Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Blaðsíða 86
86 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Slðast en ekki slst DV
VIKUNNAR
Sjúkraflutningamenn f Arnes-
sýslu fá fullt hús stiga fyrir gjafmildi
og góðan hug á jólum. Þeir ákváðu að
afþakka jólagjafir og færa ungum
veikum dreng andvirði gjafanna.
Ásgeir Lýðsson er tæplega tveggja
ára strákur frá Selfossi sem þjáist af
nýrnasjúkdómi og litningagalla sem
orsakar seinkun á tauga- og
hreyfiþroska hans. Hann á tvíbura-
systur sem er alheilbrigð. Sjúkraflutn-
ingsmennirnirfærðu fjölskyldu hans
50 þúsund
krónur.
★ ***
JUKRABILL
Kolbrún Lff, unga stúlkan sem missti
fingur (Laugardagslauginni skömmu
fyrir jól,fær þrjár stjörnurfyrir
. ómælda yfirvegun og jákvæðni á
erfiðum tímum. Aðeins átta ára þarf
hún að standa frammi fyrir því að
læra að beita hendinni upp á nýtt,
meöal annars að læra skrifa aftur. (
viðtali við fjölmiðla sýnir hún gott
skap og jákvæðni þrátt fyrir að þurfa
að gefa draum sinn um fimleika upp
á bátinn (bili.
Verslunarfólk fær tvær stjörnur fyrir
að vinna allt að 16 tíma vaktir fyrir
jólin. Met var slegið (kortanotkun og
peningaeyðslu fyrir þessi jólin svo
það er enginn vafi á því að mjög
mikið hefur verið að gera (verslunum
landsins. Hörkuduglegt fólk á ferð
sem leggur það á sig að vinna svona
mikið svo landsmenn geti glatt sfna
nánustu með vörum oq munaði.
SigurSur Þ. Ragnarsson, þekktur
sem Siggi stormur, fær eina stjörnu
fyrir að spá rétt til um jólaveðrið. Siggi
spáði því fyrir að kólna myndi (veðri á
Þorláksmessu með möguleika á snjó
og að það yrði afar jólalegt á jóladag.
Sú varð raunin en (slendingar
vöknuðu þá við að snjó kyngdi niður
með tilheyrandi hömlum á samgöng-
um. Langþráð og skemmtileg
stemmning sem eflaust hefur komið
mögum I almennilegt jólaskap.
STÆRSTU TOPIN
VORU ÍSKÁKINNI
Geir Hilmar Haarde
forsætisráðherra er ánægður með
þann árangur sem hann hefur náð
í starfi sínu en hann hefur starfað
sem forsætisráðherra í rúmt eitt
og hálft ár. Hann segir þó enn
margt ógert.
Hver er maðurinn?
„Geir Hilmar Haarde, 56 ára Reykvík-
ingur, formaður Sjálfstæðisflokksins
og forsætisráðherra."
Hver eru þín áhugamál?
„Þau eru stjórnmál, tónlist og flestallt
þar á milli."
Hefur þú búið erlendis?
„Já, ég var sex ár í háskólanámi í
Bandaríkjunum."
Uppáhaldsstaður?
„Bologna á ftah'u."
Besti matur?
„Það mun vera íslenskt lambakjöt."
Á hvernig tónlist hlustar þú?
„Ég er alæta á tónlist."
Hefur þú lengi ræktað söngvar-
ann í þér?
„Nei, því miður hef ég lítið sem ekkert
ræktað hann."
Er draumurinn að gefa út plötu?
„Nei."
Ertu glaðlyndur?
„Já, það er ég."
Hvað dreymdi þig um að verða
sem barn?
„Mig dreymdi um að verða símamað-
ur eins og faðir minn."
Tekur starf forsætisráðherra
mikinn tíma frá fjölskyldunni?
„Já, það gerir það."
Ert þú mikill fjölskyldumaður?
„Já."
Ef ekki forsætisráðherra hvað
þá?
„Utannkisráðherra."
Hefur þú náð þeim árangri sem
þú vildir sem forsætisráðherra?
„Já, það er þó margt enn ógert."
Hvað vilt þú sjá á nýju ári?
„Ég vil sjá áframhaldandi farsæld
þjóðarinnar."
Hver er þinn stærsti sigur á
ferlinum?
„Síðustu alþingiskosningar."
En stærsti ósigur?
„Allar skákirnar sem ég hef tapað fyrir
Halldóri Blöndal."
Hver er þín fyrirmynd?
„Það er enginn tiltekinn einstakling-
ur."
Hver er draumurinn?
„Draumurinn er að skila góðum ár-
angri í starfi."
Hvaða þrjú lýsingarorð lýsa þér
best?
„Ég hef leitast við að vera réttsýnn,
heiðvirður og vinnusamur."
Strengir þú áramótaheit?
„Nei, það geri ég ekki."
Hvernig ætlar þú að fagna nýju
ári?
„Ég mun fagna því heima hjá mér með
hefðbundnum hætti."
SANDKORN
■ Á gamlárslcvöld ætlar part-
íteymið Klki Ow og Curver
að halda sitt síðasta 90's partí.
Það eru eflaust sorgarfregnir
fyrir marga að ekki verði fleiri
slík partí
haldin en
Curver er
nú búsettur
í Banda-
ríkjunum.
Hingað til
hefur verið
troðið út
úr dyrum í
partíunum og keppast gest-
ir við að mæta í sem skraut-
legustum neon-fatnaði sem
einkenndi tíunda áratuginn.
Nú er hins vegar enn meiri
ástæða til að vera sem slcraut-
legastur þar sem tískulöggan
alræmda, Yvan Rodic, mætir
í partíið en hann hyggst taka
myndir fyrir heimasíðuna fac-
ehunter.blogspot.com.
■ Óskar Magnússon, fyrrver-
andi forstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar, kom mörgum
á óvart í fyrra þegar hann gaf
út smásagnasafnið, Borð-
aði ég kvöldmat í gær? Óskar,
sem áður hefur starfað sem
hæstaréttarlögmaður og for-
stjóri bæði
Hagkaupa
og Og Vod-
afone, fékk
afbragðs-
dóma fyrir
fyrstu bók
sína, en var
eklci með í
jólabóka-
flóðinu í ár. Óskar er þó hvergi
af baki dottinn og er víst að
skrifa nýja bók um þessar
mundir sem er væntanleg árið
2008.
■ Plötusnúðurinn Danni
Deluxxx hefur myndað óvænt
vinabönd. Þannig er mál
með vexti að fyrir einhverja
tilviljun endaði Daníel með
símanúmerið hjá bandaríska
rapparanum J.R. Writer úr
Diplomats-hópnum, sem er
hrikalega vinsæll þar í landi.
Eitt kvöldið þegar Daníel var
við skál ákvað hann að hringja
í kappann, sem er talinn einn
af efnilegustum röppurum
New York-borgar. Æxluðust
mál þannig
að Danni
og Writ-
er heyrast
í næstum
hverri viku
og jafnvel
er það í píp-
unum að fá
kappann til
landsins til þess að spila fyrir
rappþyrsta Islendinga.
dori@dv.is
Tvísýnt áramótaveður
„Fönnin sem verið hefur að safnast fyrir á
landinu allt frá því á aðfangadag virðist ekki
ætla að staldra lengi við að þessu sinni,
reyndar alveg fram á sunnudag!" segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur.„Þá verður
kominn 30. desember og þann daginn er allt
útlit fyrir enn einn veðurlivellinn á landinu,
með SA-stormi, hláku og reikna má með
umtalsverðu vatnsveðri sunnan- og
suðvestanlands. í kjölfarið alveg fram á
gamlársmorgun verður hvöss SV-átt með
éljagangi vestan til á landinu, en rofar til
eystra. Eftir það koma tveir möguleikar til
greina, annars vegar að það verði minnkandi
SV-átt með éljaveðri og vægu frosti. Hins
vegar, og það er möguleiki sem ég tel líklegri,
að það komi ný lægð eða lægðabylgja upp
að Suðurlandi með hvössum vindi og
rigningu eða slyddu einmitt um það leyti
sem nýja árið gengur í garð. Hjálparsveitirnar
munu vafalítið vera í miklum 'v,
önnum næstu daga, líka vegna
veðurs. Það er brýnt að styöja vel
við bakið á þessum mikilvægu
„illviðrasjálfboðaliðum" okkar." ! .
Einar Sveinbjörnsson,
veðurfrædingur