Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 37
PV Helgarblað FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 37 Fleiri tækifæri Leiklistargagnrýnandi DV von- ast eftir því að fá fleiri tækifæri til að fylgjast með Kristjáni Ingimarssyni (fyrir miðju) í framtíðinni en hann sýndi nokkrar sýningar af Frelsara s(num hér á landi í vetur. og leti: það getur nefnilega verið svo einstaklega þægilegra að ganga með tilbúið flokkunarkerfi upp á vasann en að þurfa að skoða hvert verk á eigin forsendum og meta það út frá því hvernig tekst að skapa heilsteypt listaverk á þeim grunni. Listamaður, sem kýs að vinna meðvitað út frá tilteknum hefð- bundnum forsendum, eins og höf- undur og leikstjóri Dags vonar, hann getur að sjálfsögðu verið nákvæm- lega jafntrúr sjálfum sér og sá sem kýs að leita uppi fyrirmyndir sem hann hefur til dæmis séð og hrifist af í vestur-evrópsku framúrstefnuleik- husi. Hvort tveggja getur hins vegar orðið að trúaratriðum og um þess- ar mundir er hér greinilega til orð- inn söfnuður meðal íslensks leik- húsfólks sem hefur talið sér trú um að allt sem kemur ur smiðju manna eins og Frank Castorfs, sem var boð- ið hingað í haust af leikhússtjóra LR, hljóti að vera alveg maklaust merki- legt: Það var til dæmis fróðlegt að fylgjast með samræðum eins þess- ara safnaðarmeðlima, ungs leikrita- skálds sem sumir binda miklar von- ir við en enn hefur þó ekki sýnt nein meiri háttar tilþrif á ritvellinum, við Jórunni Sigurðardóttur í útvarps- þætti á dögunum, þar sem Jórúnn reyndi af veikum mætti að skoða sýninguna krítískt, en komst ekki upp með moðreyk fýrir orðavaðli hins heittrúaða. Svona rétttrúnaðar- hreyfingar koma alltaf af og til upp í leikhúsinu, og geta jafnvel orðið að einhvers konar massapsykos, og trúlega lítið við því að gera annað en að vona að heilbrigð skynsemi og þroskaður smekkur nái yfirhönd- inni að lokum - sem ég hygg raunar að hafi býsna oft orðið raunin. Of nærgöngul sýning? Af hverju hlupu framúrstefnu- vinirnir ekki upp til handa og fóta þegar Hafnarfjarðarleikhúsið frum- sýndi Draumalandið síðastliðið vor? Þar var þó sannarlega ekld ver- ið að þjóna einhverjum háheilögum texta eða búa til natúralískar veru- leikamyndir, öðru nær, þar réð fant- asía og leikgleði ríkjum - og það sem aldrei má vanta í leikhúsinu, einlæg sannfæring um að verið sé að miðla einhverju sem okkur varðar öll. Ég var ekkert endilega heillaður af boð- skap verksins, sem eins og við vit- um er byggt á Draumalandi Andra Snæs, en sýningin hreif mig engu að síður mjög, og ég er enn sömu skoðunar og þegar ég skrifaði um hana í ísafold: mér finnst hún eitt best heppnaða dæmið um pólitískt leikhús sem ég man eftir á íslensku sviði. Var það kannski það sem dró úr áhuga manna, að hún var of nær- göngul, kom við of viðkvæma hluti? Ég fór með miklum efasemdum að sjá hana, en sjá: þarna sat maður í einn og hálfan klukkutíma sam- fleytt, var mataður á alls kyns þurr- um fróðleik og statistík - og leiddist ekki eitt andartak. Maður fann svo glöggt hversu mikið öllum aðstand- endum lá á hjarta, hvað þau voru heiðarleg og heil í viðleitni sinni til að koma vitinu fyrir okkur hin - og hvað þau gerðu það í raun á fágaðan og kurteislegan hátt. Þessi sýning var. eitt besta verk Hilmars Jónssonar fyrr og síðar, og það hlýtur að segja eitthvað um ís- lenska áhorfendur að hún var ekki tilnefnd til einna einustu Eddu- verðlauna. Ég vil ógjarnan taka mér orðið „hneyksli" í munn, en þéssi afgreiðsla dómnefndanna jaðraði sannarlega við að vera það. Það var ekld ætlun mín að gera þessa „upp- skeruhátíð" leikhúsfólks að um- ræðuefni hér, en sú hugsun hefur vissulega stundum læðst að manni að tískusveiflur ráði fullt eins miklu um niðurstöðu dómnefnda og ígrundað listrænt mat. Það er bara þannig í leikhúsinu að sumir eru „in" á meðan aðrir eru „out" - án þess að þar þurfi nokkuð að vera að baki annað en ósjálfstæði í hugsun, fylgispekt við þá sem hæst hafa og mest blása. Óljós stefnaTinnu Ég endurtek það sem ég sagði áðan: ég hef ekki séð Ivanov, en ann- að hef ég að sjálfsögðu séð af nýjum verkum Þjóðleikhússins. Þjóðleik- húsið á vissulega að vera flaggskip leiklistarinnar, yfirburðir þess eru slíkir að það Á að geta gert flestu sem best og fullkomnust skil. En þetta hefur ekki verið sérlega gott ár hjá leikhúsinu. Verkefnavalið hefur verið upp og ofan og leikstjórnar- valið sömuleiðis. Tinna Gunnlaugs- dóttir á enn eftir að sýna að hún hafi átt erindi í stól þjóðleikhússtjóra, að hún hafi burði til að stýra þessari stofnun á farsælan hátt. Éftir fimmt- án ára stjórnartíð Stefáns Baldurs- sonar var leikhúsið farið að staðna mjög á ýmsum sviðum, bæði hvað varðaði val á verkefnum og listræn- um kröftum, en eitt má Stefán eiga: hann leitaðist alltaf við að halda leikhópnum í hæsta gæðaflokld. Hann var stundum gagnrýndur fyr- ir stjörnupólitik, og það var talsvert til í því, en Stefán vissi samt alltaf að heildin verður að haldast sterk og að góður leikhópur hefur alltaf ver- ið einn höfuðstyrkur leikhússins - einnig á þeim tímum þegar dofnað hefur yfir og stöðnun og stefnuleysi haldið innreið sina. Ég vona að Tinna átti sig á þessu líka, að minnsta kosti ef hún ætlar að sitja þarna lengur en þau fimm ár sem hún er ráðin til, en stefna hennar hefur til þessa virst svo óljós og reikul að það væri óheiðarlegt af mér, ef ég lýsti ekki alvarlegum áhyggjum af því á hvaða ferð leik- húsið er undir hennar stjórn. Tinna hefur til dæmis reynt að endurnýja leikstjórastabbann, ogstundum tek- ist það vel, en stundum hefur hún verið gjörsamlega úti að aka í leik- stjóravali - með afleiðingum sem ég hef lýst í einstökum leikdómum og skal ekki endurtaka hér. Dagar LR taldir? Og hvað um önnur leikhús? í Borgarleikhúsinu eru löngu tíma- bær leikhússtjóraskipti fram undan og við verðum að trúa að eitthvað rætist úr fyrir LR undir nýjum stjórn- arherra. Ef það gerist ekki eru allar líkur á að dagar LR verði senn taldir og að Borgarleikhúsið breytist end- anlega í það sem sumir hafa kallað í nokkrum vanþóknunartóni „fé- lagsmiðstöð leikhópanna". Myndu það nauðsynlega verða slæm ör- lög fyrir leikJiúsið - og íslenska leik- list? Hugsanlega, þó ekki endilega. Hóparnir eru mikilvægir, þá þarf að efla og umfram allt að skapa hin- um bestu stöðugri og lífvænlegri rekstrargrundvöll - þar er Hafnar- fjarðarleikhúsið gott módel. En íslensk stjórnvöld hafa enn ekki borið gæfu til að veita leikhús- lífinu inn á slíkar brautir; hik og hálfvelgja setja enn mestan svip á opinbera pólitik á þessu sviði. Og allt of litlar fjárveitingar auðvitað. Veldur hver á heldur, segir mál- tækið; Leikfélag Reykjavíkur hefur ekki verið í sérlega góðum höndum undanfarið og praktísk viðleitni til að samræma rekstur þess og tilfall- andi leikhópa, sem detta nú þarna út og inn, hefur - að því er sagnir herma - ekki gengið allt of vel. En erfið rekstrarskilyrði eru ekki nokk- ur minnsta afsökun fyrir listrænu hruni LR síðustu misseri. Þar hef- ur sérkennilegt og of oft misráðið verkefnaval ráðið úrslitum, að ekki sé minnst á leikstjóravalið sem hef- ur á köflum verið stórundarlegt. Ég bendi á að á síðasta ári voru þrír lítt reyndir leikstjórar, sem enginn hafði áður afrekað neitt sérstakt sem slíkur, kallaðir til að setja upp stórar sýningar i leikhúsinu. Hvað Guðjón Pedersen var þar að hugsa er mér gersamlega hulin ráðgáta - raunar væri gaman ef hann kæmi fraiii sjálfur og skýrði það fyrir okk- ur. íslenskir leikhússtjórar hafa of lengi komist upp með að flýja inn í upphafna þögn, hvort sem það stafar af valdhroka þeirra eða ótta við að tapa í rökræðum (gagnrýn- endur og fjölmiðlar bera líka sinn hluta af sökinni). Óperan á tímamótum Af öðrum leikhúsum ætla ég að láta nægja rétt að drepa á LA og íslensku óperuna. LA hefur feng- ið verskuldað lof að undanförnu og verður ekki aukið við það hér. Verkefnaval Magnúsar Geirs hefur vissulega ekki alltaf verið hafið yfir gagnrýni, en það er vitanlega auð- veldara að fyrirgefa einstök mistök ef leikhúsreksturinn í heild stefnir í rétta átt. Magnús hefur kosið að Ieggja áherslu á „kröftug nútíma- verk" eins og hann orðar það, en sama og ekkert hirt um klassísk verkefni; og við þær aðstæður sem LA er rekið má vissulega verja þá afstöðu, þó að hún sé alls ekki hafin yfir spurningar og umræðu. Magn- ús er klár leikhúsmaður sem við getum vænst mikils af, en hann má ekki láta popúlistann ná of sterkum tökum á sér - ekki síst ef hann á eftir að takast á við stærri og vandasam- ari leikhússtjóraverkefni en starfið við LA er - án þess að lítið sé gert úr því á nokkurn hátt. íslenska óperan - rétt í lokin, hún stendur einnig á tímamótum með nýjum stjórnanda sem þarf að takast á við erfið úrlausnarefni sem geta ráðið úrslitum um fram- tíð íslenskrar óperulistar. Fyrir mitt leyti treysti ég Stefáni Baldurssyni fullkomíega til þess. Hann tekur að ýmsu leyti við góðu búi frá Bjarna Daníelssyni, Islenska óperan þarf að finna meðalveg á milli hefð- bundinna og alþýðuvænna óperu- sýninga og viðleitni til nýsköpunar og Bjarna tókst það stundum vel, oft þó betur en á síðasta ári. Okk- ur vantar auðvitað góða óperu- leikstjóra, og á núverandi þroska- stigi óperunnar þurfum við trúlega enn um sinn að byggja á útlend- um kröftum, jafnframt því sem við eignumst okkar eigin menn. Það er hins vegar alltaf leiðinlegt þegar hingað eru kallaðir útlendir miðl- ungsmenn eins og gerðist í Ariadne auf Naxos í haust. Stóra leikritahöfundarins beðið Hvaða nýársóskir maður á helst- ar fyrir hönd íslensks leikhúss? Þær gætu nú orðið ýmsar, en tvær eru mér á þessari stundu efstar í huga: að leikhúsið varðveiti jarðsam- band sitt, án þess þó að láta hverf- ula tísku, snobb eða andlega letj of stórs hluta áhorfenda stjórna sér - og að stóri leikritahöfundurinn, sem við erum öll að bíða eftir, fari loks að láta á sér kræla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.