Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 76
Náttúrufræðingurinn
160
Fyrir aðalfundinn var lögð fram
breytingartillaga um 7. grein sam-
þykkta Hins íslenska náttúrufræði-
félags og var tillagan samþykkt
einróma. Tillagan var send félags-
mönnum með fundarboðinu. Grein-
in sem var til umfjöllunar fjallar um
aðalfund félagsins og var tilgangur
breytingartillögunnar sá að unnt
verði í framtíðinni að boða til fund-
arins rafrænt. Fyrir breytinguna
hljóðaði 7. greinin:
„Aðalfund félagsins skal halda í
febrúar ár hvert, og skal dagskrá
hans vera sem hér segir:
a. Skýrt frá helstu framkvæmdum
á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins.
c. Kosin stjórn og tveir skoðunar-
menn reikninga og einn skoðunar-
maður til vara.
d. Önnur mál.
Aðalfund skal boða bréflega með
hæfilegum fyrirvara þeim félags-
mönnum, sem búa í Reykjavík og
nágrenni. Aðalfundur er lögmætur,
ef löglega er til hans boðað. Á fund-
inum ræður einfaldur meirihluti
úrslitum í öllum málum öðrum en
þeim, er varða lagabreytingar. Til
þess að lagabreytingar öðlist gildi,
þurfa þær að vera samþykktar með
minnst 2/3 hluta atkvæða. Tillögu
til lagabreytinga má því aðeins taka
til afgreiðslu á aðalfundi, að hún
hafi borist félagsstjórn fyrir áramót
og verið kynnt félagsmönnum í
fundarboði. Þó má hvorki breyta
ákvæðum 2. gr. né 10. gr.“
Eftir breytinguna hljóðar 7. greinin
(setningin sem breyttist sýnd hér
skáletruð):
„Aðalfund félagsins skal halda í
febrúar ár hvert, og skal dagskrá
hans vera sem hér segir:
a. Skýrt frá helstu framkvæmdum
á liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins.
c. Kosin stjórn og tveir skoðunar-
menn reikninga og einn skoðunar-
maður til vara.
d. Önnur mál.
Aðalfund skal boða félagsmönnum
með bréfi eða tölvupósti með a.m.k.
tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur
er lögmætur, ef löglega er til hans
boðað. Á fundinum ræður einfaldur
meirihluti úrslitum í öllum málum
öðrum en þeim, er varða lagabreyt-
ingar. Til þess að lagabreytingar
öðlist gildi, þurfa þær að vera
samþykktar með minnst 2/3 hluta
atkvæða. Tillögu til lagabreytinga
má því aðeins taka til afgreiðslu
á aðalfundi, að hún hafi borist
félagsstjórn fyrir áramót og verið
kynnt félagsmönnum í fundarboði.
Þó má hvorki breyta ákvæðum 2.
gr. né 10. gr.“
Stjórnin lagði fyrir aðalfundinn
þrjár ályktanir og gerði Hreggviður
Norðdahl grein fyrir ályktun um
Náttúruminjasafn Íslands, Hilmar J.
Malmquist fyrir ályktun um Grön-
dalshús og Kristín Svavarsdóttir
fyrir ályktun um birkiskóga. Eftir
nokkrar umræður voru ályktanirnar
um Náttúruminjasafn og birkiskóga
samþykktar samhljóða og stjórn-
inni falið að gera smávægilegar
orðalagsbreytingar á ályktuninni
um Gröndalshús auk þess að ljúka
greinargerð með ályktuninni um
birkiskóga.
Ályktun um Náttúruminjasafn 1.
Íslands:
„Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags, haldinn 23. febrúar
2008 í Kópavogi, fagnar setningu
laga um Náttúruminjasafn Íslands
vorið 2007 og vonast til þess að
málefni þess séu loksins komin í
góðan farveg. Jafnframt er minnt
á ályktanir fyrri aðalfunda félags-
ins til margra ára um málefni
Náttúruminjasafns Íslands, höfuð-
safns íslensku þjóðarinnar í nátt-
úrufræðum, sem félagið hefur sett
á oddinn í meira en heila öld. Hið
íslenska náttúrufræðifélag hvetur
menntamálaráðherra og aðra hlut-
aðeigandi aðila til að beita sér
næstu árin af fullum þunga fyrir
því að ráðast í byggingu veglegs
náttúruminjasafns, sem hafi aðset-
1. mynd. Bæjarstaðaskógur. Ljósm.: Kristín Svavarsdóttir.
78 3-4 LOKA.indd 160 11/3/09 8:33:52 AM