Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 47

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 47
131 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags fór yfir 5 cm. Þekja hraungambra og fjallagrasa (Cetraria islandica) sýndi sterk og neikvæð tengsl við sand- þykkt, bæði á óábornu og ábornu landi (8. mynd). Hraungambri hafði mesta útbreiðslu af lágplöntum og fannst í reitum með allt að 10 cm þykkum foksandi. Þekja krækilyngs og bláberjalyngs sýndi sterkt nei- kvætt samband við sandþykkt á óábornu landi. Bláberjalyng þoldi meiri sandþykkt en báðar tegundir voru horfnar að mestu þar sem þykkt var meiri en 10 cm (8. mynd). Tvíkímblaða blómjurtir létu undan síga við aukna sandþykkt en þekja þeirra var yfirleitt lítil; t.d. sýndi geldingahnappur (Armeria maritima) sterk neikvæð tengsl við sandþykkt. Þekja hálfgrasa minnkaði við aukna sandþykkt og höfðu tegundirnar þursaskegg (Kobresia myosuroides), stinnastör (Carex bigelowii) og móa- stör (Carex rupestris) neikvætt og marktækt samband við sandþykkt á óábornu landi (8. mynd). Tegundir sem héldu þekjuhlut- deild sinni með aukinni sandþykkt sýndu ekki marktækt samband við sandþykkt á óábornu landi. Það voru einkum runnategundir, blómjurtir og grös. Grasvíðir (Salix herbacea), loðvíðir og fjalldrapi sýndu ekki marktækt samband við sandþykkt. Þekja fjalldrapa var mikil í reitum en loðvíðir fannst aðeins í fáum reitum og hafði litla þekju. Blómjurtirnar kornsúra (Bistorta vivipara) og brjós- tagras (Thalictrum alpinum) þrifust vel óháð sandþykkt. Samband þekju blásveifgrass, blávinguls (Festuca vivipara) og týtulíngresis (Agrostis vinealis) og sandþykktar var ekki marktækt á óábornu landi. Aðeins ein tegund, túnvingull, sýndi jákvætt og marktækt samband við sandþykkt á óábornu landi (8. mynd). Þekja hans jókst þegar sand- þykkt fór yfir 10 cm. Á ábornu landi var þekja lágpl- antna minni en í óábornum reitum. Sterkt neikvætt samband var á milli þekju hraungambra og fjallagrasa og sandþykktar. Smárunnar og stinna- stör sýndu sterkt neikvætt samband við sandþykkt í ábornum reitum og svöruðu ekki áburðargjöf. Samband þekju geldingahnapps, þursaskeggs og móastarar og sandþykktar var ekki marktækt á ábornu landi. Brjósta- gras sýndi neikvætt samband við sandþykkt í ábornum reitum. Runn- arnir grasvíðir, loðvíðir og fjalldrapi, grösin blásveifgras, blávingull og týtulíngresi, auk kornsúru, sýndu ekki marktækt samband milli þekju og sandþykktar (8. mynd). Grös sýndu jákvæða svörun við áburði og var þekja þeirra mun meiri á ábornu landi en óábornu, en samband við sandþykkt var ekki marktækt. Áhrif sandþykktar á gróðurfars- breytileika Niðurstöður DCA-hnitunar sýndu að megingróðurbreytileika í áfoks- geiranum í Sandvík mátti fyrst og fremst rekja til sandþykktar. Sterk fylgni var á milli sandþykktar og staðsetningar reita á 1. hnitunarási (R2 = 0,51; P<0,001; n=80). Fylgni sandþykktar og stöðu á 2. og 3. ási var í báðum tilfellum mun minni 8. mynd. Meðalþekja tegunda árið 2007 (þekjugildi umbreytt með log (1+x)) flokkuð eftir meðalsandþykkt. Í efri röð eru óábornir reitir og ábornir reitir í neðri röð. Marktækt samband þekju og sandþykktar (aðhvarfsgreining) er gefið við hverja súlu, *P<0,05; **P<0,01; ***P<0,001; EM ekki marktækt, einnig kemur fram fjöldi reita sem tegund fannst í. Breidd súlunnar er í hlutfalli við meðalþekju teg- undar fyrir hvern sandþykktarflokk. Tegundum er skipt í hópa eftir viðbrögðum við aukinni sandþykkt á óábornum reitum: I) þekja minnkar, II) þekja breytist lítið og III) þekja eykst. − The average total cover of species in 2007 (the cover values were logarithmically transformed, log (1+x)) classified by average sand thickness. The upper row shows unfertilized sampling plots and fertilized plots are in the lower row. Levels of significance between species cover and sand thickness (linear regression) is given below each column: *P<0,05; **P<0,01; ***P<0,001; EM not significant, number of sampling plots with species is also shown. The width of each column corresponds to the proportion of the average cover of species for each level of sand thickness. Species are grouped according to the response to increased sand thickness: I) decreased cover, II) neglegent changes in cover and III) increased cover. 78 3-4 LOKA.indd 131 11/3/09 8:33:25 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.