Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 8

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 8
Náttúrufræðingurinn 92 Fjölriti Náttúrufræðistofnunar 53.17 Ferðaleiðir Japetusar Steenstrup 1839–1840 hefur Þorvaldur Thor- oddsen tekið saman.12 Athuganir á áfangaskrám Jón- asar, dagbókum, minnisblöðum, sendibréfum og dagsetningum í steinasöfnum hans1,2 leiða í ljós að hugsanlega hafi 40–50 dagar á hverju ári, að undanskildu árinu 1840, nýst honum að einhverju leyti til náttúrufræðilegra athugana utan Reykjavíkur, hvort sem um var að ræða rannsóknir á ákveðnum stöð- um, sýnatöku, gerð uppdrátta eða einfaldlega landslagsathuganir af hestbaki. Flestir hafa dagarnir verið 1840, árið sem Jónas ferðaðist um vesturhluta landsins með Steenstrup, hugsanlega allt að 80. Hér er sam- anlagt um verulegan tíma að ræða, og mun óhætt að fullyrða að enginn náttúrufræðingur hafi áður varið jafnlöngum tíma til útirannsókna á náttúru Íslands. Það sést (3. mynd) að Jónas hefur farið mjög víða miðað við það sem þá hafði tíðkast. Best hefur hann kannað vesturhluta landsins og Mið-Norðurland. Norðausturland hefur hins vegar orðið nokkuð út- undan. Þess ber þó að geta að Jónas sigldi með ströndum Norðaustur- lands á leið frá Kaupmannahöfn til Akureyrar sumarið 1839 og festi þá ýmsar jarðfræðilegar athuganir á blað.1b Mestallt miðhálendið verður einnig útundan hjá Jónasi. Það er eftirtektarvert að Jónas seg- ir í bréfi til Páls Melsteð í október 1842 að hann sé „búinn að sjá allt land, nema eitthvað af Langanes- ströndunum“.1c Þarna er Jónas greinilega með hugann við byggð- ir landsins. Ástæða þess að hann leggur leiðir sínar einkum um byggðir er líklega helst sú að verk- efnið Lýsing Íslands (sjá bls. 102) er honum ætíð ofarlega í huga, þótt vanefni til ferðalaga í óbyggðum kunni að hafa ráðið einhverju. Jónas hefur þurft að reka erindi Hins íslenska bókmenntafélags við presta og sýslumenn. Í dagbók- inni 1842 nefnir hann beinlínis að hann fari um byggðir sunnan jökla vegna Bókmenntafélagsins og áætlaðrar lýsingar landsins. Annað sem ræður ferðamáta Jónasar er sú staðreynd að hann var ekki mikill göngugarpur. Hann var þungur á fæti og gekk sjaldan á fjöll. Þá er ljóst að Jónas bjó við skerta heilsu eftir ferðina um Nýjabæjarfjall milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar í ágúst 1839.16 Þetta hefur háð honum all- mikið við rannsóknirnar. Svo virðist sem Helgafell í Vestmannaeyjum (226 m) hafi verið hæsta fjall sem Jónas kleif á rannsóknarferðum sínum (5. júní 1837), annars hafi hann jafnan verið á hestbaki. Lausleg athugun á ferðalögum Eggerts Ólafssonar18 1750 og 1752– 1757 og Sveins Pálssonar19 1791– 1797 bendir til að Jónas hafi náð að fara um stærra svæði en þeir, og hefur hann því líklega fengið meiri yfirsýn. Öðrum náttúrufræðingum er vart til að dreifa til samanburðar. Enginn náttúrufræðingur tók Jónasi Hallgrímssyni fram í þessu fyrr en Þorvaldur Thoroddsen kom til sög- unnar tæplega hálfri öld seinna. Í II. bindi af seinni útgáfu Ferðabókar Þorvalds Thoroddsen20 má til sam- anburðar sjá kort sem Jón Eyþórsson tók saman yfir ferðaleiðir Þorvalds á Íslandi 1882–1898. Söfnun náttúrugripa Jónas Hallgrímsson hefur safnað miklum fjölda náttúrugripa á ferðum sínum. Umfram allt voru þetta sýnis- horn bergtegunda og steinda, sem hann safnaði gagngert fyrir J. G. Forch- hammer, forstjóra jarðfræðideildar Universitetsmuseet í Kaupmanna- höfn, en einnig var um að ræða tölu- vert af surtarbrandi og plöntustein- gervingum. Kassar með steina- og surtarbrandssýnum sem Jónas hefur sent til Kaupmannahafnar eða tekið með sér hafa skipt mörgum tugum. Til dæmis má nefna að sumarið 1841 sendi hann til Universitetsmuseet átta kassa með steinum og surtar- brandi frá Hafnarfirði, Reykjavík, Húsafelli, Hvammi í Norðurárdal, Búðum á Snæfellsnesi, Ólafsvík, Helgafelli og Akureyri.1d Og eftir komu sína í silfurbergsnámuna við Helgustaði í Reyðarfirði í ágúst 1842 lætur hann ganga frá sjö steina- kössum til sendingar frá Eskifirði til Universitetsmuseet.1e Þegar þeir Japetus Steenstrup og Jónas ferðuðust saman árið 1840 virðist sá fyrrnefndi að mestu hafa séð um söfnun náttúrugripa. Axel Garboe segir í riti sínu Geologiens Historie i Danmark 21 að mikill fjöldi sýna (‘store samlinger’) af tertíerum plöntusteingervingum hafi verið sendur til Kaupmannahafnar eftir rannsóknarförina 1840, og A. Noe- Nygaard ítrekar að Universitets- museet hafi þá fengið hið stóra safn 3. mynd. Ferðaleiðir Jónasar Hallgrímssonar á árunum 1837 og 1839–1842. 78 3-4 LOKA.indd 92 11/3/09 8:32:44 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.