu
vel saman. Smakkið til með saltinu,
piparnum og sítrónusafanum.
HAGKAUP
MALTGRÍS
HAGKAUP
MÆ
LIR MEÐ
HAGKAUP
MALTGRÍS
HAGKAUP
MÆ
LIR MEÐ
HAGKAUP
MALTGRÍS
HAGKAUP
MÆ
LIR MEÐ
Hagkaups maltgrís er unggrís sem er
sérvalinn og séralinn fyrir Hagkaup
af svínabóndanum á Vallá Kjalarnesi.
Grísinn er fóðraður á soðnu maltbyggi,
humlum og öðru úrvals góðgæti frá
bruggmeisturum Ölgerðarinnar. Grísinn
er í góðu yfirlæti við kjöraðstæður sem
gerir kjötið einstaklega meyrt
og bragðgott.
Verði þér að góðu!
Maltsmágrísalæri/smágrísalæri
1 stk maltgrísalæri
5 msk ólífuolía
3 msk sjávarsalt
2 msk grófmalaður svartur pipar
3 msk gróft sinnep
Skerið í puruna á lærinu og veltið því svo
upp úr ólífuolíunni og kryddið það allan
hringinn með saltinu og piparnum. Setjið
inn í 160°C heitan ofninn í 2,5 tíma. Takið
lærið út og smyrjið sinnepinu yfir það og
eldið í 20 mín í viðbót.
Steikt blómkál, sykurbaunir
og appelsínur
1 haus blómkál
1 box sykurbaunir
ólífuolía
2 stk appelsína
1 tsk hvítauksduft
1 tsk chili flögur
1 msk grænmetisþurrkraftur
40 gr smjör
1 tsk sjávarsalt
1 tsk svartur pipar úr kvörn
ólífuolía til steikingar
Skerið blómkálið niður í litla bita og
baunirnar fínt niður. Hitið pönnu með
ólífuolíu á og setjið blómkálið út á og
steikið það í 5 mín. Bætið baununum,
kryddunum, grænmetiskraftinum
og smjörinu út á pönnuna og eldið
saman í 8 mín. Skerið börkinn utan
af appelsínunni og skerið hana svo í
litla bita og setjið hana út á pönnuna.
Smakkið allt saman til með saltinu og
piparnum og hellið af pönnunni.
HÆGELDAÐ MALTSMÁGRÍSALÆRI MEÐ GRÓFKORNA SINNEPSHJÚP,
STEIKTU BLÓMKÁLI, SYKURBAUNUM OG APPELSÍNUM, AÐ HÆTTI EYÞÓRS
MALTSMÁRGRÍSAHRYGGUR
MALTSMÁRGRÍSALÆRI
MALTSMÁRGRÍSAFRAMPARTUR