Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Qupperneq 41
N
ei pabbi, nei,“ voru síðustu
orð fimmtán ára drengs,
Jamars Pinkney yngri,
andartaki áður en fað-
ir hans sendi byssukúlu í
hnakka hans, líkt og um aftöku væri
að ræða. Morðið framdi Jamar eldri
16. nóvember, 2009, en skömmu
áður hafði faðirinn, í reiðikasti, nán-
ast rekið son sinn út af heimili hans
í Highland Park í Michigan í Banda-
ríkjunum, dregið hann með sér út
á ónýtta landspildu skammt frá þar
sem hann myrti hann. Eftir stóðu
spurningar um hvað hefði rekið föð-
ur með hreina sakaskrá, sem var
ekki þekktur fyrir ofbeldi heldur
þvert á móti takmarkalausan kær-
leika í garð barna sinna, til að fremja
slíkt ódæði?
Í ljós kom að aðdragandann mátti
rekja til atburða sem átt höfðu sér
stað aðeins nokkrum klukkustund-
um fyrr. Jamar yngri, sem bjó hjá
móður sinni, Lazette Cherry, hafði
fyrr um daginn játað fyrir móður
sinni að hann hefði viðhaft óviður-
kvæmilega kynferðislega hegðun
gagnvart þriggja ára hálfsystur sinni.
Ástæða játningar Jamars var sú að
Lazette hafði farið með stúlkuna á
sjúkrahús til skoðunar. Þrátt fyrir að
læknar hefðu engar vísbendingar
fundið sem bentu til kynferðislegr-
ar misnotkunar varð sektarkenndin
Jamar yngri um megn.
Brást hinn versti við
„Hann sagði mér af þessu af því að
hann vissi að þetta var rangt,“ sagði
Lazette um játningu Jamars. Lazette
sagðist hafa hringt í föður Jamars því
um var að ræða mál, sem „ekki á að
sópa undir teppið“.
Faðir drengsins brást hinn versti
við, ók í hendingskasti heim til
Lazette og beið ekki boðanna þegar
þangað var komið. „Hann fór að
berja Jamar hérna í stofunni. Hann
var með byssu og barði hann með
henni,“ sagði Lazette sem hafði reynt
að ganga á milli og fá Jamar eldri til
að hætta barsmíðunum.
„Jamar grét og endurtók í sífellu
„Getur þú fyrirgefið mér pabbi, getur
þú fyrirgefið mér?““ En það er nokk-
uð ljóst að faðirinn hafði ekki hugsað
sér að fyrirgefa syni sínum nokkurn
skapaðan hlut því hann greip í son
sinn og dró hann út úr húsinu og
þrýsti byssuhlaupinu í bak hans.
„Hann sagði Jamar að steinhalda
kjafti og sagðist myndu drepa hann á
staðnum ef hann hætti ekki að hrópa
eftir hjálp. Síðan staðnæmdist hann
á uppfyllingunni og neyddi Jamar til
að afklæðast og krjúpa.“
„Nei pabbi, nei,“
Lazette flýtti sér til systur sinnar sem
bjó í næsta húsi. „Þegar við komum
á staðinn heyrði ég Jamar hrópa „Nei
pabbi, nei“. Það voru lokaorð drengs-
ins því faðir hans skaut hann án
nokkurs hiks í höfuðið. „Síðan gekk
hann rólegur í fasi að bíl sínum og ók
á brott. Ég var hjá Jamar en systir mín
hringdi á Neyðarlínuna,“ sagði Lazette.
Nokkrum klukkustundum síðar
gaf Jamar Pinkney eldri sig fram við
lögregluyfirvöld og var hann ákærð-
ur fyrir morð, glæpsamlega árás og
skotvopnaburð.
Síðar hafði verjandi Jamars á
orði að skjólstæðingur sinn væri
aðframkominn vegna sorgar og
að ákæruvaldið yrði að taka tillit
til þess að ekkert væri eðlilegt við
málið. Því bæri að fara varlega í að
krefjast hörðustu refsingar.
Engar vísbendingar
Í framburði Lazette kom fram að
Jamar yngri hefði einungis talað
um að honum fyndist sem hann
væri farinn að dragast að hálf-
systur sinni og að honum hefði
liðið illa vegna þess. Reyndar gátu
læknar ekki fundið nein ummerki
kynferðislegrar misnotkunar þegar
stúlkan var skoðuð.
Sjálfur Jamar eldri sagði, þegar
hann tjáði sig við réttarhöldin, að
hann hefði átt erfitt með að trúa að
sonur hans hefði gert eitthvað ljótt
við systur sína. Jamar yngri hefði
neitað öllu slíku þennan örlaga-
ríka dag þegar foreldrar hans þrá-
spurðu hann vegna málsins. „En
þá, þegar móðir hans fór úr stof-
unni, viðurkenndi hann það fyr-
ir mér,“ sagði Jamar eldri. Að hans
sögn sagði sonur hans að hann
hefði farið úr fötunum og lagst
ofan á hálfsystur sína. „Þegar hann
sagði mér þetta, þá gjörsamlega
missti ég stjórn á mér.“
Hinn 1. apríl, 2010, var Jamar
Pinkney eldri sakfelldur fyrir morð
og ýmsar aðrar sakir og dæmdur
til 38 ára til 80 ára fangelsisvistar í
Michigan.
Aldrei hafa komið fram vís-
bendingar sem renna stoðum
undir orð Jamars við réttarhöldin
hvað varðar kynferðislegt ofbeldi
af hálfu sonar hans. n
41Helgarblað 23.–25. nóvember 2012
mannslíf sagðist Spánverjinn Manuel Delgado Villegas hafa á samviskunni. Ville-
gas er einn þekktasti fjöldamorðingi Spánar en hann var ákærður fyrir að drepa átta manns á
árunum 1964 til 1971. Aldrei var þó réttað yfir Villegas þar sem hann var sendur beinustu leið á
geðspítala þar sem hann dvaldi allt til æviloka. Hann lést árið 1998, 55 ára að aldri, úr lungna-
sjúkdómi sem rakinn var til reykinga.
xxxx
48
Stakk son sinn um það bil 100 sinnum
n Húsmóðir ákærð fyrir hrottaleg morð
E
lzbieta Plackowska, húsmóðir
í úthverfi Chicago í Bandaríkj-
unum, neitaði sök þegar mál
ákæruvaldsins gegn henni var
tekið fyrir í vikunni. Plackowska sætir
nú ákæru fyrir að myrða fimm ára son
sinn og fimm ára stúlku sem hún var
með í pössun heima hjá sér.
Samkvæmt ákæru framdi
Plackowska ódæðin vegna þess að
hún var reið út í eiginmann sinn, föð-
ur drengsins. Hún stakk hann um það
bil hundrað sinnum víðsvegar um lík-
amann og snéri sér svo að ungu stúl-
kunni þar sem hún varð vitni að atvik-
inu.
Plackowska kom í dómhúsið á
miðvikudag klædd í bláan fangabún-
ing. Hún stóð þögul við hlið verjanda
síns, Michaels Mara, á meðan hann
lýsti afstöðu hennar til ákærunnar og
sagði að hún væri saklaus. Hún væri
ekki ábyrg gjörða sinna vegna geð-
veiki.
Saksóknarar í málinu sögðu að þeir
myndu leggja fram gögn sem myndu
sanna sekt hennar og að hún ætti ekki
við geðræn vandamál að stríða. „Það
sem gerðist í þessu máli er hreinn og
klár harmleikur. Það er mikilvægt að
flýta sér í hægt í málum sem þessu,“
sagði verjandi Plackowska.
Atvikið átti sér stað á heimili henn-
ar þann 30. október síðastliðinn. Eftir
að hún var handtekin játaði hún sekt
sína og sagði við yfirheyrslu hjá lög-
reglu að hún hefði skipað syni sín-
um, Justin, og fimm ára stúlku sem
hún var með í pössun, Oliviu Dwora-
kowski, að biðja. Síðan hefði hún náð
í hníf og stungið þau bæði til bana
meðan þau báðu fyrir lífi sínu. n
FAÐIRINN
SÁ RAUTT
n „Nei pabbi, nei,“ voru síðustu orðin sem Jamar yngri sagði
„Getur þú fyrirgefið mér pabbi,
getur þú fyrirgefið mér?
Jamar eldri Missti stjórn á skapi sínu.