Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Qupperneq 60
Skrifaði bók
úti á Sjó
Hvað er að
gerast?
23.–25. nóvember
Föstudagur23
nóv
Laugardagur24
nóv
Sunnudagur25
nóv
Samstöðufundur
Félagið Ísland-Palestína boðar til sam-
stöðufundar á meðan Össuri Skarphéð-
inssyni utanríkisráðherra verða færðar
undirskriftir um 5.000 Íslendinga sem
krefjast þess að íslensk stjórnvöld setji
viðskiptabann á Ísrael meðan þarlend
stjórnvöld þverbrjóta alþjóðalög og
viðhalda áratugalöngu hernámi sínu í
Palestínu.
Stjórnarráð Íslands 17.00
Eilíf Maísól
Ragnheiður Maísól opnaði einkasýn-
inguna Eternal á Kaffistofunni, Hverfis-
götu 42, fimmtudaginn 22. nóvember.
Sýningin verður einnig opin föstudaginn á
milli kl. 16 og 18 en síðan ekki meir (Geir).
Kaffistofan 16.00
Fjallabræður í Háskólabíó
Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmanna-
eyja blása til tónlistarveislu til að fara
yfir samstarfið í tali og tónum og ekki
síst til að flytja og reka smiðshöggið á hið
frábæra verkefni sem Þjóðlagið er.
Háskólabíó 18.00– 21.30
Nashyrningarnir
Stúdentaleikhúsið í samstarfi við Norður-
pólinn sýnir eitt helsta verk Absúrdleik-
hússins, Nashyrningana, eftir franska
skáldið Eugéne Ionesco.
Norðurpóllinn 20.00
Söngskemmtun í Salnum
Það eru þeir Björn Thoroddsen gítarleikari
og Kristinn Sigmundsson stórsöngvari
sem standa að söngskemmtuninni
en með þeim á sviðinu verða Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona og Gunnar
Hrafnsson kontrabassaleikari. Það er því
einvalalið tónlistarmanna sem mun flytja
íslensk dægurlög eftir Jón Múla, Sigfús
Halldórsson, Oddgeir Kristjánsson og
fleiri ástsæl tónskáld.
Salurinn í Kópavogi 20.00
S
jónvarpsmaðurinn Auðunn
Blöndal leikur í þætti af
Spaugstofunni sem lík-
lega verður sýndur nú um
helgina. Þar fer Auðunn í gervi
vinar síns Pétur Jóhanns og túlkar
hinn umdeilda Tong Monitor.
Pálmi Gestsson deildi mynd af
Audda á fésbókarsíðu sinni. „Hefði
einhver sagt við mig sem gutti að
ég yrði sköllóttur 30 ára en myndi
hinsvegar leika í fimm sketsum í
sama þættinum af Spaugstofunni
32 ára hefði ég ekki verið að stressa
mig mikið af hárleysinu,“ skrifar
Auðunn undir myndina.
Auddi í Spaugstofunni
E
lma Lísa Gunnarsdóttir
leikkona og Reynir Lyng-
dal leikstjóri eiga von
á barni samkvæmt Séð
og heyrt. Þetta er þeirra fyrsta
barn en Elma Lísa er 39 ára og
Reynir 36 ára. Reynir á fyrir 10
ára dóttur og býr fjölskyldan í
Vestur bænum. Mikil hamingja
ríkir á heimili fjölskyldunnar.
Á
gúst Þór Ámundason
skrifaði fyrstu bók sína
úti á rúmsjó. Bókin sem
fjallar um mannshvarf
á Suðurnesjum og kall-
ast Afturgangan kom út á vegum
Tinds bókaútgáfu nú fyrir jól.
„Ég var á Kristínu ÞH 157 og
skrifaði þessa bók mestmegnis úti
á sjó og í landlegum á Djúpavogi,“
segir Ágúst í spjalli við DV. „Mað-
ur er að vinna 12 tímana, sex tíma
í senn.
Maður fer í rosalegar pælingar
þegar maður er að djöflast. Það
virðist vera að ég nái góðri ein-
beitingu í mestu vinnutörnun-
um og þá fór ég aftur og aftur yfir
þræði sögunnar.“
Ellilífeyrisþegi
Á milli vinnutarnanna skrifaði
hann, þó stundum hafi aðstæður
ekki verið þær allra bestu.
„Það gat gengið helvíti brösug-
lega í brælum að halda tölvunni
kyrri á borðinu þegar veltingurinn
var mikill.“
Þegar Ágúst Þór var í landleg-
um í Djúpavogi naut hann að-
stoðar Hrannar Jónsdóttur ellilíf-
eyrisþega við yfirlesturinn. „Hún
Hrönn hafði unnið lengi á kaffi-
stofu Vísis á Djúpavogi og var ný-
komin á ellilaun þegar ég var að
skrifa bókina. Hún fór nokkrum
sinnum yfir textann með mér og
drakk með mér kaffi á kaffistof-
unni,“ segir hann. „Ég er ánægð-
ur með að hafa kynnst henni, hún
er hagyrðingur mikill og var mér
mikil stoð.“
Með ritstíflu
Fyrir utan skrifin hefur Ágúst Þór
unnið sem aukaleikari í kvikmynd-
um og tónlistarmyndböndum. Þá
kom þriðja barnið í heiminn og
hann hefur að eigin sögn í nógu
að snúast. „Ég er reyndar haldinn
slæmri ritstíflu þessa dagana, von-
andi kemst ég hjá henni sem fyrst,“
segir hann og segir hana hvimleitt
fyrirbæri. „Ég fæ bara engar hug-
myndir!“ segir hann og andvarpar.
„Okkar þriðja barn kom í heiminn
í októbermánuði og ég hef verið að
taka að mér alls kyns aukahlutverk
í kvikmyndum og tónlistarmynd-
böndum. Síðast lék ég í mynd-
bandi fyrir franskan leikstjóra í
Fríkirkjunni og hafði gaman af.“
kristjana@dv.is
n Erfitt að skrifa í brælu n Nær góðri einbeitingu í vinnulotum
n Kynntist ellilífeyrisþega sem aðstoðaði við yfirlestur
60 Fólk 23.–25. nóvember 2012 Helgarblað
Skrifað á sjó Ágúst Þór
átti stundum erfitt með
að halda tölvunni kyrri í
mestu brælunni.
Eiga von
á barni
n Mikil hamingja á heimilinu