Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 Fréttir DV SWDKOIÍV ■ Eiður Smári Guðjohnsen var mjög ósáttur eftir að hafa þurft að sitja á varamannabekknum allan leikinn gegn Real Madrid. Eiður Smári hefur hingað til látið lítið fyrirsér farajafhvel þótt hann hafiekki verið valinn í byrjunarlið. Eftir tapið gegn Madrídar-liðinu var Eiður Smári hins vegar virkilega ósáttur og skildi ekki af hverju Frank Rijkaard hefði tekið hann úr byrjunarliðinu. ■ Það er gömul saga og ný að Arnaldur Indriðason trónir á toppnum á metsölulista Eymundsson fyrir þessi jól. Amaldur hefur selt nýjustu bók sína, Harðskafa, í bílformum og fengið ágætis dóma hjá gagnrýnend- um. Vinsæld- ir Amalds eru næsta ótrúlegar, því það virðist allt sem hann skrifar ná metsölu. Þúsund bjartar sólir efdr Khaled Hosseini var næstmest selda bókin á árinu og Bíbí eftir Vigdísi Grímsdóttur var þriðja mest selda bókin um þessijól. ■ Dagblaðið ChinaDailybirti á jóladag hálfsíðu grein um enskukennarann Jón Bjarka Magnússon sem einmitt var í viðtali við DV fýrir skömmu. Jón Bjarki eyddi jólunum í Peking, fjarri fjölskyldu ogvinum. f stað þess að hengja haus og svekkja sig á því, sldpulagði hann jólasveinagöngu um stræti borgarinnar og skráðu alls um 40 manns sig til leiks. Gjömingurinn vakti mikla athygli og var blaðamaður China Daily hrifinn af þessu uppátæki. China Daily nær til um 4 milljóna lesenda á hverjum degi. ■ Rúmt ár er síðan Byrgismálið svokallaða komst í hámæU eftir umdeildan Kompásþátt. Þeir sem þátt- inn unnu sættumikilU gagnrýni fyrir að birta ásakanir áhendur Guðmundi Jónssyni rétt fýrir jóUn, svona fjöi- skyldu hans vegna. Átta konur hafa lagt fram kærur á hendur honum vegna kynferðisbrota og fjármálamisferli auk stórfeUdra skattsvika er til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeUd. Ekkert ból- ar þó á ákærunum. ÆtU það sé vegna jólaandans á skrifstofu ákæruvaldsins, eða annarra saka? ■ Nú bíða menn þess með óþreyju að Ólafur Ragnar Grímsson flytji áríimótaá- varp. Næsta sumareru tólf ár Uðin síðan Ólafur Ragnarvar kjörinn forseti og hef- urhannenn ekkitilkynnt um hvort hann hyggist bjóða sig ffam á nýjan leik eða stíga tíl hUðar. TaUð er líklegt að Ólafúr muni að minnsta kosti gefa sterkar vísbendingar um ffamtíð sína á Bessastöðum. • Pólitískar stöðuveitingar eru raunveruleikinn á íslandi. í síðustu viku var Þorsteinn Davíðsson skipaður héraðsdómari. Skipun hans er þó ekki sú eina sem tengd er samböndum úr stjórnmálum. Tveir hæstaréttardómarar hafa verið skipaðir á síð- ustu árum sem mikill styr hefur staðið um. Framsóknarmenn hafa verðlaunað gæð- inga sína og Sjálfstæðisflokkurinn hefur losað sig við gamla bandamenn. UNDIR VERNDARVÆNG FLOKKSINS Árni Mathiesen Skipaði son Davíðs í VALGEIR ÓRN RAGNARSSON bladamaöur skrifar: valgeir&dv.is Skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti dómara við Héraðsdóma Austurlands og Norðurlands eystri hefúr vakið mikla athygli. Skipun hans í embætti er þó ekki sú eina sem hefúr valdið hneykslan í þjóð- félaginu. Forystumenn Sjáfstæðis- flokksins hafa margsinnis legið und- ir ámæii fyrir að hafa tekið lítið tillit til meðmæla fagnefnda og skipað þess í stað pólitíska gæðinga, vini og vandamenn í æðstu störf hins op- inbera. Eins og fjölmiðlar hafa fjall- að ítrekað um er Þorsteinn sonur Davíðs Oddssonar, fyrrverandi for- sætisráðherra og núverandi seðla- bankastjóra. Þá starfaði Þorsteinn sem aðstoðarmaður Bjöms Bjarna- sonar dómsmálaráðherra. Bjöm steig þó til hliðar og Ámi Mathiesen gekk fram hjá þremur hæfari um- sækjendum og skipaði Þorstein í embættið. Umsækjendur um starfið vom fimm talsins, en þriggja manna matsnefnd er falið að meta hæfni umsækjenda. Þorsteinn Davíðsson var metinn hæfur, en tveir umsækj- endur um starfið voru metnir mjög vel hæfir sem er tveimur flokkum ofar en mat Þorsteins. Vinskapur við formanninn Geir H. Haarde, sem á þeim tíma var settur dómsmálaráðherra, skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í embætti dómara í Hæstaréttí fs- lands í september árið 2004. Miklar deilur vom um embættisskipunina og þeir sem mótmæltu ráðningunni hvað harðast bentu á að hún hefði verið rakin beint til vinskapar Jóns Steinars við Davíð Oddsson, þáver- andi utanríkisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins. Átta af nfu dómurum í Hæstarétti mátu sem svo að lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson væm hæfustu umsækjendumir um embættið. Samkvæmt meginreglu stjóm- sýsluréttar og lögum um dómstóla verður að að leita umsagnar um hæfi og hæfni umsækjenda áður en skip- að er í embætti hæstaréttardómara. Almenna reglan sé að hæfasti mað- urinn sé skipaður í starfið. Eiríkur Tómasson sagði ákvörðunina mjög gagnrýnisverða því ráðherrar dóms- mála hefðu gengið gegn tíllögum Hæstaréttar um hver skyldi skipað- ur dómari við réttinn. Með því taldi Eiríkur að sjálfstæði dómstóla hefði verið settíhættu. Björn braut jafnréttislög Kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að Jón Steinar Gunnlaugsson Davíð Oddsson Inga Jóna Þórðardóttir Jón Gunnarsson Björn Bjarnason hefði brotið jafn- réttislög þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti hæsta- réttardómara í ágúst árið 2003. Hjördís Hákonardóttir, þáverandi dómsstjóri, kærði skipun Ólafs Barkar og í apríl árið 2004 varð nið- urstaðan sú að dómsmálaráðherra hefði gerst brotlegur við lögin. Mál- inu lauk hins vegar með samkomu- lagi sem fólst í því að Hjördís fór í árs námsleyfi, en hún sneri ekki aftur til starfa sem dómsstjóri hjá Héraðsdómi Suðurlands. f umsögn hæstaréttadómara um umsækj- endur sagði að Eiríkur Tómasson og Ragnar H. Hall hefðu verið hæf- ustu umsækjendurnir og heppileg- astír í starfið. Tengsl Ólafs Barkar við forystu- sveit Sjálfstæðisflokksins voru og eru mjög umdeild, enda eru hann og Davíð Oddsson systkinabörn og því náfrændur. Framsóknarmenn íborginniduglegir Óskar Bergsson, varaborgarfull- trúi Framsóknarflokksins, var gagn- rýndur harðlega fyrir verktaka- samning hans við Faxaflóahafnir, hann var ráðinn verkefnisstjóri Mýrargötuframkvæmda fyrir hönd Faxaflóahafna. Hann þóttí sitja beggja vegna borðsins þar sem hann var formaður fram- kvæmdaráðs og varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkur. Eftir mikla gagnrýni og umræðu í fjöl- miðlum rifti Óskar samningi sínum að lokum. Fleiri umdeildar ráðningar hafa einkennt stjórnartíð Framsóknar- flokksins í Reykjavík á núver- andi kjörtímabili. Rúnar Hreinsson, sem starfaði sem kosninga- stjóriFram- sóknar- flokksins í þing- kosn- ingun- um og sem kosningastjóri Björns Inga Hrafns- sonar, var í haust ráðinn verkefna- stjóri hjá Reykjavík Energy Invest. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarmað- ur í Reykjavík Energy Invest, er góð- ur vinur Rúnars og þóttí ráðningin mjög umdeild. Forsætisráðherrafrú í stað Alfreðs Inga Jóna Þórðardóttir, eigin- kona Geirs Haarde og fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík, var skip- uð í haust tíl að stýra nýrri nefnd um fasteignir, nýbyggingar og að- stöðu heUbrigðisstofn- ana, sem Guðlaug- ur Þór Þórðarson heilbrigðisráð- herra setti á lagg- irnar. Skömmu áður hafði fram- kvæmdanefnd um byggingu hátæknisjúkra- húss Landspít- alans verið lögð embætti dómara. niður, en þeirri nefnd stýrði Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins. Sem kunnugt er lauk ríkisstjórnarsam- starfi Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins í vor, en Guðlaugur Þór neitaði því sjálfúr að hafa gert skipulagsbreytingarnar til þess að bola Alfreði frá. Ný stjórn Leifsstöðvar Jón Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinn- ar, var í sumar kjörinn formaður stjómar Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar ohf. Jón Gunnarsson féll af þingi í síðustu alþingiskosn- ingum en situr fyrir hönd Samfylkingarinnar sem ,, formaður. Auk hans sitja Rannveig Guðmunds- dóttir og Sigrún Jónsdótt- ir fyrir hönd Samfylking- arinnar. Flugstöðin er í eigu ríkisins og fer utan- ríkisráðherra með hlut þess í henni. fíMMTAN BITLIMfiflp Geir H. Haarde Skipaði spilafélaga Daviðs í embætti dómara. 19. APRÍL. DV greindi frá því í vor að þriðjungur þeirra þingmanna sem náðu kjöri eftir 1995 og hættu fyrir siðustu þingkosningar var ráðinn i góða stöðu hjá ríkinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.