Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Síða 52
52 Sport 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
Þ
að má búast við mikilli
spennu þegar lokakeppn-
in í Formúlu 1 kappakstrin-
um fer fram á sunnudag.
Keppnin verður að þessu
sinni haldin í Sao Paulo í Brasilíu
og þá mun ráðast hver stendur uppi
sem heimsmeistari. Þjóðverjinn
Sebastian Vettel, sem ekur fyrir Red
Bull, er með pálmann í höndun-
um fyrir lokaumferðina og getur, ef
vel tekst til, varið heimsmeistaratit-
il sinn. Hann er í efsta sæti í stiga-
keppni ökuþóra með 273 stig en
Spánverjinn Fernando Alonso, sem
ekur fyrir Ferrari, er sá eini sem get-
ur ógnað Vettel. Alonso er í öðru
sæti með 260 stig en í þriðja sætinu
situr Kimi Räikkönen á Lotus með
206 stig.
Nánast komið
Stigakerfið í Formúlunni er þannig
að fyrir sigur fást 25 stig, annað
sætið gefur 18 stig, þriðja sætið 15
stig, það fjórða 12, fimmta sætið
gefur 10 stig og svo koll af kolli en
10. sætið gefur 1 stig. Til að verða
heimsmeistari þyrfti Alonso helst af
öllu að vinna Brasilíukappaksturinn
og treysta á að Vettel endaði neðar
en í fjórða sæti. Þar sem Vettel hefur
unnið fjögur af síðustu sex mótum
og Alonso ekki unnið síðan í Þýska-
landskappakstrinum í júlí síðast-
liðnum er ljóst að Alonso þarf á öllu
sínu að halda.
Í keppni bílasmiða er Red Bull
langefst með 440 stig en líkt og
Vettel varð Red Bull einnig stigahæst
í fyrra. Baráttan um fyrsta sætið er
því engin en hún er öllu harðari um
annað og þriðja sætið. Ferrari er fyr-
ir lokakeppnina í öðru sæti með 367
stig en McLaren í því þriðja með
353 stig. Lotus er í fjórða sæti með
302 stig en töluvert þar á eftir kem-
ur Mercedes í fimmta sæti með 136
stig.
Þrír sigrar í röð
Lewis Hamilton vann sigur í síðustu
keppni sem fram fór í Bandaríkjun-
um um liðna helgi. Hamilton þótti
aka óaðfinnanlega en því miður fyrir
hann á hann aðeins möguleika á að
hífa sig upp í þriðja sætið í keppn-
inni í Brasilíu.
Brautin í Sao Paulo, sem keppt
verður á um helgina, heitir Autó-
dromo José Carlos Pace, en fyrst
var keppt á henni árið 1972. Hún
er 4,3 kílómetrar að lengd, ekinn er
71 hringur og heildarvegalengdin
er tæplega 306 kílómetrar. Franski
ökuþórinn Alain Prost hefur oftast
staðið uppi sem sigurvegari á braut-
inni, eða sex sinnum, en í keppni
bílasmiða hefur McClaren oft-
ast hrósað sigri, eða ellefu sinn-
um. Það ætti að létta lund Red Bull-
manna, þar á meðal Vettels, að vita
til þess að þeir hafa unnið þrjú ár í
röð á þessari braut. Mark Webber
vann þar í fyrra, Vettel árið 2010 og
Webber stóð einnig uppi sem sigur-
vegari árið 2009. n
n Lokakeppni Formúlunnar í Brasilíu n Red Bull hefur unnið þar 3 ár í röð
Brasilíukappaksturinn
Lokakeppni formúlunnar í ár fer fram í Sao Paulo í Brasilíu næstkomandi sunnudag.
T1 18.3T2 36.6
T3 17.4
1’12.3”
1
2
3
4
5
6
78
9
10
11
12
13
14
15
0’00.0”T 00.0
Beygja Gír Km/klst Þyngdaraflskraftur
3 106 2.661
3 166 3.872
5 257 3.293
3 154 4.454
5 251 2.835
5 218 5.006
5 231 5.007
2 76 4.078
2 104 3.899
2 72 3.6310
5 235 4.5811
3 130 3.5912
6
5
276
220
2.46
N.a.
14
13
7 309 1.3815
Tölfræði
Sao
Paolo
Brasilía
Tímasvæði
Tími á
hring
Tímatöku-
svæði
Rás-
mark
Hraða-
gildra
Lengd
Methringur
Sigurvegari árið 2011
VegalengdHringir
4,309 km
1:11.473
Juan Pablo Montoya (2004)
Mark Webber (Red Bull)
305,909 km71
DRS-svæði
(Má opna stillanlegan
afturvæng)
Afrein að þjónustusvæði
Hei ild: Formúla 1
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Vettel með níu
fingur á titlinum
Hart barist
Vettel er með
pálmann í
höndunum og
líklegur til að verja
heimsmeistaratitil
sinn í Formúlunni.
MyNd ReuteRs
Staðan í
Formúlu 1
Staðan eftir keppnina um helgina og
heildarstaða ökumanna og bílafram-
leiðenda.
RB
FR
ML
LT
MC
SB
FI
WL
TR
MR
CT
HR
440
367
353
302
136
124
99
76
22
0
0
0
Framleiðendur Stig
Topp 3 um síðustu helgi
Heildarstaðan
Ökumaður Lið Tími
1:35:55.269
+00:00.675
+00:39.229
ML
RB
FR
Ökumenn (Topp 10) Stig
273
260
206
190
167
163
107
96
93
66
ÞÝS
SPÁ
FIN
BRE
ÁST
BRE
BRA
FRA
ÞÝS
MEX
RB
FR
LT
ML
RB
ML
FR
LT
MC
SB
Red Bull
Ferrari
McLaren
Lotus
Mercedes
Sauber
Force India
Williams
Toro Rosso
Marussia
Caterham
HRT
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
1
2
3
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Lewis Hamilton
Sebastian Vettel
Fernando Alonso
Sebastian Vettel
Fernando Alonso
Kimi Raikkonen
Lewis Hamilton
Mark Webber
Jenson Button
Felipe Massa
Romain Grosjean
Nico Rosberg
Sergio Perez
Huntelaar
til Arsenal?
Klaas-Jan Huntelaar, hollenski
markahrókurinn hjá Schalke, er
orðaður við Arsenal þessa dag-
ana. Erik Meijer, sparkspekingur
Sky Sports, sagði fyrir leik Schalke
og Olympiakos á miðvikudags-
kvöld að hann hefði heimildir fyrir
því að Huntelaar yfirgefi herbúðir
þýska liðsins í janúar. „Samkvæmt
þeim upplýsingum sem ég hef
mun hann fara í vetur. Arsenal
er líklegast til að landa honum,“
sagði Meijer. Huntelaar var hins
vegar þögull sem gröfin eftir leik-
inn og sagði að Meijer byggi aug-
ljóslega yfir meiri upplýsingum
en hann sjálfur. Samningur Hun-
telaar rennur út í sumar og ætli
Schalke sér að fá einhvern aur
fyrir hann verður það að gerast í
janúar.
Allardyce vill
fá Beckham
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri
West Ham, segir að hann væri al-
veg til í að fá David Beckham til
félagsins. Beckham, sem er 37 ára,
staðfesti í vikunni að hann muni
yfirgefa Los Angeles Galaxy þann
1. desember næstkomandi og
getur hann því samið við nýtt lið
strax í janúar. Mörg félög vilja fá
Beckham, meðal annars lið í Kína,
Brasilíu og Ástralíu. Hvort Allar-
dyce verði að ósk sinni skal ósagt
látið en það verður þó að teljast
ólíklegt. Eitt er þó víst að hann
yrði ekki lengi að vinna stuðnings-
menn félagsins á sitt band.
Hugsar ekki
um sölu
Radamel Falcao, kólumbíski fram-
herjinn hjá Atletico Madrid, segir
að hann ætli ekki að láta vanga-
veltur um framtíð sína hafa áhrif
á sig. Falcao hefur farið gjörsam-
lega á kostum að undanförnu og er
einn allra heitasti framherji heims
um þessar mundir. Hann hefur að
undanförnu verið orðaður við félög
á borð við Chelsea og Manchest-
er City. „Það síðasta sem ég hugsa
um þessa dagana er sala. Ég er með
samning við Atletico og ég einbeiti
mér að fullu að mínu félagi,“ segir
Falcao. Hann hefur skorað 10 mörk
í 10 leikjum í spænsku deildinni
og auk þess skorað fimm mörk
í fimm leikjum með Kólumbíu í
undankeppni HM.