Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Page 61
Fólk 61Helgarblað 23.–25. nóvember 2012
É
g er hér í fríi úti í Noregi og
ætla að halda upp á daginn
með konunni og nánustu ætt
ingjum hér úti,“ segir Selfyss
ingurinn og gröfumaðurinn Eyþór
Björnsson sem verður fertugur á
sunnudaginn. Eyþór ætlar ekki að
halda stóra veislu í þetta skiptið.
„En við förum eflaust eitthvert út
að borða,“ segir hann og bætir við
að hann sé sáttur við að vera kom
inn á fimmtugsaldurinn. „Ég sé
engan mun á því,“ segir Eyþór sem
segist ekki vera mikið afmælis
barn. „Mér finnst samt alveg gam
an að halda stórar veislur, það er
alltaf inni í myndinni þótt það
verði ekki í ár.“
É
g ætla að eyða afmælisdegin
um í New York og er að fara
bara núna klukkan fimm. Ég
sit bara hérna á Panorama
bar,“ segir Magni Barðason sem
verður þrítugur á laugardaginn.
„Ég fékk þessa ferð í gjöf frá kon
unni, segjum það allavega. Við
erum að fara tvö saman og með
vinafólki okkar og verðum í fimm
daga í þessari borg,“ segir Magni
og bætir við að það sé planið
að gera eitthvað rómantískt á
afmælis daginn. „Ég hef farið einu
sinni áður til New York. Þetta er
náttúrulega snilldarstaður til að
eyða þessum degi.“
Magni mun því ekki halda partí
á sjálfan afmælisdaginn fyrir vini
og vandamenn. „Það verður þá
ekkert fyrr en helgina á eftir,“ seg
ir hann en neitar því að vera mikið
afmælisbarn. „Ég er sjómaður og
það kemur oft fyrir að maður sé úti
á sjó þegar afmælið rennur upp.“
Hann segist ekki eiga erfitt með
þá tilhugsun að vera kominn á fer
tugsaldurinn. „Það er samt pínu
skrítið. Sérstaklega þar sem ég er
bara tvítugur í anda.“
Heldur upp á
daginn í Noregi
Fékk ferðina
í afmælisgjöf
Eyþór Björnsson verður fertugur á sunnudaginn
Magni Barðason dvelur í New York á afmælinu
V
ið ætlum að vera óskap
lega virðuleg,“ segir Guð
laug Elísabet Ólafsdóttir
en hún og Þorsteinn Guð
mundsson verða aðal
kynnar á degi Rauða nefsins þann
7.desember næstkomandi í söfn
unar og skemmtiþætti í opinni
dagskrá Stöðvar 2.
Gefa vinnu sína
Það er óvíst að Guðlaug og Þor
steinn haldi það lengi út að vera
virðuleg enda alþekkt fyrir uppi
stand og skrípalæti. Þau mættu
á morgunfund í höfuðstöðv
ar UNICEF á Laugavegi þar sem
lögð voru drög að skemmtiþættin
um. „Þó að tilefnið sé sorglegt, því
sveltandi börn eru jú ekki ánægju
legt viðfangsefni þá verður þetta
skemmtileg dagskrá, segir Guðlaug.
Það verður eitthvað fyrir alla,“ segir
hún. „En með átakinu vill UNICEF
gleðja alla landsmenn og vekja
um leið athygli á þeirri neyð sem
steðjar að milljónum barna um
heim allan. Við ætlum öll að gefa
vinnu okkar, segir Guðlaug og vís
ar í alla þá þjóðþekktu einstaklinga
sem munu koma fram á skemmti
kvöldinu.“
Árviss viðburður
Dagur rauða nefsins er árviss við
burður hjá UNICEF á Íslandi. Hann
ber í ár upp á 7.desember en nú í
dag, föstudag, hefst hin árlega sala
á rauðum nefjum UNICEF.
Nefin í fyrra, þau Skotta, Skrepp
ur og Skjóða, nutu gríðarlegra vin
sæla hjá landsmönnum en nefin í
ár koma í litlum glösum sem inni
halda ráðlagðan dagskammt fyrir
þá sem vilja bæta heiminn.
Nefin kosta 1000 krónur og eru
fáanleg í Bónus, Hagkaup, MP
banka, Domino´s og á kaffihúsum
Te og Kaffis.
Kærleikurinn og jólin
Guðlaug segist finna til sín að fá að
vera með í átakinu sem hefur skil
að miklu til barna í neyð síðustu
ár og segir kærleikann vera hinn
sanna jólaanda. „Ég er nú slök í
jólaskrautinu og undirbúningn
um. Tek bara fram þetta klassíska
skraut og kveiki á mikið af kertum í
skammdeginu. Það er kærleikurinn
sem hringir inn jólin,“ segir þessi
geðþekka gamanleikkona.
kristjana@dv.is
Ráðlagður dag-
skammtur af gleði
n Guðlaug Elísabet og Þorsteinn Guðmundsson gefa vinnu sína
Sprella fyrir góðum
málstað Guðlaug og
Þorsteinn verða aðal-
kynnar á degi Rauða
nefsins og lofa miklu og
skemmtilegu sprelli.
V
ið höldum þessa tónleika af
því að Arnar hefði orðið þrí
tugur þann 10. desember,“
segir Árni Ingi hjá Slark Clot
hing sem ætlar, ásamt fjöl
skyldu og vinum snjóbrettakappans
Arnars Freys Valdimarssonar sem
lést langt fyrir aldur fram árið 2006,
að halda minningartónleika þann 7.
desember.
Á tónleikunum koma fram meðal
annars Brain Police, Lára Rúnars og
Champions of Death en um hljóm
sveitir sem tengjast fjölskyldu Arnars
og vina er að ræða auk þess sem fleiri
sveitir eiga eftir að bætast við. „Þetta
verður startið á nýju slarki og það
verður frítt inn og allir sem þekktu
Arnar eru velkomnir,“ segir Árni Ingi
en hann og félagar hans vilja með
þessu heiðra minningu „Snáksins“
eins og Arnar var jafnan kallaður.
Brettafélag Íslands ætlar einnig
að veita styrk í nafni Arnars. „Jibb‘n
Skate á heiðurinn að þessum styrk
sem verður veittur einhverjum jaðar
íþróttaiðkanda. Það eina sem þarf til
að sækja um er metnaður og vilji til
að koma sér áfram. Þennan pening á
að nota í sportið en ekki á djamminu,“
segir Árni og bætir við að þar sem
snjóbrettaiðkun sé ekki viðurkennd
íþrótt á Íslandi sé erfitt að sækja um
styrki. „Það eru samt ekki bara snjó
brettakrakkar sem geta sótt um held
ur allir sem eru í einhvers konar jaðar
íþrótt. Öllu nema boltaíþróttum.“
Athygli vekur að í umsókn styrksins
sem er að finna á síðunni brettafelag.
is er spurt hvort viðkomandi reyki eða
drekki. Árni Ingi segir þau svör þó
ekki afgerandi í ákvörðunartöku. „Það
er bara mjög gott að fá að sjá hvað fólk
er að pæla og hvar metnaðurinn ligg
ur,“ segir hann en bætir við að ætlunin
sé ekkert endilega að reyna að breyta
ímynd jaðaríþróttamannsins sem oft
og tíðum er tengd djammi og sukki.
„Það eru alltaf tvær hliðar á þessari
ímynd, annars vegar er það keppnis
maðurinn sem er eins og hver ann
ar ólympíufari og svo hinn sem hef
ur bara gaman að. Þetta sport hefur
alltaf verið svona og ég held að því
verði ekki breytt. Hver og einn verður
bara að velja sína leið.“
indiana@dv.is
n Minningartónleikar og styrkveiting í nafni Arnars Freys
Heiðra minningu „SnákSinS“
Heiðra vin sinn
Vinir og fjölskylda
Arnars ætla að
halda tónleika
fyrir alla sem
þekktu hann.
Arnar Hefði orðið
þrítugur þann 10.
desember.
n Mikil hamingja á heimilinu
Þ
orkell Magnússon, hand
boltakappi í FH og sál
fræðinemi við Háskólann í
Reykjavík, varð 22 ára þann
22. nóvember. Þorkell, eða Kalli
eins og hann er alltaf kallaður,
segist þó lítið geta notið afmælis
dagsins vegna anna í boltanum og
skóla. Hann hóf afmælisdaginn á
próflestri og lýkur honum á sama
hátt. Þess á milli hitti hann systur
sína í hádegismat og tókst á við
Valsmenn í N1 deildinni. „Við tök
um þennan leik og vinnum hann
með sex mörkum,“ segir Kalli
bjartsýnn en hann var að mæta í
Kaplakrika þegar DV náði tali af
honum og var til í slaginn. „Ég ætla
bara að læra og keppa . Ég fagna
svo vonandi sigrinum með bókun
um í kvöld í Háskólanum í Reykja
vík. Ég held ég geymi að halda
upp á daginn þangað til eftir að
þessum prófum lýkur,“ segir hann.
Líklegt er þó að besta afmælisgjöf
in sé að besti vinur hans, Ólafur
Guðmundsson handboltakappi
og kona hans eignuðust sitt fyrsta
barn á afmælisdaginn.
Eyðir deginum með
bókum og bolta
Þorkell Magnússon handboltakappi er 22 ára