19. júní - 19.06.2015, Blaðsíða 107
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 105
sértækum málefnum.
Aukin og virk samvinna eldri og
yngri kynslóða femínista og aukin og
virk samvinna hinna ýmsu kvenna
samtaka sem vinna að sértækum málum
er nauðsynleg til að skapa samfélag sem
byggist á jafnrétti kynjanna.
Til þess að tryggja þróun kvenna
hreyfingarinnar og framtíð femínískra
hugmynda á Norðurlöndunum þurfum
við að tryggja að raddir allra hópa og
hagsmunaaðila fái að heyrast, og að
standa saman á bak við sameiginlegar
kröfur. Kvennahreyfingin verður að vera
virk í að ræða og viðurkenna mismun inn
á við, og á sama tíma standa með hver
ann arri og sýna virkan stuðning út á við.
Nordiskt Forum Malmö 2014 – New
Action on Women‘s Rights er staðfest
ing á því að kvennahreyfingin stendur
staðföst og óhvikul, ákveðin í að sporna
gegn því að lífsgæði kvenna séu skert á
nýrri öld, ákveðin í að vinna saman að
betri framtíð.
Ráðstefnan er birtingarmynd þessa
krafts kvenna og stuðningsins í sam
félaginu sem viðurkennir jafnan rétt og
jafnt gildismat kvenna og karla. Sam
hljóða álit samfélagsins að nauðsynlegt
sé að tryggja jafnrétti kynjanna dregur
ekki úr vægi kvennahreyfingarinnar
heldur gefur henni tækifæri til að styðja
við grasrótarsamtök og til að efna til
umræðu um óhefðbundnar samfélags
legar lausnir.
Opinber stefnumótun til að auka
jafnrétti kynjanna hefur áhrif á konur og
karla, stúlkur og drengi. Innlendar jafn
réttisstofnanir og alþjóðlegir samning
ar eins og Kvennasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna um afnám allrar mismununar
gegn konum og Pekingsáttmálinn hafa
áhrif á jafnréttisáætlanir.
Enn er of lítið litið til jafnréttis kynj
anna þegar unnið er að stefnu mótun á
öðrum sviðum samfélagsins, eins og í
málefnum fatlaðra, innflytjenda málum,
velferðarmálum, umhverfismálum, skatta
málum, menntamálum, og svo framvegis.
Aukin kynjasamþætting, þátttaka karla í
baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og sam
vinna mismunandi aðila eru nauð synleg
til að styrkja jafnréttisbaráttuna.
Leiðirnar að sameiginlegu markmiði
eru ótal margar og fjölbreytileiki innan
kvennahreyfingarinnar er mikilvægur
og ákjósanlegur. Þó viljum við einnig
leggja áherslu á mikilvægi rótgróinna
kvennasamtaka sem hafa áralanga og
jafnvel áratuga langa reynslu af barátt
unni fyrir kvenréttindum og jafnrétti
kynjanna.
Saman vinnum við að því að skapa
réttlátara og femínískara samfélag!
Nordiskt Forum vill leggja áherslu á að
alþjóðlegir samningar eins og Kvenna
sáttmáli Sameinuðu þjóðanna, Pek
ingsáttmálinn, ályktun öryggisráðs Sam
einuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið
og öryggismál, þúsaldarmarkmið Sam
einuðu þjóðanna og ný markmið Sam
einuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
geta aðeins náð markmiðum sínum að
bæta stöðu kvenna í samfélaginu með
því að eiga samvinnu við sterka og gró
skumikla kvennahreyfingu og þá aðila
sem starfa að jafnrétti kynjanna á öllum
sviðum samfélagsins.
ViÐ KREFJuMST ÞESS:
AÐ norrænu ríkisstjórnirnar fjármagni
frjáls félagasamtök í kvennahreyfing
unni að jöfnu við önnur frjáls félaga
samtök, svo að femínismi hafi raun
veru leg áhrif á samfélagsumræðuna og
að jafnrétti kynjanna náist í samfélagi
okkar.
AÐ norrænu ríkisstjórnirnar tryggi
aukna þátttöku kvennasamtaka í stefnu
mótun, sem umsagnaraðila og sem sam
starfs aðila í gagnsærri og heildrænni
stefnumótun sem stuðlar að jafnrétti
kynjanna. Við óskum þess að norrænu ríkis
stjórnirnar hafi langtímamarkmið í huga