Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 10
10 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
Royal Copenhagen
leigiR af Íslendingum
n Lárus Blöndal, fulltrúi í Icesave-nefndinni, á í dönsku fasteignafélagi
Á
rið 2006 keypti hópur ís
lenskra fjárfesta fasteigna
pakka í Kaupmannahöfn
sem að hluta var fjármagn
aður af Kaupþingi á Íslandi.
Á meðal fasteigna var húsnæði þar
sem danska postulinsfyrirtækið
Royal Copenhagen er með fram
leiðslu. Með í kaupunum var líka
húsnæði sem danskur drykkja
vöruframleiðandi leigir. Utan um
umrætt verkefni stofnuðu fjárfest
arnir félagið Royal Premium Invest
ApS. Samkvæmt síðasta ársreikn
ingi Royal Premium skuldar félag
ið Kaupþingi (nú Arion banka) 70
milljónir danskra króna eða um
1.550 milljónir íslenskra króna.
Fjárfestarnir sem tóku þátt í
verk efninu voru Eggert Magn
ússon, fyrrum formaður
Knattspyrnusambands Íslands og
síðar stjórnarformaður West Ham
United, Guðmundur A. Birgisson á
Núpum, Gunnar Andrés Jóhanns
son, fyrrverandi forstjóri Fóður
blöndunar, Aðalsteinn Karlsson,
fjárfestir og fyrrverandi heildsali
og Lárus Blöndal, hæstaréttarlög
maður og fulltrúi stjórnarandstöð
unnar í samninganefnd um Ice
save.
Samkvæmt heimildum DV
drógu þeir Eggert og Gunnar sig
hins vegar fljótlega út úr verkefn
inu. Í dag á Eignarhaldsfélagið LAG
ehf. 75 prósent í Royal Prem ium
Invest. Eignarhaldsfélagið LAG er
síðan í eigu Eignarhaldsfélagsins
GAL ehf. sem fer með 50 prósenta
hlut, Aðalsteins Karlssonar sem
fer með 25 prósenta hlut og Eddu
Sonju, 18 ára dóttur Guðmundar á
Núpum sem fer með 25 prósenta
hlut. Hlutur Eddu Sonju var áður í
eigu föður hennar sem færði hann
yfir á dóttur sína árið 2008 sem arf.
Guðmundur hefur verið dug
legur að færa eignir yfir á fjöl
skyldu sína eftir hrun. Í lok árs
2009 sagði DV frá því að Guð
mundur hefði fært tíu fasteignir
yfir á Unni Jóhannssdóttur, sam
býliskonu sína. Þar á meða voru
hús að Núpum í Ölfusi sem átti
upphaflega að renna inn í minn
ingarsjóð Sonju Zorillu sem og
sögufrægt hús að Hofsvallagötu
1 þar sem Guðmundur og Unnur
búa enn í dag. Guðmundur færði
einnig 33 prósenta hlut sinn í
Eignarhaldsfélaginu GAL yfir á
Eddu Sonju. Lárus Blöndal fer síð
an með 33 prósenta hlut í GAL og
Aðalsteinn Karlsson 33 prósenta
hlut. Guðmundur hefur einnig
fært eignarhlut sinn í Hótel Borg
yfir á dóttur sína.
Staða félagsins óljós
Þegar Royal Premium Invest er flétt
upp í dönsku fyrirtækjaskránni kem
ur fram að félagið hafi hagnast um
nærri 100 milljónir íslenskra króna á
síðasta reikningsári, sé með eigið fé
upp á 675 milljónir króna og skuldi
um 3,6 milljarða króna. Heildareign
ir félagsins nema hins vegar um 4,5
milljörðum króna. Samkvæmt heim
ildum DV kom það illa fyrir fyrirtæk
ið þegar postulínsframleiðandinn
Royal Copenhagen flutti stóran hluta
af framleiðslu sinni til Taílands árið
2008.
Í samtali við DV segir Lár
us Blöndal, lögmaður og stjórn
armaður í Royal Premium Invest
að óvissa sé nú um stöðu félags
ins þar sem tíu ára leigusamningur
við postulínsframleiðandann Royal
Copenhagen sé að renna út. Útlit sé
fyrir að hann verði ekki framlengdur
þar sem Royal Copenhagen hafi flutt
stóran hluta af framleiðslu sinni til
Taílands. Danski fasteignamark
aðurinn sé mjög erfiður um þessar
mundir. Auk þess sé mikið af dönsk
um fyrirtækjum að færa starfsemi
sína til Asíu og AusturEvrópu vegna
erfiðs rekstrarumhverfis í Dan
mörku.
Lárus vill að það komi fram að
starfsemi Royal Premium Invest hafi
gengið vel á undanförnum árum
ólíkt mörgum öðrum útrásarverk
efnum Íslendinga í Danmörku. Þá
hafi íslensku fjárfestarnir komu með
töluvert af eigið fé þegar Royal Prem
ium Invest hafi verið keypt – ólíkt
mörgum öðrum.
Heimsfrægur
postulínsframleiðandi
Royal Copenhagen er sögufrægt
félag sem stofnað var árið 1785 undir
heitinu „Det Kongelige Porcelainsfa
brik“ en árið 2001 keypti Axcelsjóð
urinn fyrirtækið. Royal Copenhagen
átti á þeim tíma líka önnur fræg fé
lög eins og Georg Jensen og Bing &
Grondahl. Axcelsjóðrurinn seldi
hins vegar Georg Jensen til fjárfesta
í furstadæminu Barein í síðustu viku
fyrir 18 milljarða íslenskra króna.
Axcelsjóðurinn hefur tengingu
við Ísland vegna neyðarláns sem
Seðlabankinn veitti Kaupþingi árið
2008 með veði í danska FIHbank
anum. Þegar Seðlabankinn seldi
FIH voru ákvæði um að ef vel gengi
gæti Seðlabankinn fengið allt að 20
milljarða króna aukalega sem alfarið
kæmi frá Axcelsjóðnum. Á meðal
stærstu eigenda Axcel er FIHbank
inn, sænski bankinn Nordea auk
þess fer LEGO fjölskyldan með stór
an hlut.
Áralöng tengsl milli
Lárusar og Guðmundar
Lárus hefur lengi stundað viðskipti
með Guðmundi á Núpum. Auk þess
að eiga sjálfur hlut í Royal Prem
ium í Danmörku í gegnum íslenskt
eignarhaldsfélag á Lárus einnig
hlut í Hótel Borg í gegnum einka
hlutafélagið Borgin okkar. Edda
Sonja, dóttir Guðmundur á Núpum
er einnig hluthafi í Borginni okkar
en hlutinn færði faðir hennar yfir á
hana líkt og hlut sinn í eignarhalds
félögunum LAG og GAL sem eiga í
Royal Premium í Danmörku. Þá situr
Lárus einnig í stjórn fleiri félaga sem
tengjast Guðmundi á Núpum.
Skráð á lögmannsstofu Lárusar
Samkvæmt dönsku fyrirtækja
skránni sitja danski lögmaður
inn Frank Zaubitz og Lárus Blön
dal í stjórn Royal Premium Invest.
Eignarhaldsfélagið LAG ehf. sem
fer með 75 prósenta hlut í Royal
Premium er síðan skráð til heimil
is hjá Juris lögmannsstofu í Borgar
túni en á meðal eigenda hennar er
Lárus sjálfur, Andri Árnason, verj
andi Geirs H. Haarde og Sigurbjörn
Magnússon, stjórnarformaður
Árvakurs. Líkt og kunnugt er var
Lárus fulltrúi stjórnarandstöðunnar
í saminganefndinni um Icesave.
DV sendi fyrirspurn á danska
lögmanninn Frank Zaubnitz sem
situr í stjórn Royal Premium In
vest ásamt Lárusi. Í svari frá danska
lögmanninum segist hann bund
inn trúnaði um viðskiptavini og
þá starfsemi þeir tengjast. Því geti
hann ekki veitt upplýsingar um
Royal Premium Invest – þrátt fyrir
að hann sitji sjálfur í stjórn félags
ins. n
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Amagertorv 6 Hér má sjá verslun Royal
Copenhagen við Amagertorv 6 sem liggur
við Strikið í Kaupmannahöfn. Húsið er eitt
það elsta í borginni en það var byggt árið
1616. Tekið skal fram að þarna er ekki verk-
smiðjahúsnæði fyrirtækisins sem íslensku
fjárfestarnir eiga.
Situr í stjórn Royal Premium Invest
Lárus Blöndal, lögmaður og nefndarmaður
í samninganefnd um Icesave situr í stjórn
danska fasteignafélagsins Royal Premium
Invest á sjálfur hlut í því í gegnum íslenskt
eignarhaldsfélag.
Færir eignir yfir á dótturina Guðmund-
ur A. Birgisson á Núpum hefur verið duglegur
að færa eignir yfir á eiginkonu sína og dóttur
eftir hrun. Í dag á Edda Sonja, 18 ára dóttir
hans, bæði hlut í Hótel Borg og danska fast-
eignafélaginu Royal Premium Invest.
Viðgerðir á
götuljósum
Þessa dagana er unnið að við
gerðum vegna götulýsingar í mið
borginni, en eftir óveðrið fyrir
tveimur vikum fjölgaði bilunum
til muna. Í frétt á vef Reykjavíkur
borgar kemur fram að um síðustu
helgi hafi um 170 stólpar verið
ljóslausir, sem og pollar á Austur
velli og við Arnarhól. Einnig datt
öll lýsing á Ingólfstorgi út. Lamp
ar fuku af nokkrum stólpanna eða
löskuðust svo illa að skipta þarf
um þá.
Starfsmenn Orkuveitunnar
vinna að viðgerðum í samráði við
umsjónarmenn götulýsingar hjá
Reykjavíkurborg og lýkur verkinu
í þessari viku. Síðast var farið yfir
götulýsingu í ágúst og september
og þá var gert við allt sem laga
þurfti.
Mikið traust
til slökkvi- og
sjúkraliðs
Íslendingar bera nær undantekn
ingarlaust mikið traust til slökkvi
liðs og sjúkraflutningamanna.
Um 97 prósent svarenda í nýrri
rannsókn Capacent Gallup segj
ast bera mikið traust til stéttar
innar. Rannsóknin sýnir einnig
að 96,5 prósent telja að eldvarna
átak slökkviliðsmanna fyrir jólin
sé mikilvægt. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Landssambandi
slökkviliðs og sjúkraflutninga
manna (LSS) en Capacent gerði
könnunina í október síðastliðnum
fyrir sambandið og Eldvarna
bandalagið. Úrtakið var 1.450
manns af öllu landinu og var
svarhlutfallið 58,8 prósent.
Valdimar Leó Friðriksson,
framkvæmdastjóri LSS, segir í til
kynningunni afar mikilvægt fyrir
slökkviliðs og sjúkraflutninga
menn að njóta trausts almenn
ings. „Okkar menn koma fólki
til aðstoðar á erfiðum stundum
í lífinu, vegna eldsvoða, slysa og
alvarlegra veikinda. Það er ákaf
lega mikilvægt að gagnkvæmt
traust sé fyrir hendi við slíkar að
stæður. Því eru þessar niðurstöður
mikið gleðiefni fyrir okkur,“ segir
Valdimar.
Hann segir það einnig mikla
hvatningu fyrir LSS að fólk skuli
almennt telja að hið árlega
eldvarnaátak LSS sé mikilvægt.
Langflestir segja það mjög mik
ilvægt. Eldvarnaátakið hófst í
gær, fimmtudag, og stendur til
mánaðamóta. Slökkviliðsmenn
heimsækja þá börn í 3. bekk
grunnskólanna og fræða þau og
fjölskyldur þeirra um eldvarnir.
„Við teljum það afar mikil
vægan þátt í okkar starfsemi að
fræða almenning um eldvarn
ir og reyna þannig að fyrirbyggja
eldsvoða og mann og eignatjón
vegna þeirra. Þessi niðurstaða
styrkir okkur í þessu starfi,“ segir
Valdimar.