19. júní - 19.06.2008, Blaðsíða 13
11
Óbeisluð fegurð á Ísafirði
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Myndir: Matthildur Helgadóttir
Örnólfur Örnólfsson Hr. Nói 2007 Ásthildur Þórðardóttir Áran 2007
Oddur Elíasson Náttúra 2007
Soffia Ingimarsdóttir 2007 Nikkólína Þorvaldsdóttir Netalit 2007
Kristín Þórisdóttir Kjarkur 2007 Ólöf Hildur Gísladóttir Töltari 2007
María Þrastardóttir útlendingur 2007
hafði samband við Matthildi og
fór hún í viðtal ásamt Ásthildi
Þórðardóttur gegnum hljóðver
RÚV á Ísafirði. Newstalk á Írlandi
tók viðtal við þær líka og einnig
var umfjöllun um keppnina í
Edinborg í Skotlandi, á áströlsku
stöðinnni ABC. Heimasíða
keppninnar er www.obeislud.it.is
og fleiri þúsund manns um allan
heim hafa þegar heimsótt hana.
Allt þetta varð að veruleika
vegna þess að nokkrir
einstaklingar spurðu sig þeirra
spurninga hvernig mæla ætti
fegurð og hvernig hægt væri
að dæma fegurð? Sýnt hefur
verið fram á að þær útlitskröfur
sem gerðar eru í hefðbundnum
fegurðarsamkeppnum
eru beinlínis óhollar heilsu
keppenda. Hver andlegu
áhrifin eru skal ósagt látið.
Kvenréttindakonur hafa líkt
fegurðarsamkeppnum við
gripasýningar og vísa þar
til sýninga sem lengi voru
viðhafðar á mörkuðum í
bændasamfélögum víða um
heim. Þar voru bestu gripir hvers
bónda sýndir og lagðir í dóm
annarra bænda á svæðinu. Menn
gátu gengið að skepnunum,
þreifað á þeim og þuklað
um lendar og hupp, skoðað
upp í þær og beinabyggingin
var mæld. Þessi siður þótti
sambærilegur við það að lengi
tíðkaðist að birta opinberlega
líkamsmál stúlkna sem tóku þátt
í fegurðarsamkeppnum. Mittis-,
mjaðma- og brjóstamál þeirra
voru birt í blöðum og lesin upp
af kynnum þegar þær gengur
yfir sviðið.
Niðurlægjandi
kroppasýningar
Kvenréttindakonum um allan
heim þótti þetta niðurlægjandi,
svo og það að stúlkurnar voru