Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 48
Náttúrufræðingurinn
132
og ekki marktæk. Á 1. ás raðast
reitir frá óröskuðu mólendi (vinstra
megin á grafinu) til reita með þykk-
um foksandi og grasleitari gróðri
(hægra megin á grafi) (9. mynd).
Ábornu reitirnir raðast fyrir miðju
grafsins og til hægri út eftir 1. ás.
Breytileikinn sem fram kemur á 2.
ási reyndist vera tengdur rakastigi
og örlandslagi. Neðarlega á ásnum
skipuðust tegundir sem þrífast efst á
þúfnakollum og í rofdílum, svo sem
holtasóley (Dryas octopetala), hraun-
gambri og móastör, en ofar á honum
eru tegundir sem þrífast í lægðum
þar sem raki er meiri, t.d. týtulín-
gresi, stinnastör og mosinn móasigð
(Sanionia uncinata). Ekki verður fjallað
frekar um þennan breytileika.
Fylgni gróðurþekju við 1. ás
var marktækt neikvæð (R2 = 0,13;
P<0,01; n=80). Einnig var sterkt
neikvætt samband á milli tegunda-
fjölda og 1. áss þannig að tegundum
fækkaði til hægri eftir ásnum (R2 =
0,41; P<0,001; n=80).
Fylgni tegundafjölda og heildar-
þekju við sandþykkt gaf svipaða
útkomu og fylgnin við 1. ás DCA-
hnitunar. Tegundafjöldi minnkaði
marktækt með aukinni sandþykkt
á óábornu (R2 = 0,55; P<0,001; n=40)
og ábornu landi (R2 = 0,49; P<0,001;
n=40). Gróðurþekja sýndi sterka og
neikvæða fylgni við sandþykkt á
óábornu (R2 = 0,45; P<0,001; n=40)
og ábornu landi (R2 = 0,40; P<0,001;
n=40).
Hnitunin gaf vel til kynna breyt-
ingu í gróðri reita milli 2003 og 2007
og áhrif sandþykktar og áburðar á
hana. Í óábornum reitum var meðal-
tilfærsla reita með 0−2,5 cm þykk-
um sandi mjög lítil en það gefur til
kynna litlar breytingar milli ára í
mólendinu (10. mynd t.v., 11. mynd a).
Meðaltilfærsla eykst með aukinni
sandþykkt og er mest í reitum þar
sem sandþykkt fór yfir 10 cm (11.
mynd b). Í reitum með 10 cm þykk-
um foksandi hafa því orðið miklar
breytingar í tegundasamsetningu
reitanna. (10. mynd t.v.). Að jafnaði
var færsla mikil á öllum ábornum
reitum og sýnir það að áburðargjöf
breytir gróðursamsetningu mikið
óháð sandþykkt (10. mynd t.h., 11.
mynd c). Sérstaklega urðu miklar
breytingar á gróðri í reitum með
þunnum eða engum foksandi.
Umræður
Virkt vindrof við strendur
Blöndulóns
Við mælingar árið 2003 voru þrjú
ár liðin frá myndun áfoksgeirans
í Sandvík. Þær endurspegla því
ástandið nokkru eftir setmyndun
en líklegt er að sandþykkt og gróð-
urþekja hafi breyst á þessum árum
líkt og niðurstöður DCA-hnitunar
benda til. Aukin sandþykkt á tilrauna-
sniðum við endurteknar mælingar
árið 2007 sýnir að vindrof er mjög
virkt við Blöndulón, þar sem sandur
berst með vindi inn á gróið land upp
úr lónstæði þegar vatnsborð er lágt.
Líklega hefur foksandur aukist mest
í miklu hvassviðri í byrjun júní 2005,
þegar 0,49 ha áfoksgeiri myndaðist.2
Auk þess er mögulegt að bæst hafi
í foksandinn næst lónstæðinu síðar
enda er svæðið vindasamt og þurrt.
Þykktaraukning var mest á sniði
C og D og ber því ágætlega saman
við útbreiðslu foksands árið 2005.
Dreifing fokefnis var staðbundin
og greinilega háð vindátt upp frá
upptakasvæði foksandsins. Sandur
var þykkastur 10−15 m inni á snið-
unum en ekki næst upptakasvæðinu.
Ástæðan er sú að sandurinn stöðvast
í gróðri, einkum í hávöxnum gróðri
á borð við fjalldrapa. Afar lítill gróð-
ur vex nú næst fjöruborðinu og því
er lítið sem bindur foksandinn þar.
Líkt og fjölmargar rannsóknir sýna
þá getur hrjúft yfirborð og gróður
stöðvað framrás fokefnis11,15,47 og
hefur þýft mólendið, ásamt þéttum
fjalldrapabrúskum sem einkenna
gróðurfar við Blöndulón, einmitt
þau áhrif. Næst lóninu hefur fok-
efnið nú fyllt upp lægðir milli þúfna
og á því greiðari aðgang lengra inn
í gróðurlendið. Með þessu móti geta
áfoksgeirar stækkað smám saman
og eytt gróðri verði uppspretta
9. mynd. Niðurstaða DCA-hnitunar fyrir reiti (punktar) frá 2003 og 2007 byggð á þekju allra
tegunda í 80 reitum. Örvar tákna færslu reita milli mæliára en mikil færsla gefur til kynna
miklar breytingar á tegundasamsetningu í reit. − The results of the DCA-ordination for
sampling plots (points) from 2003 and 2007 based on total cover of all species recorded
within the 80 sampling plots. The arrows represent the changes in species composition between
the measuring year;, the longer the arrow the larger the change in species composition.
78 3-4 LOKA.indd 132 11/3/09 8:33:25 AM