Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 4
Kröfu Sigurðar hafnað
n Fær þó viðurkennda 73 milljóna króna kröfu í Hæstarétti
H
æstiréttur hafnaði á fimmtu
dag kröfu Sigurðar Einarssonar,
fyrrverandi stjórnarformanns
Kaupþings, um að 138 milljóna
króna krafa hans í þrotabú bankans
yrði viðurkennd. Hæstiréttur staðfesti
þar með dóm Héraðsdóms Reykja
víkur frá 16. október.
Sigurður hafði lýst kröfu við slit
Kaupþings meðal annars vegna van
goldinna launa og annarra launa
tengdra greiðslna. Slitastjórn Kaup
þings samþykkti kröfu Sigurðar aðeins
að hluta og var ágreiningi vísað til
úrlausnar héraðsdóms samkvæmt
ákvæði laga um gjaldþrotaskipti.
Deilan fyrir dómstólum snérist um
hvort Sigurður ætti rétt á biðlaunum í
12 mánuði eftir starfslok auk lífeyris
greiðslna samkvæmt ráðningarsamn
ingi og hvort Kaupþing hefði ábyrgst
að greiða skattaskuld Sigurðar í Bret
landi.
Hæstiréttur telur að 6 mánaða
uppsagnarfrestur sér sanngjarn í ljósi
þeirra uppsagnarfresta sem tíðkist al
mennt á vinnumarkaði svo og með til
liti til stöðu og starfskjara Sigurðar að
öðru leyti. Er einnig talið að Sigurður
gæti ekki átt aðild að kröfu um van
goldin iðgjöld til lífeyrissjóða held
ur væri það viðkomandi lífeyrissjóður
sem ætti slíka kröfu gegn Kaupþingi
og var kröfu Sigurðar um greiðslu líf
eyrisiðgjalda því hafnað. Að endingu
var talið að Sigurði hefði ekki tek
ist að sanna skyldu Kaupþings til að
taka þátt í skattgreiðslum stjórnar
mannsins fyrrverandi í Bretlandi og
þeirri kröfu því einnig hafnað. Stað
festi Hæstiréttur því þá ákvörðun
slitastjórnar Kaupþings að viðurkenna
kröfu Sigurðar aðeins að hluta.
Sú krafa varðar þó enga skiptimynt
því þar er um að ræða rúmar 73 millj
ónir króna sem slitastjórn viðurkennir
sem almenna kröfu í búið.
Sigurður þarf að greiða Kaupþingi
300 þúsund krónur í kærumálskostn
að. n mikael@dv.is
Borgin vill kaupa Perluna:
Óvissa með
kaupverðið
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum á fimmtudag að borgin
gangi til samninga við Orkuveitu
Reykjavíkur um kaup á Perlunni í
Öskjuhlíð. Þá mun borgin ganga
til samninga við íslenska ríkið
um að það leigi húsið í allt að
15 ár og komi þar upp náttúru
minjasýningu. Takist samningar
um kaupin og leigu ríkisins þarf
Reykjavíkurborg að verja 100
milljónum króna í breytingar á
Perlunni svo hægt verði að setja
upp sýninguna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
borgarráði lögðu fram bókun við
afgreiðslu málsins þar sem þetta
er gagnrýnt. „Borgar fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað
gagnrýnt hvernig staðið hefur
verið að söluferli vegna Perlunn
ar. Tilraun til að selja Perluna
á almennum markaði á síðasta
ári mistókst algjörlega vegna
óskýrra forsendna og undirbún
ings. Nú er ákveðið stefna að
því að Reykjavíkurborg kaupi
Perluna og aftur er undirbúning
ur án skýrra forsenda, þar sem
hvorki er búið að skýra aðkomu
ríkisins að ferlinu né liggur fyrir
hvaða markmið Reykjavíkurborg
hyggst setja sér varðandi kaup
verð og rekstur,“ segir í bókun
inni.
Í tilkynningu frá meirihlut
anum í borginni segir að með
al framkvæmda sem ráðast þarf
í sé að byggja milligólf í hluta
Perlunnar og að opnað verði bet
ur inn í hitaveitutankinn þar sem
Sögusýningin var til húsa áður.
„Í greinargerð með tillögunni
kemur fram að með kaupunum
verði almenningi áfram tryggður
aðgangur að Perlunni og um
hverfi hennar, þó með þeim
takmörkunum að selt verður
inn á náttúruminjasýninguna.
Með kaupunum gefst Reykja
víkurborg einstakt tækifæri til
þess að stjórna uppbyggingu og
nýtingu svæðisins í Öskjuhlíð
þar sem Perlan stendur. Nú er í
gangi skipulagssamkeppni um
Öskjuhlíðina á vegum skipulags
ráðs Reykjavíkurborgar. Heimild
borgarráðs er bundin við það að
viðunandi leigusamningur um
sýningu Náttúruminjasafns Ís
lands náist við ríkið.“
Hafnað Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, fær ekki rúm-
lega 138 milljóna kröfu sína samþykkta.
S
verrir Þór Gunnarsson, gjarn
an kallaður Sveddi tönn, hef
ur samkvæmt heimildum
DV verið dæmdur til 22 ára
fangelsisvistar í Brasilíu fyrir
skipulagningu á smygli á um 50.000 e
töflum til landsins. Í dómnum sem féll
í undirrétti í vikunni kemur fram að
verði dómnum áfrýjað til Hæstarétt
ar þá sé mælst til þess að Sverrir muni
ekki fá að ganga laus á meðan beðið sé
dóms.
Hann á að baki níu ára óafplánað
an fangelsisdóm á Spáni fyrir fíkni
efnasmygl en hann lagði á flótta eftir
að dómurinn féll og síðan hefur hann
verið eftirlýstur af spænskum yfirvöld
um.
Þess má geta að á síðasta ári lögðu
brasilísk tollyfirvöld samtals hald á
tæplega 200.000 epillur við landa
mæri Brasilíu og á flugvöllum þar í
landi. Efnin sem voru tekin í umrætt
skipti eru því um fjórðungur alls þess
sem hald var lagt á í fyrra. Þetta er jafn
framt mesta magn af epillum sem
tollyfirvöld hafa lagt hald á í einu.
Burðardýrið sagði til Sverris
Sverrir var handtekinn á kaffihúsi í Rio
de Janeiro þann 2. júlí síðastliðinn.
Þegar hann var handtekinn höfðu
fíkniefnin verið gerð upptæk en þau
voru í farangri Renötu Araujo Neves,
26 ára brasilískrar konu. Renata flaug
til Rio de Janeiro frá Lissabon í Portú
gal og fundust efnin við hefðbundið
eftirlit. Í farangri hennar voru um 46
þúsund etöflur og benti hún lögreglu
á tvo vitorðsmenn, Sverri og kærasta
sinn, Marco Dias Bittencourt e Silva.
Hún sagði við yfirheyrslu að þeir ætl
uðu að hjálpa henni við að selja eitur
lyfin og hugðist hún hitta mennina tvo
á áðurnefndu kaffihúsi.
Lögreglan framkvæmdi svo hús
leit í íbúð Marcos og fann þar nokkuð
magn af sýru ásamt marijúana. Sverr
ir hafði komið með sama flugi og
Renata en lögreglan beitti sérstakri
greiningaraðferð sem sýnir hversu oft
hver farþegi flýgur og hvert. Þetta er
gert til þess að koma auga á grunsam
legt ferðamynstur sem getur gefið til
kynna smygl. Sverrir Þór gaf upp falskt
nafn við komuna til Rio de Janeiro
og þóttist vera 43 ára Breiðhyltingur.
Þegar nafnið var sent íslenskum yfir
völdum komust þau fljótlega að því að
sá maður var alls ekki í haldi lögreglu
þar ytra. Það var ekki fyrr en brasil
ískir fjölmiðlar birtu myndir af hin
um grunuðu að borin voru kennsl á
Sverri.
Höfuðpaur í stóra
fíkniefnamálinu
Sverrir er fæddur árið 1972 en
brotaferill hans hófst þegar hann var
sextán ára. Næstu árin á eftir hafði
lögregla ítrekað afskipti af honum
vegna umferðar og fíkniefnabrota.
Smám saman urðu afbrot Sverris
skipulagðari og umsvifameiri og á
árunum 1991–1995 hlaut hann fjóra
dóma fyrir þjófnað, fjársvik og fíkni
efnabrot. Í undirheimum Reykjavík
ur var Sverrir ævinlega þekktur undir
viðurnefninu Sveddi tönn vegna tann
lýtis.
Þekktastur er Sverrir líklega fyrir
að vera einn höfuðpauranna í Stóra
fíkniefnamálinu svokallaða en dóm
ur í því máli féll árið 2000. Þar hlaut
hann næstþyngsta dóminn í málinu
eða sjö og hálfs árs óskilorðsbund
inn fangelsisdóm. Þar að auki voru 20
milljónir króna gerðar upptækar hjá
honum. Í dómnum var honum gef
ið að sök að hafa móttekið 105 kíló af
kannabisefnum yfir nokkurra mánaða
tímabil. Stóra fíkniefnamálið teygði
anga sína til Danmerkur, Hollands og
Bandaríkjanna og varðaði innflutning
á gífurlegu magni kannabisefna, am
fetamíns, kókaíns og etaflna. Að auki
voru gerðar upptækar haglabyssur,
handjárn, loftrifflar og stuðbyssur.
Í kjölfar málsins var einnig dæmt í
fyrsta skipti fyrir peningaþvætti fyrir
íslenskum dómstólum en Sverrir
skipulagði það í gegnum kjötvinnslu
fyrirtækið Rimax. Í þætti Sannra ís
lenskra sakamála um stóra fíkniefna
málið kemur fram að Sverrir Þór hafi
lifað mjög hátt. Þar er hann sagð
ur hafa átt miklar eignir, góða bíla og
hafa gengið í mjög dýrum fatnaði.
Veiddu hákarl
Eftir að hann hafði afplánað dóm sinn
á LitlaHrauni þá er Sverrir sagður
hafa verið umsvifamikill í glæpaheim
inum. Hann hefur búið bæði í Brasilíu
og á Spáni en auk þess hefur spurst
til hans í Amsterdam. Þrátt fyrir að
hafa búið erlendis þá hafa íslensk lög
regluyfirvöld lengi grunað Sverri um
að standa að baki fíkniefnasmygli til
landsins. Í samtali við brasilíska fjöl
miðla stuttu eftir handtöku Sverris
sagði Richardo Bechera, yfirmaður
lögreglunnar á flugvellinum í Rio De
Janiero. „Við settum út net til að veiða
fiska en fengum í staðinn stóran há
karl í alþjóðlegri glæpastarfsemi.“ n
n Dómur í máli Svedda „tannar“ fallinn í Brasilíu n Óvíst með áfrýjun
Sveddi tönn í
22 ára fangelSi
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
4 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
„Við settum út net til að veiða fiska
en fengum í staðinn stóran hákarl
í alþjóðlegri glæpastarfsemi
Dómur fallinn Samkvæmt
heimildum DV féll dómur í máli
Sverris Þórs í vikunni. Hann fékk
22 ára fangelsisdóm.