Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
HelgarblaO PV
ITÓKU 600KÍLÓ
AFKJÓTIf 4
ÍFLfJAEINELTWA
iVEÐUMTOFUNNI
kevptuferjuI
OG BREVTfl
FYRIR 250
miujónir í
DÝRTSPAUG
DV opnaði umræðuna um kaup Vegagerðarinnar á
nýrri Grímseyjarferju. 1 janúar greindi DV frá
hundruða milljóna króna endurbótum sem blöstu
við og töfum við framkvæmdina.
ÞURFANDI FJOLSKYLDUR
DV sagði frá páskaúthlutun Fjölskylduhjálpar
(slands þar sem 40 fjölskyldur þurftu frá að hverfa
og fengu engu úthlutað i páskamatinn þar sem allt
kláraðist.
SAMEINUÐÁ NÝ
DV sagði frá Gunnari Jónssyni, vistmanni á
hjúkrunarheimili Kirkjubæjarklausturs, en hann
fékk ekki inni í sínum heimabæ, Selfossi. Fyrir
vikið þurfti eiginkona hans að ferðast 400
kílómetra til að hitta mann sinn. Eftir umfjöllun
DV fengu hjónin urlausn á málum sínum og voru
sameinuð.
DROTIL BAKA
DV greindi fyrst frá því að Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hygðist ráða Jón H.B. Snorrason
í embætti ríkissaksóknara. Umsækjendur drógu
umsóknir til baka og Björn frestaði útnefningunni í
kjölfar umfjöllunar.
GRIPNIR I LANDHELGINNI
Varðskipsmenn Landhelgisgæslunnar voru
gripnir með 600 kíló af kjöti um borð. Sýslumað-
ur lagði hald á kjötið en skipverjar sögðu kjötið
vera til eigin neyslu um borð. DV greindi fyrst frá
kjötfundinum.
EINELTI Á VEÐURSTOFUNNI
DV opnaði eineltisumræðu á vinnustöðum þegar
greint var frá einelti á Veðurstofu íslands. Millistjórn
andi var kærður fyrir einelti og hlaut á endanum
áminningu í starfi.
AGUST
BÆJARSTJÓRIÍVANDA
DV sagði frá þvi að Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi, nyti ekki trausts flokksfélaga
sinna sem ræddu um að segja honum upp
störfum. (stað uppsagnar varð niðurstaðan sú að
slá um bæjarstjórann skjaldborg og láta eins og
ekkert hafi í skorist.
SEPTEMBER
WATHNE EFTIRLYSTUR
DV greindi fyrst frá þvi að bandariska eiturlyfjalög-
reglan og Interpol lýstu eftir einni af vonarstjörnum
islendinga, Gunnari Stefáni Wathne. Hann var
handtekinn á Indira Gandhi-alþjóðaflugvellinum og
biður dóms á Indlandi.
SYRGJA SON SINN
Fyrst fjölmiðla greindi DV frá láti Guðjóns
Guðmundssonar í dönsku ríkisfangelsi. Hann
svipti sig þar lífi eftir að hafa setið marga
mánuði í einangrunarvist. Foreldrar hans voru í
átakanlegu viðtali við DV i október.
SVIPTI
SIG LÍFI
mnrwm
Iríkið sakað
IsVEIGJAlflG
SVEIGJA LOGIN
DV opnaði umræðu um sölu ríkiseigna á Keflavík
urflugvelli þar sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
eru sakaðir um að hygla vinum og vandamönn-
um. Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að gera
stjórnsýsluúttekt á sölunni.
GREITT FYRIR HJONABÖND
DV greindi frá fjölda málamyndahjónabanda
þar sem markmiðið er að fá landvistarleyfi hér
á landi fyrir maka og börn. Viðmælendur DV
segjast hafa fengið greiddar milljónir fyrir að
ganga í slík hjónabönd.
boðnar
MIIUÖN'R
hjónaband
DV varð aftur dagblað á árinu og lítur stolt yfir farinn veg. Mörg
mál hafa verið í þjóðfélagsumræðunni eftir að DV vakti fyrst á
þeim athygli. DV er blað sem þorir á meðan flest önnur þegja. Hér
eru stærstu málin rifjuð upp.
ARIÐMEÐ
AUGUM DV
l-Æiium
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamadur skrifar: trau:
FEBRÚAR Uppeldisheimilið í Breiða-
vík á Vestfjörðum vekur enn þann dag
í dag ugg á meðal þeirra sem þar voru
vistaðir. DV opnaði umræðuna um
ómanneskjulega vist nærri hundrað
barna á Breiðavík þar sem misþyrm-
ingar voru daglegt brauð.
Helgi Davíðsson, sem var vist-
maður á Breiðavík, steig fyrstur fram
og sagði átakanlega sögu sína í DV.
Hugrekki Helga varð til þess að einn
ógeðfelldasti blettur fslandssögunn-
ar var dreginn fram í sviðsljósið. Eft-
ir frásögn hans stigu fjölmargir vist-
menn fram, þeir brutu þrjátíu ára
þagnarmúr og sögðu keimlíkar sög-
ur og Helgi. Nokkrir segj-
ast hafa sætt kynferðislegu
ofbeldi auk þess að þola
ýmsa niðurlægingu, dvöl í
svartholi í kjallaranum og
gegndarlausar barsmíð-
ar. Þá er það staðreynd
að kennslu var ábótavant.
Margir þessara manna
upplifðu sömu vítisvist-
ina og bera enn þann dag
í dag þungan kross. Marg-
ir hafa hugsað um hefnd, aðrir vilja
réttlæti af hálfu stjórnvalda. Menn-
irnir voru sviptir réttinum til þess að
lifa mannsæmandi lífi og sviptir sak-
leysi sínu á barnsaldri. Þeir hafa tap-
að æskunni og jafnvel ellinni líka.
„Þetta var hryllileg lífsreynsla,"
sagði Sigurdór Halldórsson með
brostinni rödd í viðtali við DV. Sig-
urdór segist hafa orðið fyrir miklum
sálrænum skaða á heimilinu en þar
mátti hann sæta ofbeldi og kynferð-
islegri misnotkun er hann var 10 ára
gamall. Hann var fíkill og glæpamað-
ur næstu tuttugu árin. Hann segir
að það sé ekki fyrr en í dag, eftir að
DV opnaði málið um hryllinginn í
Breiðavík, sem hann getur tekist á
við tilfinningar sínar.
OKTÓBER - Meirihlutinn
sprakk
Borgarstjórn Reykjavíkur logaði
stafna á milli í október þegar mik-
il reiði greip um sig í samfélaginu
vegna fyrirhugaðrar sameiningar
dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykja-
víkur, Reykjavík Energy Invest, REI,
við Geysi Green Energy.
Nýr meirihluti DV greindi fyrst frá
viðræðum gömlu R-listaflokkanna um
myndun nýs meirihluta (borginni. 12.
október var formlega tilkynnt um
sögulegt fall borgarstjórnarmeirihluta
Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins.
Miklar deilur spruttu upp inn-
an borgarstjórnar vegna ákvörð-
unar um sameininguna og reiðin
kraumaði ekki síst innan raða borg-
arstjómarflokks sjálfstæðismanna
eftir að kaupréttarákvæði lykilstarfs-
manna urðu ljós. Borgarfulltrú-
amir sex, Gísli Marteinn
Baldursson, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Jórunn Frí-
mannsdóttir, Júlíus Vífill
Ingvarsson, Kjartan Magn-
ússon og Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttír, snemst gegn
borgarstjóra sínum þegar í
ljós komu áform um sam-
eininguna. Þau voru ósátt
við Vilhjálm yfir að hafa ekki
haft við þau samráð og töldu hann
hafa brotið gegn grundvallarhug-
myndum Sjálfstæðisflokksins með
því að leiða saman opinbert fyrirtæki
og einkafyrirtæki til samstarfs.
Tennurnar voru dregnar úr borg-
arstjóra þar sem hann var ítrek-
að sakaður um lygar og hatramm-
ar deilur innan Sjálfstæðisflokksins
urðu til þess að flokkurinn sat einn
eftir í minnihluta borgarstjórnar. Tvö
lið börðust um völdin, annars vegar
lið Davíðs Oddssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra, og hins vegar lið
Geirs. H. Haarde núverandi forsæt-
isráðherra. Niðurstaðan varð sú að
flokkurinn missti völdin í borginni
og sá sögulégi atburður átti sér stað
í fyrsta sinn að borgarstjórnarmeiri-
hluti féll.
Saga Reykjavik Energy Invest
er stutt en afar átakamikil. I mold-
viðrinu í október greindi DV fyrst
allra fjölmiðla frá því að meiri-
hlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks væri að bresta og
viðræður hafnar um nýjan borgar-
stjórnarmeirihluta.
Stjórnendur og starfsmenn fyr-
irtækisins bíða spenntír eftir fram-
tíðarstefnu frá eigendum sínum og
var gantast með REI-málið á jóla-
skemmtun Orkuveitu Reykjavíkur á
dögunum. Þá var sungið: „REI, REI,
ekki um jólin."
DJÖFLASÝRA
ISJÖNVARP!
2
I
SVEITARSTJÓRI
STAL ÞRETTÁN
T0NNUMAF0LÍU
DV 28. nóvember 2007
NÓVEMBER - Sveitarstjórinn
brást
DV greindi fyrst frá því að Brynj-
ólfur Árnason, sveitarstjóri í Gríms-
ey, væri grunaður um fjársvik og
skjalafals. Hann var dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
stuld á 12.900 lítrum af olíu er hann
gegndi starfi umboðsmanns Olíu-
dreifmgar í Grímsey. Upp komst um
olíustuld Brynjólfs þegar lögregla
rannsakaði húsbruna á eyjunni.
I kjölfar umfjöllunar DV um mál-
ið hófst rannsóloi á bókhaldi hrepps-
ins en Brynjólfur er grunaður um
stórfellt fjármálamisferli og skjala-
fals, að sögn Alfreðs Garðarsson-
ar, hreppsnefndarmanns í Grímsey.
Meðal þess sem Brynjólfur keypti er
átta milljóna króna íandmælingatæki
og sex milljóna króna skotbómulyft-
ari. Þá er hann einnig grunaður um
að hafa veitt verslun sinni Grímskjör-
um styrki.
Samkvæmt heimildum DV er
Brynjólfur einnig grunaður um að
hafa falsað afsökunarbréf frá endur-
skoðanda hreppsins. Beðist var vel-
virðingar á mistökum endurskoð-
anda og tekið fram að ekkert óeðlilegt
hefði verið við kaup Brynjólfs á lyft-
aranum. Eftir að hann hafði sýnt öðr-
um sveitarstjórnarmönnum bréfið
var málið látið niður falla.
Brynjólfur naut almennra vin-
sælda í Grímsey og eru íbúarnir
margir hverjir í öngum sínum vegna
málsins.