Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Qupperneq 14
Fötluð dóttir neydd
í bað í öllum Fötunum
A
lda Karen er 23 ára kona
með fjölþætta fötlun;
Downs-heilkennið, ein-
hverfu og flogaveiki. Vegna
fötlunar sinnar hefur hún
á undanförnum árum dvalið nokkra
daga í mánuði á Heiðarholti, þar sem
boðið er upp á skammtímavistun fyr-
ir fatlaða, en þangað hefur hún ekki
farið síðan móðir hennar, Kolfinna
Magnúsdóttir, fékk það staðfest í
tölvupósti frá forstöðukonu Heiðar-
holts að Alda Karen hefði verið dreg-
in gegn vilja sínum, og í öllum fötun-
um, í bað.
Kolfinna ætlaði að kæra mál-
ið fyrir hönd dóttur sinnar en segir
að það sé ekki eins auðvelt og hún
hefði haldið. „Það hefur komið í ljós
að fyrir fatlaðan einstakling eða að-
standanda er það ekkert sjálfgefið
mál en velferðarráðuneytið tekur
ekki við kæru á þessu stigi. Athygl-
in sem málið hefur fengið í fjölmiðl-
um hefur hins vegar haft afleiðingar,“
segir Kolfinna sem er bæjarfulltrúi í
meirihlutanum í Garði en Heiðarholt
heyrir undir Félagsþjónustu Sand-
gerðisbæjar, Garðs og Voga. Nú er
óvíst hvort meirihlutinn haldi vegna
málsins.
Bæjarstjórnin gæti fallið
Fyrr í vor missti D-listinn í Garði
meirihluta sinn þegar Kolfinna
myndaði nýjan meirihluta með full-
trúum N- og L-lista. Nú er svo komið
að nokkrum dögum eftir að Kolfinna
steig fram með málið, er varðar
valdbeitingu á fatlaðri dóttur henn-
ar, í fjölmiðlum að það meirihluta-
samstarf er við það að springa. Full-
trúi L-lista hefur hafið viðræður við
D-lista um myndun nýs meirihluta.
„Valdabaráttan í pólitíkinni tekur
ekki tillit til þess ef aðstæður eru eins
átakanlegar og þessar. Barátta mín
fyrir því að lög og réttindi séu virt er
notuð gegn mér. Fólk svífst einskis
til þess að komast aftur til valda. Sú
staða sem ég hef verið í sem bæjar-
fulltrúi og móðir er vandmeðfarin
og ég hefði þess vegna viljað stíga
til hliðar. Meirihlutinn er hins vegar
þannig gerður að minn varamaður er
úr minnihlutanum,“ segir Kolfinna.
„Ég hef velt því fyrir mér alla vik-
una hverjar afleiðingarnar yrðu ef
þetta færi í fjölmiðla. Ég veit að ég
mun fá að heyra að ég hafi reynt
að beita pólitískri stöðu minni eins
og ég hef þegar fengið að heyra, ég
hef fengið að heyra þetta allt, að ég
sé frek, furðuleg og nýti mér stöðu
mína sem bæjarfulltrúi. En ég fór
ekki í þetta til þess að öðlast vin-
sældir og verð að standa og falla
með því sem mér finnst rétt. Ég er
búin að leita allra leiða í þessari
baráttu og sannleikurinn hlýtur að
þola dagsins ljós,“ segir Kolfinna
ákveðin. „Dóttir mín hlýtur að hafa
sama rétt og annað fólk. Þótt ég sé í
bæjarstjórn þá hlýt ég að mega gæta
réttar hennar. Ég ætla ekki að sitja
aðgerðalaus vegna þess sem gerð-
ist, það kemur aldrei til greina. Ég
hætti ekki að vera móðir hennar og
málsvari. En það er ekki þægilegt
að vera í þessari stöðu og vera tor-
tryggð. Það var ekkert launungar-
mál þegar ég bauð mig fram að ég
vildi beita mér í málefnum fatlaðra
og skólamálum.“
Fá ekki aðra þjónustu
Kolfinna kallaði eftir viðbrögðum
vegna þessa en félagsþjónustan réð
hlutlausan aðila til þess að fara yfir
ferlana á Heiðarholti. „Hún fer ekki
á Heiðarholt fyrr en búið er að vinna
þá úttekt en okkur hefur ekki ver-
ið veitt tímabundin þjónusta í stað-
inn. Samkvæmt lögum á Alda rétt
á fullri þjónustu frá sveitarfélaginu
miðað við sína fötlun en okkur hefur
ekki þótt neitt af þeim úrræðum sem
okkur hefur staðið til boða boðlegt.
Við höfum óskað eftir því að fá sem
mesta þjónustu hér heima þar sem
hún býr en það hefur ekki verið hægt
að koma til móts við okkur varðandi
það.“
Í janúar 2011 voru málefni fatlaðra
færð frá ríkinu og yfir á sveitarfélögin.
Kolfinna segir að sveitarfélögin hafi
hins vegar verið illa undirbúin fyr-
ir yfirfærsluna og fjármagn hafi ekki
verið nægilega tryggt. „Væntingar
voru gerðar til þess að sveitarfélög-
in veittu lögbundna þjónustu og ég
held að fólk átti sig ekki á alvarleika
málsins þegar það gengur ekki eftir
en ég held að fólk hafi almennt ekki
skilning á málefnum fatlaðra nema
einhver fatlaður standi því nærri.
Heiðarholt var opnað fyrir
nokkrum árum og síðan höfum við
notað þessa þjónustu. Álagið er af-
skaplega mikið hérna heima og svo
gæti farið að við yrðum nauðbeygð
til þess að flytja burt af Reykjanes-
svæðinu til að fá nauðsynlega
þjónustu fyrir Öldu Karen.“
Gat enga björg sér veitt
Hún segir að atburðinn sem um
ræðir megi rekja til kunnáttu-
leysis, að sérþekkingu skorti.
„ Fagþekking er lykilforsenda þess
að hægt sé að veita góða þjónustu
sem er nú lögbundin. Góð sam-
vinna þjónustuaðila og þeirra sem
þiggja þjónustuna er einnig mikil-
væg. Þarna var brotið á fatlaðri
manneskju sem gat enga björg sér
veitt. Það verður ekki aftur tekið en
það er hægt að læra af mistökun-
um en ég get ekki séð að það sé að
gerast.“
Til þess að setja málið í sam-
hengi segist hún hafa hugsað með
sér hvernig hún hefði brugðist við
ef um ófatlaðar dætur sínar væri
að ræða, ef þær hefðu til dæmis
verið settar tilneyddar í bað í öll-
um fötunum. „Það er engin spurn-
ing að viðbrögð fólks hefðu verið
önnur ef um ófatlaðan einstakling
hefði verið að ræða. En þegar fatl-
aður einstaklingur á í hlut efast
fólk um réttmæti gagnrýninnar.
Fordómarnir eru svo miklir og þeir
eru hjá okkur öllum.“
Niðrandi tal
Kolfinna segist fyrst hafa heyrt
af atvikinu þegar hún ræddi við
Katrínu Júlíusdóttur, forstöðukonu
Heiðarholts, í síma. „Þá daga sem
Alda Karen dvelur á Heiðarholti
hringi ég alltaf reglulega til þess að
heyra hvernig gengur. Ég átti langt
og gott samtal við forstöðukon-
una og í lok samtalsins sagði hún
mér frá þessu. Ég hélt að ég hlyti
að hafa misskilið hana og var smá
tíma að átta mig á þessu.“
Kolfinna sendi því tölvupóst
þar sem hún óskaði eftir atvikalýs-
ingu, sem hún fékk. Kolfinna telur
að í svarinu frá forstöðukonunni
hafi verið mjög niðurlægjandi lýs-
ingar á dóttur sinni. „Dóttir mín er
með fjölþætta fötlun og þarfnast
mikillar þekkingar. Niðurlægjandi
lýsingar bera ekki vott um faglega
nálgun,“ segir Kolfinna en í svar-
bréfinu var meðal annars talað
„um sturlunareinkenni“.
„Dóttir mín er ekki sturluð, hún
er með fötlun. Þú talar ekki svona
um fatlaða manneskju. Einhverf-
an gerir það að verkum að þegar
henni líður illa í aðstæðum og
mótmælir þeim þá bregst hún við
með ofsafengnari hætti en fólk
gerir almennt því hún á erfitt með
að tjá sig. Því hefðu átt að vera til
ferlar varðandi það hvernig ætti
að bregðast við í svona aðstæðum.
Svona lagað gerist ekki hér heima
þar sem við þekkjum hana og vit-
um hvers hún þarfnast. Hún þarf
bara öryggi og markviss viðbrögð
og ofsalega mikla þolinmæði. Við-
brögðin þurfa að vera fagleg,“ segir
Kolfinna sem vonar að „þessi sára
reynsla verði til þess að virðing
verði borin fyrir fötluðu fólki og því
sýndur skilningur.“ n
14 Fréttir 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
„Dóttir mín er ekki
sturluð, hún er
með fötlun. Þú talar ekki
svona um fatlaða mann-
eskju.
„Barátta mín fyrir því
að lög og réttindi séu
virt er notuð gegn mér
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
n Bæjarfulltrúi kvartar undan valdníðslu á Heiðarholti n Bæjarstjórnin gæti fallið vegna málsins