Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 28

Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 28
Náttúrufræðingurinn 112 Jarðvegsflokkar skilgreindir Jarðvegi landsins er skipt í fjóra meginflokka, en tveir þeir fyrstu tilheyra báðir eldfjallajörð (Andosol). Flokkarnir fjórir eru: 1) sortujörð sem einkennist af allófani og lífræn- um efnum á grónu landi (brúnjörð, votjörð og svartjörð); 2) glerjörð sem einkennir auðnir og lítið þroskaðan jarðveg (Vitrisol); 3) mójörð sem er lífræn mómold; og að síðustu 4) annar jarðvegur (3. mynd). Áfok og grunnvatnsstaða eru notuð til að skýra skiptingu á sortu- jörð og mójörð í jarðvegsflokka (4. mynd). Aðgreining þeirra byggist á magni lífræns kolefnis í jarðvegi og grunnvatnsstöðu. Ennfremur eru flokkar kerfisins sýndir á 5. mynd og hvernig sýrustig, leirinnihald og lífrænt innihald tengjast innbyrðis, byggt á mælingum í gagnagrunni LbhÍ.15,35,36 Sé jarðvegurinn með >20% C að meðaltali í efstu 30 cm telst hann til mójarðar (Histosol). Mýrajarðvegur með fremur mikið af lífrænum efnum (>12–20%), þar sem bæði lífræni hlutinn og sortu- eiginleikar (e. andic properties) eru ráðandi, er nefndur svartjörð (Histic Andosol). Sé hins vegar <12% C í jarðvegi votlendis telst hann til votjarðar, sem hefur fyrst og fremst einkenni eldfjallajarðar auk þess að vera votlendi. Brúnjörð er hins vegar hin dæmigerða mold þurr- lendis og á sér margar hliðstæður á eldfjallasvæðum jarðar. Vert er að ítreka að svartjörðin, votjörðin og brúnjörðin mynda flokkinn sortujörð sem telst til eldfjallajarðar (Andosol), en mójörðin er lífrænn jarðvegur og nefnist Histosol í alþjóðlegum flokkunarkerfum. Íslensk mójörð er þó sérstök fyrir það að oft er umtalsvert magn gjóskuefna í jarðveginum, en önnur mójörð á norðurslóðum er oft mjög lífræn og snauðari af bergefnum. Vakin er athygli á að skil eldfjallajarðar (þ.e. svartjarðar; Histic Andosol) og mójarðar eru dregin við 20% C. Alla- jafna eru skilin dregin á milli mójarð- ar og ólífræns jarðvegs við 12–18% C (háð leirmagni o.fl. þáttum). En vegna sérstakra eiginleika eldfjalla- jarðar og myndunar málm-húmus knippa eru skilin höfð hærri fyrir eldfjallajörð samkvæmt bandaríska Soil Taxonomy kerfinu (25% C), en svo er ekki samkvæmt núverandi WRB-kerfi er varðar skil á milli jarðvegsflokkanna. Því telst svar- tjörðin til Andisol samkvæmt Soil Taxonomy en Histosol samkvæmt WRB. Þetta er bagalegur munur á milli kerfanna sem væntanlega verður leiðréttur með einhverjum hætti síðar. Við höfum notað 20% skilin (nær Soil Taxonomy), en töluverð endurskoðun þarf að fara fram verði mörkin á milli mójarðar og svartjarðar færð upp í 25% C. Þá er votjörðin (Gleyic Andosol) talin til eldfjallajarðar en ekki „Gleysols“ (gljáajörð hjá Þorsteini Guðmunds- syni), og er það í samræmi við „Soil 4. mynd. Flokkun íslensks jarðvegs á grónu landi. Magn áfoks eykst upp grafið (y-ás), en x-ásinn gefur til kynna jarðvegsraka, land er blautt vinstra megin en þurrt til hægri. Ásar í miðju grafsins sýna þrjá meginása myndunar eldfjallajarðar. Þar sem áfok er minnst er moldin rík að allófani á þurrlendi (ás niður til hægri, allófanrík brúnjörð), en lífrænn sé hann blautur fjarri áfoki (ás niður til vinstri, svart- jörð og mójörð). Þar sem áfok er mest er jarðvegurinn glerkenndur (ör upp, vitric), en bæði brúnjörð og votjörð geta verið lítið mótaðar og ríkar að gjóskuefnum. Lítið mótaður jarðvegur á auðnum er glerjörð. – Schematic graph showing the division of Andosols and Vitrisols, based on the amount of eolian input (y-axis) and drainage (x-axis). Organic content separates the soils on the x-axis. Dry soils with little eolian input are allophanic, but become organic under poor drainage. Soils that are highly influenced by eolian inputs become vitric in nature and the soils of the deserts are Vitrisols. The three arrows indicate these three main soil forming directions. 78 3-4 LOKA.indd 112 11/3/09 8:32:53 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.