Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Side 47
Steðji er beSti jólabjórinn
Jólabjór 47Helgarblað 23.–25. nóvember 2012
1 Steðji
Meðaleinkunn: 8,1 Lýsing: Ljósrafgullinn, ósætur, létt
meðalfylling, miðlungsbeiskja, malt, humlar, lakkrís.
Styrkleiki: 5,3% Verð: 357 krónur
Steinn: „Léttur, auðveldur. Allir geta
drukkið hann. En mér finnst vanta mikið
upp á þetta.“
Henry: „Jólalitur, jólalykt. Fín fyllinga,
ekki of þung. Gott jafnvægi. Vel heppn
að. Aðeins of sætur kannski. “
Elín Arnar: „Þessi er jóla, jóla. Góður
bjór, gott eftirbragð og extra jólakara
mellukeimur. “
Andri Freyr: „Þessi er ótrúlega góður.
Algjör eðal, gæti nærst á honum
yfir jólin. “
Rakel: „Þessi er góður. Sæt lykt og
frábært karamellubragð. Þumlar
humlar upp á þennan sem er það
besta sem jólabjór getur fengið í
einkunn. Þessi fær að koma í öll mín
jólaboð. “
Umsagnir um umbúðir: Flottar
umbúðir – Ekki beint jólalegar en
frumlegar – Steðji með jólaborða!
Toppeinkunn, ég hef húmor fyrir
þessu – Vondur miði – Nei, nú er ég
hætt við að kaupa hann – Frumlegt
en ekki mjög jóló, skemmtilegt þó
3 Jóla Bock Víking
Meðaleinkunn: 6,7 Lýsing: Rafbrúnn, mjúk meðalfyll
ing, ósætur, miðlungsbeiskja, malt, humlar, ávöxtur,
krydd. Styrkleiki: 6,2% Verð: 409 krónur
Steinn: „Einhver beiskja sem ég er ekki
að fíla. Samt fín fylling. Sætur.“
Henry: „Fallega jólarauður. Passleg
lykt. Mjög bragðgóður. Gott jafnvægi.
Svínvirkar. Fín fylling.“
Elín Arnar: „Áhugavert bragð.
Reynir á alla bragðlaukana, beiskur
en góður.“
Andri Freyr: „Drullugóður. Þessi
gefur manni eitthvað kikk. Myndi
kaupa þennan nokkrum sinnum.“
Rakel: „Liturinn hvorki né, ekki
ljós og ekki dökkur. Alltof stamur.
Verð bara þyrst á því að drekka
hann. Fengi ekki inngöngu í
jólaboðið mitt.“
Umsagnir um umbúðir: Ekki
nógu jólalegur þó þetta sé
svolítið flott hönnun – Ágætar
umbúðir
6 Einstök
Meðaleinkunn: 5,6 Lýsing: Rafbrúnn, mjúk fylling,
sætuvottur, miðlungsbeiskja, höfugur, ristaður, krydd,
ávöxtur, karamella. Styrkleiki: 6,7% Verð: 429 kr.
Steinn: „Létt, örlítið möltuð útgáfa af
lager. Vantar fyllingu.“
Henry: „Aftur fínn litur, mikil froða.
Sterkt en ekki yfirþyrmandi bragð.
Kanileftirbragð. Hátíðlegt en sterkt.“
Elín Arnar: „Þessi er góður. Pínu
sérríbragð, frískandi eftirbragð. Ekki
jólabjór.“
Andri Freyr: „Of líkur venjulegu malti
sem er þrusugott fyrir maltóða.
Ágætur en ekki minn.“
Rakel: „Byrjar vel. Freyðir vel og
góður litur. Ferskara bragð en af
mörgum öðrum bjórum. Alveg
hreint ágætur. Fínt eftirbragð.
Kæmi nokkrum niður.“
Umsagnir um umbúðir: Fellur í
fjöldann, mundi ekki velja þessar
umbúðir – Svolítið ósýnilegar
umbúðir, kalla ekki á mann – Flott
hönnun en kannski ekki beint
jólaleg
9 Jólagull
Meðaleinkunn: 3,2 Lýsing: Ljósrafgullinn, ósætur,
meðalfylltur, miðlungsbeiskja, malt, humlar. Styrk-
leiki: 5,2% Verð: 339 krónur
Steinn: „Ekki neitt að gerast. Gæti
verið að drekka vatn með smá malti.
Nei takk.“
Henry: „Ljós, lítil lykt. Ekki nógu jóla.
Önnur vörusvik. La la bjór en enginn
jólabjór.“
Elín Arnar: „Lítið um að vera í þess
um, ekkert jóla í gangi hér.“
Andri Freyr: „Ekki spennandi.“
Rakel: „Þessi er svona svikari. Eins
og gamall bjór sem er búið að
skipta um merkimiða á. Ágætis
bjór en sem jólabjór fær hann
falleinkunn. Bannað að plata og
hvað þá um jólin!“
Umsagnir um umbúðir:
Frímerkjapæling, allt í góðu en
skarar ekkert fram úr – Ekkert
spennandi
11 Víking jólabjór
Meðaleinkunn: 2,6 Lýsing: Ljósrafgullinn, meðalfyll
ing, ósætur, meðalbeiskja, maltaður keimur. Styrkleiki:
5,0% Verð: 309 krónur
Steinn: „Nákvæmlega ekkert að
gerast. Ekkert bragð. Hvorki gott né
vont.“
Henry: „Svaka froða. Lyktarlaus, lítill
litur. Allt of léttur. Venjulegur bjór.
Svik. Júdas jólabjóranna.“
Elín Arnar: „Flott og girnileg froða.
Lítill jólabjór. Meira eins og hefðbund
inn bjór.“
Andri Freyr: „Allt of hefðbundinn,
gæti verið nánast hvaða lagerbjór
sem er.“
Rakel: „Glæsileg froða. Besta
froðan. Kryddbragð sem er svo
lítið í byrjun en ekkert eftirbragð.
Ekki jólabragð, þessi er blöff,
svikarinn í hópnum.“
Umsagnir um umbúðir: Sama
og alltaf, flottar – Jólalegar en
samt ekkert sérstakt í gangi –
Fallegt og jólalegt
8 Gæðingur
Meðaleinkunn: 4,6 Lýsing: Rafbrúnn, ósætur, mjúk
meðalfylling, beiskur, dökkristað malt, lakkrís, hnetur,
humlar. Styrkleiki: 5% Verð: 398 krónur
Steinn: „Goslegur. Aðeins of léttur,
vantar fyllingu. Vel maltaður. Öðru
vísi. Mætti vera örlítið þykkari.“
Henry: „Fallegur litur og froða. Malt,
en veikt og flatt. Veldur vonbrigðum.
Engir flugeldar.“
Elín Arnar: „Ágætur, ekkert meira en
það, pínu flatur.“
Andri Freyr: „Mikið bragð, jóla
legt en ég hugsa að maður yrði
fljótt leiður á honum.“
Rakel: „Flottur rauður litur.
Minnir á jólin. Minnir á gamla
hvítölið. Flatur og hálf „boring“.
Eina góða við þennan er liturinn.
Það er víst ekki nóg, þarf að
smakkast vel.“
Umsagnir um umbúðir: Minnir
mig á Hugleiksmyndir – Er þetta
Djákninn á Myrká? Flott flaska –
Ekki beint jólalegar en hrikalega
skemmtilegar flöskur – Svolítið
strákalegar – Tim Burton
jólanna. Flott
2 Jólakaldi
Meðaleinkunn: 7,1 Lýsing: Rafgullinn, ósætur,
meðalfylling, miðlungsbeiskja, humlar, malt,
kandís. Styrkleiki: 5,4% Verð: 388 krónur
Steinn: „Léttur, vantar fyllingu og
meira malt. Flestum finnst þetta
örugglega rosa fínt en mér finnst vanta
örlítið.“
Henry: „Góð froða. Malt, lakkrís.
Hentar vel með mat. Fallegur litur. Vel
heppnaður.“
Elín Arnar: „Mmmm, léttur og góður
með lúmskum jólakeim. Minnir mig
á jólaölið góða. Góður en leiðinlegt
eftirbragð.“
Andri Freyr: „Bragðmikill, góður
og örugglega ægilega fínn með
villibráðinni.“
Rakel: „Fallegur á litinn, sem
er mikilvægt, þar sem drykkur
er fyrir öll skilningarvitin. Mjúkt
bragð. Mjög góður. Mæli með
þessum. “
Umsagnir um umbúðir: Falleg,
jólaleg og klassísk flaska –
Jólalegar umbúðir. Til í að fylla
ísskápinn af þessum – Fínar
umbúðir sem eru að ná fótfestu
5 Jólabjór Ölvisholt
Meðaleinkunn: 6,1 Lýsing: Rafgullinn, sætu
vottur, mjúk meðalfylling, miðlungsbeiskja, krydd,
negull, engifer, malt, humlar. Styrkleiki: 5,0%
Verð: 439 krónur
Steinn: „Léttur, maltið mætti vera
örlítið meira og fylling. Vantar örlítið
upp á hann.“
Henry: „Mjög dökkur. Fín froða. Fal
legur litur. Smá sítrus, kannski aðeins
einum of. Eftirbragð la la.“
Elín Arnar: „Piparkökulegur. Þessi
kemur með smá piparkökukeim.“
Andri Freyr: „Hann bragðast eins og
maður sé nýkominn í smákökurnar
eftir hangikjötið.“
Rakel: „Þessi er of dökkur á lit.
Vantar rauða keiminn sem mér
finnst skemmtilegur. Yfirgnæfandi
ilmvatnsbragð sem er óspennandi.
Minnir mig á einhvern annan bjór.“
Umsagnir um umbúðir: Öðruvísi
umbúðir – Aðeins of viðvaningsleg
hönnun – „Basic“ flaska, ekki nógu
jólaleg – Svolítið eins og verið sé að
reyna að gera þær gamaldags en
tekst ekki alveg – Mér finnst vera
ópalfílingur í hönnuninni
7 Giljagaur
Meðaleinkunn: 5,0 Lýsing: Rafgullinn, skýjaður,
mjúk fylling, sætur, beiskur, höfugur, krydd, ávöxtur,
ristað malt, humlar. Styrkleiki: 10% Verð: 636 krónur
Steinn: „Sælgæti. Örlítið sætur. Annars
flott jafnvægi. Virkilega góður. Al
menningi finnst þetta örugglega ekki
gott en mér finnst þetta nammi.“
Henry: „Gruggugt. Mikil sítruslykt.
Bragðast eins og Ajax. Viðbjóður.
Ekki minn tebolli. Ekki fyrir Bolinn en
bjórsnobbarar elska svona.“
Elín Arnar: „Nei, þetta er eins og bjór
með ilmvatni út í. Hann vinnur samt á.“
Andri Freyr: „Það er eitthvað sem
ég kann að meta í þessum en veit
ekki hvað. Veit ekki hversu marga
ég gæti drukkið af honum en þó
nokkra. Fíla hann.“
Rakel: „Ljótur litur. Gruggugt.
Rosalegt ilmvatnsbragð. Veit ekki
hvað þetta er, en bjór er hvergi þar
nærri. Afskaplega vondur drykkur.“
Umsagnir um umbúðir: Eins og
eitthvað sem maður mundi finna
á hollustubar – Villandi umbúðir
– Ekkert jólalegt við þennan – Of
„organic“ útlit
10 Tuborg jólabjór
Meðaleinkunn: 3,0 Lýsing: Ljósrafgullinn, ósætur,
mjúk meðalfylling, miðlungsbeiskja, humlar, malt,
létt krydd. Styrkleiki: 5,6% Verð: 299 krónur
Steinn: „Í alvöru? Flatur, vantar allt.
Ef þú vilt venjulegan lager í jólaföt
um, gjörðu svo vel.“
Henry: „Svikari. Út með hann.
Venjulegur meðalbjór með smá sítrus.
Júdas enn á ný.“
Elín Arnar: „Þetta bragðast eins og
dreggjarnar þegar komið er í botninn
á einum hálfslítra.“
Andri Freyr: „Ég held að þetta
sé ekki jólabjór. Þetta er „The
Grinch“ bjóranna í ár.“
Rakel: „Það bætist í svikarahóp
inn. Venjulegur bjór með enga
jólasérstöðu. Fínn í vor en ekki
jólabjór.“
Umsagnir um umbúðir:
Flöskurnar eru alltaf flottar
– Æðislegar umbúðir – Sætur
jólasveinn – Klassískt jóla Tuborg
– Fallegt
4 Egils Malt jólabjór
Meðaleinkunn: 6,6 Lýsing: Rafbrúnn, sætuvottur,
mjúk fylling, lítil beiskja, malt, lakkrís. Styrkleiki:
5,6% Verð: 349 kr.
Steinn: „Malt og appelsín. Ekkert að
þessu. Dálítið sætur. En skást hingað
til. Ef þér finnst malt og appelsín gott
þá er þetta þitt.“
Henry: „Flottur litur og froða. Lítil
lykt. Alveg eins og venjulegt malt.
Óáhugavert. Vantar bara appelsín
með.“
Elín Arnar: „Minnir á jólaöl. Mildur og
góður en ekkert sérstakt jólakrydd.“
Andri Freyr: „Þessi yrði fínn með
piparkökunum. Fínn með app
elsíni til að róa krakkana af því
þetta bragðast eins og malt.“
Rakel: „Fallegur á lit og fín froða.
Mildur og góður. Kæmi þessum
niður allt kvöldið. Frábær jóla
bjór. Áfengt maltöl, hvað viljum
við meir?“
Umsagnir um umbúðir: Er þessi
tappi tilviljun? Þetta er malttapp
inn! – Alveg eins og venjulega
maltflaska, vantar jólakúlurnar á
umbúðirnar – Skemmtilegt
Þessir voru
bestir í fyrra
Það sést vel í þessari
smökkun að mikill munur er
á milli árganga bjóranna. Í
fyrra var Tuborg Jule
bryg í fyrsta sæti, ásamt
Einstakri, en Tuborg lendir
í 10. sæti í ár. Einstök fellur
niður í 6. sæti. Jóla Kaldi
var þá í 6. sæti en hoppar
nú upp í 2. sæti og Jóla
Bock fer úr 9. sæti í 3.
sæti.
1.–2. sæti Tuborg
Julebryg
1.–2. sæti Einstök
3. sæti Egils Malt Jólabjór
4. sæti Egils Jólagull
5. sæti Stekkjastaur
6. sæti Jóla Kaldi
7. sæti Víking Jólabjór
8. sæti Ölvisholt Brugghús Jólabjór
9. sæti Víking Jóla Bock
10. sæti Leppalúði