Gerðir kirkjuþings - 1998, Side 120
1998
30. KIRKJUÞING
4, mál
Fyrir hveiju máli sem nefnd skilar skal ákveðinn framsögumaður. Nefndaráliti skal
útbýtt meðal kirkjuþingsmanna daginn áður en málið er tekið til umræðu á þinginu.
Það skal undirritað af nefhdarmönnum og tilgreindur framsögumaður.
Á hveiju kirkjuþingi skal vera sérstakur fyrirspumatími þar sem kirkjuþingsmönnum
gefst kostur á að bera fram munnlegar fyrirspumir til ráðherra, biskups og kirkjuráðs.
Skal einn þingfundur tekinn til slíkra fyrirspuma, að jaínaði þegar fyrri urnræðu mála
er lokið. Efni fyrirspuma skal lagt fram með sólarhrings fyrirvara.
Skriflegum fyrirspumum sem bomar em fram með leyfi forseta, skal svara skriflega.
Svara skal fyrirspumum ef kleift er í umræðu og þær snerta fyrirliggjandi málefni.
Gerðabók kirkjuþings.
20. gr.
Kjömir þingskrifarar halda gerðabók undir umsjón forseta. Þar skal geta framlagðra
og fyrirtekinna mála ásamt meginatriðum umræðna og úrslita mála. Ráða skal
sérstakan ritara sem annast færslu fundargerða undir yfirumsjón og á ábyrgð hinna
kjömu skrifara, enda undirrita þeir fundargerðir. Fundargerð liggur frammi í upphafi
fundar og geta fulltrúar gert athugasemdir við skrifara til næsta fundar og skal þá
fundargerðin undirrituð af forseta og skrifurum. Hljóðrita skal umræður á kirkjuþingi
og geyma.
Fundarsköp.
21. gr.
Forseti sfyrir umræðum og kosningum á þinginu og heldur mælendaskrá. Kosningar
skulu vera skriflegar. Varaforseti gegnir starfi forseta í forfollum hans. Ef forseti tekur
þátt í umræðum, öðrum en þingstjóm gefur tilefni til, víkur hann sæti á meðan og
annar sfyrir fundi.
22. gr.
Forseti ákveður fyrir lok hvers fundar dagskrá fyrir næsta fund og lætur dreifa henni
til kirkjuþingsmanna eftir því sem við verður komið og ef með þarf, í samráði við
þingið, enda skal þar tilgreint hvenær næsti fundur verður, nema seinna boðist með
dagskrá. Dagskrár, umræður og úrslit mála má birta jafhóðum í fjölmiðlum eftir því
sem um semst og forseti leyfir. Annast forsetar og þingritarar ffamkvæmd þessa.
23. gr.
Málffelsi og tillögurétt á fundum kirkjuþings hafa auk kirkjuþingsmanna, biskup,
vígslubiskupar, kirkjuráðsmenn, sem eigi em þingfulltrúar, kirkjumálaráðherra eða
fulltrúi hans og fulltrúi guðffæðideildar Háskóla íslands.
24. gr.
Flutningsmaður máls en ekki nema einn þótt fleiri flytji og ffamsögumenn nefnda
mega við hveija urnræðu um mál, tala þrisvar. í fyrsta sinn í allt að þijátíu mínútur, í
annað sinn í allt að tíu mínútur og í þriðja sinn í allt að firnm mínútur. Aðrir mega
ekki tala oftar en tvisvar, tíu mínútur í fyrsta sinn og fimm mínútur í annað sinn.
Fyrirspyijandi, sbr. 6. mgr. 19. gr., en ekki nema einn þótt fleiri standi að fyrirspum
— og sá sem svarar fyrirspum —, mega ekki tala offar en tvisvar. I fyrra skiptið má
tala í allt að þijár mínútur og í seinna skiptið í allt að tvær mínútur.
115