19. júní


19. júní - 19.06.2008, Side 48

19. júní - 19.06.2008, Side 48
46 ávarp við athöfnina og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur hélt erindi um ævi og störf Bríetar. Á Haukagili voru síðan bornar fram kaffiveitingar. Á sumarmánuðum kom stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna (MMK) saman á ný eftir nokkurt hlé. Auglýst var eftir styrkumsóknum í sjóðinn og úthlutað styrk á haustmánuðum til ungrar fræðikonu, Ínu Daggar Eyþórsdóttur, sem leggur stund á viðskiptafræðinám í Danmörku. Einnig hlaut sjóðurinn erfðargjöf Vigdísar J. R. Hansen, sem lést í júní 2007. Hefur þessi gjöf verið mikil lyftistöng fyrir fjárráð sjóðsins og á vafalítið eftir að nýtast vel þeim íslensku konum sem sækja um styrk til sjóðsins. Haustmánuðir urðu ekki síður viðburðarríkir því þrír súpufundir voru haldnir ásamt því að ungur kanadískur fræðimaður, Laurie Bertram, sótti KRFÍ heim og hélt síðdegiserindi um Vestur-Íslendinginn Elinu Salome Halldorsson, merkilega kvenréttindakonu sem fáir á Íslandi hafa heyrt um, en Elin Salome setti sterkan svip á stjórnmál og kvenréttindabaráttu í Manitoba- fylki Kanada fyrrihluta síðustu aldar. Samstarf Einn súpufundanna var haldinn í samtarfi við Kvenfélagasamband Íslands í tengslum við sextán daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi, en þá var sýnd danska heimildarmyndin When the Moon is Dark. Í tengslum við sama átak stóð KRFÍ, í samvinnu við Alþjóðahúsið, fyrir opnum fundi um mansal á Íslandi og héldu þar erindi Margrét Steinarsdóttir, Þorbjörg I. Jónsdóttir og Sigríður Friðjónsdóttir lögfræðingur hjá ríkissaksóknara. Í byrjun nóvember var Bríetarbrekka afhjúpuð af Degi B. Eggertssyni, þáverandi borgarstjóra, á horni Þingholtsstrætis og Amtmannsstígs. Bríetarbrekka er minnisreitur um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindafrömuð og fyrsta formann KRFÍ. Ríkisstjórn Íslands tók þá ákvörðun á fullveldisafmæli lýðveldisins árið 2004 að ráðast í þetta verkefni og átti KRFÍ fulltrúa í undirbúningsnefnd verksins. Þá styrkti Reykjavíkurborg verkefnið veglega m.a. með því að leggja til reit undir minnismerkið. Ólöf Nordal myndlistarmaður hannaði reitinn. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra hélt erindi við afhjúpun reitsins og Bríeturnar – félag ungra femínista lögðu blómsveig til minningar um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Efnt var til móttöku á Hallveigarstöðum í tilefni afhjúpunarinnar. Erlent samstarf KRFÍ var öflugt á starfsárinu. KRFÍ á einna virkast samstarf við IAW, að öðrum ólöstuðum. Einnig skipar samstarf við hin Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, í gegnum NOKS-samstarfið, drjúgan þátt af erlendu samstarfi KRFÍ. Einn NOKS-fundur var haldinn árið 2007 í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu sem haldin var í Tallinn í Eistlandi í tilefni tíu ára afmælis kvenna-og kynjafræðideildar Háskólans í Tallinn. Framkvæmdastjóri KRFÍ sat fundinn þar sem ræddar voru leiðir til að efla samstarfið og fjármögnun funda og ráðstefna. Aðalþing IAW var haldið í Nýju Delhí á Indlandi í lok október. Stjórn KRFÍ tilnefndi formann, gjaldkera og framkvæmdastjóra sem fulltrúa félagsins til setu á þinginu. Þorbjörg I. Jónsdóttir sat sinn síðasta stjórnarfund hjá IAW en hún hefur setið í stjórn samtakanna síðustu tvö kjörtímabil. Kosið er til eins kjörtímabils í senn, sem eru þrjú ár, en mega stjórnarmenn mest sitja tvö kjörtímabil í röð. Þorbjörg mun þó starfa áfram með stjórninni sem lögfræðilegur ráðgjafi nefndar um aðgerðir vegna ofbeldis gegn konum. Einnig mun hún leiða áfram starf aðildarfélaganna á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Á þinginu var kosin ný stjórn samtakanna og tók í henni sæti Margrét Steinarsdóttir, gjaldkeri KRFÍ. Hún mun einnig leiða starf innan IAW varðandi mannréttindi og CEDAW-sáttmálann um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Ásgerður Jóna Flosadóttir, sem situr í aðalstjórn KRFÍ fyrir Frjálslynda flokkinn, sótti einnig þingið en hún er með einstaklingsaðild að samtökunum. Fékk hún einnig úthlutað því verkefni að fá fleiri ungar konur til liðs við samtökin. Þáttur KRFÍ verður því drjúgur í starfi IAW næstu árin. KRFÍ fékk líka erlenda Stjórn Kvenréttindafélagsins eins og hún var skipuð árið 2007. Efri röð frá vinstri: Silja Bára Ómarsdóttir, Sólborg Alda Pétursdóttir, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Margrét Sverrisdóttir, Halldóra Traustadóttir, Margrét Steinarsdóttir, Svandís Ingimarsdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.