Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 49
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 49
SPÁDOMAR ARSINS 2007
Fyrst skulum viö líta á nokkra mola úr spá völvunnar síðasta ár og láta
lesendum eftir að meta hversu nákvœmlega spárnar hafa gengið eftir.
„Vandræði sem íslenskt fjármálafyrirtæki eða banki lendir í munu
hafa mikil áhrif innan lands og utan. Fyrirtækið er órjúfanlega tengt
útrás íslendinga á erlendan markað og vandræði þess sem tengjast
stjórnendum þess og stórum viðskiptavinum munu kosta þá traust
viðskiptalífsins í íhaldssömu landi."
Iiér á völvan augljóslega við skipbrot FL-group sem hófst með því
að amerískt viðskiptalíf missti trúna á gengi American Airlines.
„Blaðið verður afgangsstærð í vaxandi umsvifum Arvakurs og mun
líklega veslast upp og deyja."
Blaðið dó vissulega í þeim skilningi að það skipti um nafn.
„Miklar deilur koma upp í borgarstjórnarmeirihlutanum í Reykja-
vík og einhverjar breytíngar blasa þar við."
Hér þarfekki útskýringa við og hér sýndi völvan mikla skarps-
kyggni því ekkert um síðustu áramót benti til þess að borgarstjómar-
meirihlutinn í Reykjavík stœði völtumfótum.
„Eitt þreyttasta sakamál seinni tíma, Baugsmálið mun andast í
gjörgæslu dómkertísins. Því lýkur ekki með hvelli heldur kjökri þegar
málflumingurinn koðnar niður og verður nánast að engu."
Þetta hefurgengið nákvœmlega eftir.
„Á sviði bókaútgáfu verða nokkur tíðindi. Stórt útgáfufyrirtæki
lendir í vandræðum og bjargar sér með því að ganga tíl samstarfs við
keppinaut sinn, litríkan útgefanda sem hefur marga fjöruna sopið."
Edda útgáfa og JPV sameinuðust undir merkjum Forlagsins. Þetta
hefur völvan séð mjögskýrt.
„Á nýju ári verða sérstæðar náttúruhamfarir á austurhluta lands-
ins sem valda þó ekki tjóni."
Jarðskjálftar við Upptyppinga hafa verið vísindamönnum undr-
unarefni allan seinni hluta ársins.
„Ragnar Bragason
verður sigurvegari ársins."
Enginnfékk fleiri Eddur en Ragnar fyrir
kvikmyndirnar Börn ogForeldra ogsjón-
varpsþœttina um Nœturvaktina sem slógu
algerlega ígegn á árinu.
„Ungur og þekktur tónlistarmaður verður
mikið í sviðsljósinu snemma árs vegna fíkniefna-
neyslu."
Kalli Bjami hefur verið ífréttum allt árið vegnafíkniefnamála.
Það var með hálfum huga sem blaðamenn gengu á fund einnar
umtöluðustu völvu fslands og báðu hana að skyggnast inn í ftamtíð-
ina. Þessi tíltekna völva lagði línur þessa árs í völvuspá fyrir tímaritíð
fsafold fýrir réttu ári og þótti sannspá.
Völvan býr semfyrr íglcesilegu húsnœði í vinscelu hverfi í
101 þarsem séryfir Faxaflóann ogEsjuna. Hún bauð upp á rót-
sterkt kaffi á koldimmum desembermorgni þegar regnið barði rúð-
urnar og vindurinn ýlfraði ámátlega í steinklceddum veggjum. Aðeins
var lýst með kertaljósum og völvan virtist líða í hálfgert ómegin uns
hranalegtkrunkhrafnakvað við. Þeirkomu tveirsaman utan úrsort-
anum og settust á svalahandriðið, úfnir og hraktir og störðu inn um
glerið í augu völvunnar. Hún tók til máls og rakti hiklítið textann sem
hérfer á eftir.
Magnús Geir Þóroarson Leikhússtjór
inn mun hætta hjá Leikfélagi Akureyrar
og hefja störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur
eftir því sem völvan sagði.
SPJALLAÐ
ÆN
■ Völvan sér íslenska bænd-
ur afar áberandi á nýju ári.
Hugsjónamenn í bænda-
stétt munu koma fram
með rekstur stórbúa í
verksmiðjustíf og mæta
hugmyndir þeirra tafs-
verðri andstöðu en menn
fá ekki að gert. Natíi Andra
Hrólfssonar, bónda og fjár-
málamanns í Víðidal í Húnaþingi, er tengt þessu
og ekki síður Guðmundar Birgissonar á Núpum
í Olfusi, eins hluthafa í Lífsvaii sem hefur safnað
jörðum víða um land undanfarin misseri.
i Mjög alvarlegt sakamál
kemur upp á fomfrægu
höfuðbóli og ábúendur
þar dragast inn í málið að
ósekju. Þetta sér völvan
gerast á Vestfjörðum.
■ Magnús Geir Þórðarson
verður ráðinn leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur og mun
taka til hendinni af sama kraftí
og einkennt hefur störf hans
á þeim vettvangi hingað til.
Á haustmánuðum nýs árs mun
samkeppni stóru leikhúsanna um
starfskrafta leikara aukast mjög og verða
í kastljósi fjölmiðla. Síðari hluta ársins
verður Þjóðleikhúsið vettvangur mikilla
átaka og gagnrýni sem leiða tíl breytínga á
yfirstjóm þess.
■ íslensldr kvikmyndagerðarmenn munu
halda áffam að vinna nýja sigra og sérstak-
lega mun frægðarsól Baltasars Kormáks
og Ragnars Bragasonar skína skært á nýju
ári þegar ný verkefni þeirra líta dagsins ljós
eða verða kynnt og reynast vera stærri í
sniðum en menn hafa áður séð.
■ íslenskir rithöfundar eiga gott ár fr am
undan eftír gjöfula jólavertíð sem er að
líða. Völvan sér Einar Má Guðmundsson
mikið í kastljósinu á nýju ári þegar verk
hans fá aukna viðurkenningu.
■ Arnaldur Indriðason verður
sífellt þekktari sakamálahöf-
undur á alþjóðavísu og vekur
athygli á öðmm höfundum
á sama sviði. Ævar Öm lós-
epsson mun njóta meiri hylli
erlendis og fær einhver verðlaun
fyrir bók sína.
■ Ómar Ragnarsson verður mikið í fféttum
á árinu vegna heimildarmyndar hans um
fyllingu Hálslóns sem færir honum alþjóð-
lega athygli og viðurkenningu. Myndin
vekur meiri athygli erlendis en innanlands.
■ fslensk leikkona fær tílboð stórt hlutverk
í norrænni kvikmynd sem hún þiggur og
vekur mikla athygli. Völvan sér ekki betur
en það sé Elva Osk Ólafsdóttir.
■ fsland verður ennffemur vettvangur
kvikmyndatöku í stórriamerískri kvik-
mynd en einhver leiðindamál munu tengj-
ast því verkefni sem varpa skugga á það og
þá sem því tengjast.
■ Seint á árinu kemur út ævisaga látíns
listamanns sem á eftír að vekja gríðarlega
athygli vegna persónulegra uppljóstrana
sem þar verða í fyrsta sinn gerðar opinber-
ar. Yfirlýsingar hans um kynlíf og kynhegð-
un margra þjóðþekktra manna á miðri
tuttugustu öldinni munu vekja gríðarlega
athygh.
■ Menntaskólinn í Reykjavík tapar loka-
viðureign Gettu betur mjög naumlega fýrir
liði Menntaskólans í Kópavogi. Völvan sér
harðar deilur sem tengjast Gettu betur á
þessu ári og munu dómari keppninnar,
PállÁsgeirÁsgeirsson, ogspyrill, Sigmar
Guðmundsson, elda grátt silfur opinber-
lega um tíma, en sættir nást líklega bak við
tjöldin.
■ Vestfirski snillingurinn
Mugison sigrar heiminn
á nýju ári þegar tónlist
hans slær í gegn á
mjög stórum markaði
og hann fer á kostum
í erlendum sjónvarps-
þætti svo lengi verður í
minnum haft.