19. júní - 19.06.2008, Blaðsíða 51
Jafnréttisstofa
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími 460 6200
www.jafnretti.is
jafnretti@jafnretti.is
KONUR, KARLAR, STELPUR, STRÁKAR, UNGIR & ALDNIR
JAFNRÉTTISSTOFA
VINNUR FYRIR ÞIG
Jafnréttisstofa annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á Íslandi og vinnur
samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
Markmið laganna er að:
- Gæta jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu í
stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins,
- Vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla í samfélaginu,
- Bæta sérstaklega stöðu kvenna og auka möguleika þeirra í
samfélaginu
- Vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kyns á
vinnumarkaði,
- Gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og
atvinnulíf,
- Efla fræðslu um jafnréttismál,
- Greina tölfræðiupplýsingar eftir kyni,
- Efla rannsóknir í kynjafræðum,
- Vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni,
- Breyta hefðbundnum kynjaímyndum og vinna gegn neikvæðum
staðalímyndum um hlutverk kvenna og karla.
Helstu verkefni Jafnréttisstofu eru söfnun og miðlun upplýsinga um jafnrétti
kynjanna, fræðsla og ráðgjöf til einstaklinga, félaga, fyrirtækja, stofnana og
stjórnvalda á öllum stigum, auk þróunarstarfs, rannsókna og eftirlits með
lögunum.
Markmið Jafnréttisstofu er að ná fram varanlegum breytingum í átt að jafnrétti
kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.