19. júní - 19.06.2008, Blaðsíða 18
16
vegna meðvitaðrar ákvörðunar.
Við verðum að muna hvaðan við
komum. Við erum að færa okkur
úr heimi þar sem karlar einir
stunduðu viðskipti og sýsluðu
með fé. Þá er ekkert skrýtið að
þær konur sem hasla sér völl á
þessum vettvangi upplifi þetta
sem karllægan heim. Það tekur
einfaldlega tíma að breyta þessu.“
„Fyrirtækjamenning þróast á
svo löngum tíma,“ segir Halla.
„En hvernig breyta menn kúltúr?
Vissulega er hægt að reyna að
breyta honum innan frá en það
er hægara sagt en gert. Fyrst og
fremst vegna þess að eins og
það var í tilfelli okkar beggja þá
vorum við lengst af eina konan í
stórum hópi karla.“
„Við vorum svona sýnishorn,“
skýtur Kristín inn í og það er ekki
hægt annað en að skella upp úr.
„Við vorum það,“ heldur Halla
svo áfram með alvarlegri áherslu.
„Þú breytir ekki hlutunum svo
glatt innanfrá þegar þú ert bara
sýnishorn.“
Flóin sem hoppar
„Til þess þarf í raun að ná
ákveðnum fjölda eða krítískum
massa,“ segir Kristín. „Það sem
þú getur líka gert er að fara út
fyrir hefðbundna umhverfið og
stofna eitthvað sem starfar við
hlið hins þekkta eða „parallel
system“ þ.e.a.s. fyrirtæki sem býr
til annan kúltúr og hefur öðruvísi
gildi, með það að markmiði að
nálgast viðskiptavini á annan
hátt en veita sömu þjónustu. Það
verður síðan flóin sem hoppar
við hliðina á stóra fílnum. Smátt
og smátt eftir því sem hún
hoppar hærra og vekur meiri
athygli aukast líkurnar á að fíllinn
fari að hreyfa sig.“
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
10
82
Kynnið ykkur raforkuframleiðslu og sjáið einnig skemmtilegar sýningar í Blöndustöð, Búrfelli,
Kröflustöð, Ljósafossstöð við Sog og Gestastofu Fljótsdalsstöðvar í Végarði.
Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Végarður er opinn frá kl. 9-17 alla daga vikunnar.
Heimsókn til Landsvirkjunar er ókeypis.
Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
Laxárstöð í Aðaldal
Eftirminnileg ferð úr mannheimum í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goða-
styttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings.
Opið alla eftirmiðdaga frá 7. júní.
Handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2007
Hvað er
með ásum?