Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 67
151
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Kári Gautason
Darwin og áhrif
þróunarkenningar hans
á vísindi og samfélög
Inngangur
Charles Darwin er eitt af stærstu
og þekktustu nöfnunum í vísind-
um. Hann hefur haft mikil áhrif
á vísindin sem heild. Verk hans
Uppruni tegundanna (On the origin
of species1) er ennþá skyldulesning
fyrir líffræðinga, 150 árum eftir að
hún kom fyrst út, enda markaði
það að vissu leyti kaflaskil í sögu
vísindanna. Þrátt fyrir að kenning-
ar hans um náttúruval væru ekki
teknar að fullu í sátt fyrr en með
uppgötvun erfðafræði á fjórða og
fimmta áratug síðustu aldar, var það
að mestu leyti viðurkennt að lífið
hefði orðið til með þróun, ekki með
sköpun. Grundvöllur erfðafræði
í dag byggir á kenningunni um
náttúruval og rennir því sterkum
stoðum undir kenningu Darwins.
En áhrif Darwins lágu kannski ekki
síst í grundvallarhugarfarsbreytingu
sem varð meðal fólks til vísinda.
Þ.e. að koma því á framfæri að vís-
indin væru vettvangur til að svara
grundvallarspurningum um tilveru
mannsins.
Í Englandi á 19. öld voru vísinda-
menn látnir óáreittir ef þeir beindu
kröftum sínum í hinn náttúrulega
heim, lýstu hlutum og köfuðu grunnt.
En um leið og þeir fóru að hreyfa við
dýpri spurningum sem vörðuðu
grundvallarsýn manna á heiminn
kölluðu þeir yfir sig reiði samfélags-
ins. Þetta voru spurningar á borð
við: Hver erum við, hvaðan komum
við, hvenær og hvernig? Kirkjan og
aðrar íhaldssamar stofnanir helltu
úr skálum reiði sinnar yfir framsýna
vísindamenn. Vegna svona viðhorfa
þorðu vísindamenn ekki að koma
fram undir nafni þegar þeir settu
fram djarfar kenningar.a Darwin
varð fyrir því að kenning hans var
kölluð apakenningin, skrípamynd-
ir af honum birtust í blöðum og
haldnar voru bókabrennur með bók
hans. Andrúmsloftið var því ekkert
sérlega hvetjandi fyrir skapandi
hugsun. Eftir að Darwin hafði staðið
upp (eða vinir Darwins – Darwin
sjálfur tók lítinn þátt í deilunum) og
tekist á við niðurrifsöflin þá varð
fordæmi hans til þess að hvetja aðra
vísindamenn til að vera óhræddir
við að viðra kenningar sínar.
1. mynd. Charles Darwin.
Náttúrufræðingurinn 78 (3–4), bls. 151–158, 2009
a Robert Chambers, sem gaf út Vestiges of Natural History, varð fyrir því að Edinborough Review eyddi heilu tölublaði, 85 blaðsíðum, í að tæta rit hans í sundur.2
78 3-4 LOKA.indd 151 11/3/09 8:33:46 AM