Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Fréttír DV
SANDKORX
■ Einhverjir hnutu um orð Áma M.
Mathiesen ijármálaráðherra þegar
hann sagði að nefndin sem lagði
matáum-
sækjendur
um embætti
héraðs-
dómara
hefði skilað
gölluðu
matí. Fannst
honum
dómnefnd-
armenn,
lögspekingar sem þeir eru, ekki
taka nægilegt tillit til reynslu Þor-
steins Davíðssonar vegna starfa
hans sem aðstoðarmaður ráðherra.
Ámi býr sjálfur að nokkurri sér-
fræðiþekkingu, enda dýralæknir
og með próf í flskisjúkdómafræði.
Hins vegar hefur fl'tíð farið fýrir
sérþekldngu hans á dómsmálum í
störfum hans á Alþingi þar til nú að
hann var settur dómsmálaráðherra
tíl að skipa einn dómara.
■ Núþegarkjarasamningarstanda
fýrir dyrum þarf kannski ekki að
koma á óvart að fólk beri sam-
an launaþróun síðustu ára. Einn
þeirra sem það gera er Sigurður
T. Sigurðsson sem skrifar grein í
nýjastatölublað Hjáfrns, frétta-
blaðs verkalýðsfélagsins Hlífar, sem
hélt í ár upp á einnar aldar afrnæfr
sitt Sigurður sýnir hvemig taxtí
fiskvinnslufóUcs hefúr hækkað um
hundrað prósent á tí'u árum en á
sama tíma hefúr þingfararkaup
þingmanna hækkað um rúmlega
150 prósent. „Skyldu núverandi
stjómvöld leiðrétta þetta óréttlætí
eða láta eins og ekkert sé.“
■ ForvimUegtverðuraðfylgjast
með þriggja miUjóna króna
auglýsingunni sem frumsýnd
verðurímiðju
Áramóta-
skaupinu
r ogsögur
hermaaðsé
frá Remax.
Aðspurðir
vUja talsmenn
RUVekkert
gefaupp
og hið sama á við um LUju Björk
Ketílsdóttur, framkvæmdastjóra
Remax. Hún sagðist ekkert kannast
við að auglýsa í Áramótaskaupinu.
Ragnar Bragason, leikstjóri Skaups-
ins, hefur aftur á mótí lýst yfir
ánægju sinni með að áramóta-
skaupinu sé skipt í tvennt og stað-
festí í samtaU við DV að hann hafi
lengstum hugsað vinnslu þess út
frá auglýsingahléinu í miðjunni.
■ Talsmenn Hvíta hússins höfnuðu
því á blaðamannafúndi nýverið
að hrekkjalómurmn VífUl Atlason
hafi náð í gegnum leyninúmer
George W. Bush Bandarflcjaforseta,
númerið 202-395-2020. Þess í stað
fúUyrða þeir að hann hafi eingöngu
hringt í gegnum aðalnúmer Hvíta
hússins, númerið 202-456-1414.
VífiU pantaði símafúnd með Bush
er hann þóttist vera Ólafur Ragnar
Grímsson. Skömmu síðar fékk VífiU
heimsókn frá lögreglunni á Akra-
nesi og var krafinn skýringa á at-
hæfinu. Sjálfúr segir VífiU starfsfólk
forsetans ljúga til um staðreyndir
málsins og greinir Séð og heyrt frá
því í nýjasta tölublaði sínu að hann
hafi því ítrekað reynt að hringja
aftur í leyninúmerið góða. Þá hafi
ýmist komið símsvari eða stöðugur
tónn og telur hrekkjalómurinn af
Skaganum víst að leyninúmer-
inu hafi verið lokað eftír hrekkinn
heimsfræga. trausti@dv.is
LEIÐRÉTTING
I jólablaði DV var formaður Sið-
menntar rangnefndur í greininni fs-
lands þúsund ár. Formaðurinn heitír
réttílega Hope Knútsson en ekki
Hope Knútsdóttir.
NÆSTA BLAÐ KEMUR
ÚT3.JANÚAR
Blaðið sem þú hefur í höndunum nú
er síðasta tölublað DV fyrir áramót.
Næsta blað kemur út fimmtudaginn 3.
janúar. DV óskar landsmönnum nær
og fjær velfamaðar á nýju ári.
Söfnun í áramótabrennur í Reykjavík er þegar hafin og getur almenningur losaö sig
við hreint timbur á brennurnar fram á hádegi á gamlársdag. Ellefu brennur verða í
borginni á gamlárskvöld og verða tugir starfsmanna Reykjavíkurborgar á vakt við
þær til að sjá til þess að allt fari vel fram. Fjórar stórar brennur verða líkt og síðustu
ár en sjö minni brennur á víð og dreif um borgina.
ELLEFU BRENNUR í REYKJAVÍK
Um þessi áramót verða ellefu
áramótabrennur í Reykjavík og
eru starfsmenn framkvæmda-
sviðs Reykjavíkurborgar þegar
farnir að vinna að því að safna
saman hentugum eldiviði í
brennur og stafla honum upp
í bálkesti. I gær hófst vinna við
að stafla upp í brennur og verða
starfsmenn hverfastöða Reykja-
víkur við móttöku á timbri fram
að hádegi á gamlársdag eða þar
til bálkestirnir teljast hæfilega
stórir.
Sjö af brennunum sem fara
fram í borginni um áramótin eru
alfarið á ábyrgð framkvæmda-
sviðsins og eru svokallaðar borg-
arbrennur, en auk þeirra verða
starfsmenn borgarinnar á vakt
við allar brennur í borginni.
Hreint timbur best
Almenningur getur sem fyrr
segir komið með eldivið á brenn-
Efniviðurinn í bálkest-
ina er að miklu leyti
vörubretti sem fyrir-
tæki og heildsalar nota
tækifærið til þess að
losasigvið.
urnar, en strangar reglur gilda
um hvað má brenna og hvað
má ekki brenna. Eingöngu má
brenna timbur, en nokkuð hefur
borið á því að fólk hafi freistast til
þess að losa sig við fleira drasl en
það sem þykir hentugt sem eldi-
viður. Slíkt er með öllu bannað.
ísak Möller, rekstarstjóri í
hverfisstöð Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar í Breiðholti,
segir fjölmarga starfsmenn borg-
arinnar koma að brennunum.
„Það verða tveir til þrír starfs-
menn við hverja brennu. Þeir sjá
um að kveikja í þeim og munu
einnig sinna gæslu á svæðinu,
meðal annars að passa upp á
það að fólk fari ekki of nálægt
bálköstunum."
BRENNUR í REYKJAVÍK Á GAMLÁRSKVÖLD
■ Æglsíða, borgarbrenna
■ Gelrsnef, borgarbrenna
■ Gufunes, borgarbrenna
■ Rauðavatn, Fylkisbrenna
■ Suðurhlíðar, borgarbrenna
■ Suðurfell, borgarbrenna
■ Leirubakki, borgarbrenna
■ Kléberg á Kjalarnesi, borgarbrenna
■ Skerjafjörður, Hverfafélagið Skjöldur
■ Laugarásvegur móts við Valbjarnarvöll
■ Ártúnsholt, fbúasamtök Ártúnsholts
Efniviðurinn í bálkestina er
að miklu leyti vörubretti sem
fyrirtæki og heildsalar nota
tækifærið til þess að losa sig við.
„Það er líka besta efnið, hreint
timbur brennur best. Það er ekki
æskilegt að fólk sé að koma með
lakkaðan við og parketafganga
eða þess háttar. Það kemur eitr-
aður reykur af þessum límefn-
um og það má ekki brenna þessi
efni."
Brennur um alla borg
Stóru brennurnar eru á fjór-
um stöðum í borginni, en sjö
litlar brennur verða einnig víðs
vegar um borgina. Stóru brenn-
urnar verða við Ægisíðu, við
Geirsnef, í Gufunesi í Grafarvogi
og við Rauðavatn, en sú brenna
er í umsjón Fylkis. Litlu brenn-
urnar eru við Suðurhlíðar neð-
an við Fossvogskirkjugarð, við
Suðurfell og Leirubakka í Breið-
holti. Þá verður brenna við Klé-
berg á Kjalarnesi, í Skerjafirði og
vestan Laugarásvegar. íbúasam-
tök Ártúnsholts standa svo fyrir
brennu sunnan við Ártúnsskóla.
„Almenningur og þá sérstak-
lega krakkar koma alltaf minna
og minna nálægt þessu, enda
sjá starfsmenn borgarinnar að
mestu um að safna saman efn-
inu," segir ísak Möller.
W Hin sanna gleði
SKALDID SKRIFAR
KRiStJÁN HREINSS0N SKÁLÐ SKRIFAR. „linn þann dag idagreyiti égadJara aö ráðumJdður mins. Égreyni að vinna verk mín vel og vandlega."
Eg átti því láni að fagna að eiga föður
sem var heiðarlegur og hann trúði á
fegurð heimsins. Faðir minn hvatti mig
til dáða og sagði mér að vinna verk mín
vel og vandlega. Ég hefði ekki viljað fá betra
veganesti og síst af öflu hefði ég óskað mér
föður sem heföi haft það að markmiði að láta
vini sína veita mér embætti. Ég hefði nefnUega
aldrei getað hugsað mér að mæta starfi sem ég í
hjarta mínu vissi að ég hefði fengið óverðskuld-
að.
Enn þann dag í dag reyni ég að fara að ráðum
föður míns. Ég reyni að vinna verk mín vel og
vandlega.
En svo eru til menn sem vakna á degi hverj-
um og horfist í augu við það, að þeir eru ekki
starfi sínu vaxnir. Þeir fengu embætti á kostn-
að þeirra sem hæfari voru. Þeim var ýtt fremst í
ræsiskákina og tyllt á staU.
Við lifum í samfélagi sem er stjómað af klíku-
skap og hótunum. Þeir sem ekki hlýða em látn-
ir gjalda fyrir. Meira að segja Baugsveldið fékk
að kenna á refsivendi blárrar handar hér í eina
tíð. Og ég, réttlátt skáld í Skerjafirði, fæ upp-
hringingar ef ég segi það sem gefið hefur verið
í skyn að mér sé bannað að segja. Ég sagði frá
því um daginn, að mér var bannað að gagnrýna
sálm sem fyrrverandi ráðherra hnoðaði sam-
an. Og svo gerðist það að ég talaði óvarlega um
fyrrverandi landbúnaðarráðherra og sá maður
hringdi og sagði: Kristján, gáfaður maður eins
og þú segir ekki svona nokkuð um menn eins
og mig. Eg á vini í öUum flokkum og sambönd
sem teyga sig víða.
Ég sagði Guðna það ekki þá, en ég segi honum
það núna: Ég frétti það, að vegna þess að ég rit-
aði vísnakver sem nefnist Aldrei kaus ég Fram-
sókn, sé talað um mig sem einn af höfuðand-
stæðingum hins fordæmda Framsóknarflokks.
Heiðurinn er meiri en ég gat átt von á.
Ummælum þeim sem ég vitna hér í, fyigja orð
Valgerðar Sverrisdóttur. Hún á að hafa sagt það
á fúndi með framsóknarmönnum að hún hafi
persónuiega náð að bola mér út úr ágætu sam-
starfsverkefni sem hún hafði þó enga beina
tengingu við.
Fegurð lífs míns felst í því að ég reyni að vera
heiðarlegur og ég trúi því að sú viðleitni sé hin
sanna gleði.
/ víti og rœsi vaxa blóm
sem vekja skömm og hrylling
þau herja nú á Héraðsdóm,
þau heita Vald og Spilling.