Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Síða 35
PV Helgarblað FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 35 's&m | Eitt besta íslenska leikritið „Og ég staðfestist í þeirri trú að Dagur vonar er eitt af allra bestu I leikritum sem hér hafa verið skrifuð, eitt fárra verka sem manni finnst Kklegt til langlífis." Úr | sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Degi vonar. ■ Leiklistargagnrýnandi DV, Jón Viðar Jónsson, fer yfir leikhúslífiö á árinu _ HÆÐIROGLÆGÐIRA LIÐNU LEIKÁRI _ Þegar litið er um öxl til liðins leikhúsárs standa fjórar sýningar upp úr, tvær heimatilbúnar, tvær innfluttar: Dagur vonar hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur, Draumalandið í Hafnarfjarðarleikhusinu og gesta- leikirnir tveir: ballettsýning Helga Tómassonar frá San Francisco, sem gisti Listahátið sl. vor, og Frelsari Kristjáns Ingimarssonar sem var sýndur á sviði Þjóðleikhússins fýrir skemmstu (rétt að taka fram að þeg- ar þetta er skrifað er ég staddur er- lendis og hef ekki enn séð jólasýn- ingu Þjóðleikhússins á Ivanov). Það er auðvitað skemmtilegt við þessar tvær gestasýningar að þær eru unnar af íslenskum leikhús- mönnum sem hafa haslað sér völl erlendis með jafnglæstum árangri og raun ber vitni. Um velgengni Helga höfum við heyrt og lesið árum saman, auk þess sem hann hefur áður heimsótt okkur með sýningar sínar, aldrei þó frumsamdar, eins og gerðist nú. En til þess var sannarlega kominn tími, því vart getur leikið á tveim tungum að Helgi er kominn í röð fremstu ballethöfunda samtím- ans. Ég hygg að fleirum hafi farið líkt og mér, menn áttu á góðu von, en þó varla jafnótrúlega glæsilegri og áhrifamikilli list og fyllti svið Borg- arleikhussins. Helgi ræður að sjálf- sögðu yfir dansflokki í heimsklassa, sem hann hefur byggt upp á síðustu tuttugu árum, en að hann væri jafn- frumlegur og frjór danshöfundur og þarna sýndi sig, það kom fleirum en mér örugglega á óvart. Sérstaklega var minnisstætt verk hans við tónlist Bachs, þar sem dansinn og músík- in studdu svo vel hvort við annað að það var nánast eins og maður væri að heyra þessa alkunnu og undur- fögru tónlist í fyrsta skipti. Við Frels- ara Kristjáns ætla ég ekki að dvelja í þetta sinn; aðeins að ítreka þakk- ir mínar til hans og von um að við fáum fleiri tækifæri til að fylgjast með ferli hans en við höfum átt kost á hingað til. Sýna hvað íslenskt leikhús getur Ég ætla hins vegar að segja nokkur orð um sýningarnar tvær, Drauma- landið og Dag vonar, af því að þær sýna svo vel hvað íslenskt leikhús getur - ef réttir listamenn fá verðug- an efnivið í hendur og hafa listrænt hugrekki til að leggja stöku sinnum á hin brattari klifin. Að vissu leyti má líka segja að þær standi hvor á sinn hátt fyrir tvo helstu mótpóla nú- tímaleikhússins: annars vegar leik- hús leikaranna (Dagur vonar), hins vegar leikhús leikstjórans (Drauma- landið). f leikhúsi leikaranna skiptir mestu að leikararnir fái að blómstra í hlutverkum sínum, hlutverkum sem annaðhvort eru mjög bitastæð frá hendi höfunda eða eru þannig vaxin að þau gefa túlkendunum færi á að sýna bestu hliðar sínar eða endurnýja sig á óvæntan hátt. Frumsýningin á Degi vonar fýr- ir tuttugu árum var fyrir margra hluta sakir eftirminnileg, en upp- færsla LR, sem Hilmir Snær Guðna- son stýrði, stóð henni í engu að baki og var meira að segja skemmtilega ólík henni í sumu. Það var auðséð að Hilmir Snær hafði áttað sig á því sem er höfuðatriði í svona sviðsetn- ingum: að leikstjórnin á að vera sem ósýnilegust áhorfendum, nán- ast eins og leikararnir hafi sjálfir sett þetta á svið (aðeins í einum punkti feilaði sýningin að þessu leyti, með því að láta leikinn fara fram í rimla- búri sem var fráleit og gersamlega óþörf ofskýring - þó ég geti viður- kennt að rimlarnir voru sums stað- ar notaðir á áhrifamikinn hátt). Það er bara það að í svona leikhúsi vill maður vera í beinu sambandi við leikendurna sjálfa, nema öll blæ- brigði raddarinnar, sjá svipbrigðin. Það var að sjálfsögðu vitað að Dagur vonar er eitt af bestu verkum íslenskra samtímaleikbókmennta, en maður gat samt varla búist við að það bæri aldurinn jafnvel og reynd- in varð. Annað var líka merkilegt: það hversu vel hún hélt sér á svið- inu, ég skrifaði leikdóm um hana í ísafold, sællar minningar, þegar hún var frumsynd í ársbyrjun, en fór svo aftur að sjá hana undir vorið, og þá hafði hún í engu glatað fersk- leika sinum og krafti, þvert á móti hafði frammistaða langflestra leik- enda dýpkað til muna. Og þá gerð- ist það sem er alltaf svo skemmti- legt: fyrir mér opnaðist ákveðin vídd á verkinu sem ég hafði ekki áttað mig á fyrr. Eins og fleiri hafði ég haft efasemdir um lýsingarnar á bræðrunum tveimur, fannst höf- undur sýna öðrum þeirra fullmikla samúð (þeim sem af sumum hefur verið talin eftirmynd hans sjálfs), en nú rann það upp fyrir mér að þeir eru nákvæmlega jafnsekir og aðrir í því sem er kjarni og aðalharmleik- ur verksins: geðveiki systurinnar. Með gagnkvæmu hatri og fyrirlitn- ingu, á hvor öðrum, móðurinni og ástmanni hennar, viðhalda þeir því andrúmslofti sem stöðugt rekur systurina aftur í greipar sjúkdóms- ins. Og ég staðfestist í þeirri trú að Dagur vonar er eitt af allra bestu leikritum sem hér hafa verið skrif- uð, eitt fárra verka sem manni finnst líklegt til langlífis. Hætt við að svona fjölskyldur, „dysfunktionalar" eins og það heitir á máli fræðanna, verði alltaf til í einhverri mynd - því miður. Söfnuður meðal leikhúsfólks Miðað við Draumalandið þætti sjálfsagt ýmsum Dagur vonar frekar gamaldags verk. Eins og umræður síðustu vikna og mánaða hafa sýnt er sumt leikhúsfólk haldið þeirri áráttu að vilja skipta leikhúsi upp í tvennt: annars vegar eitthvað sem það telur „framsækið", ferskt og ný- stárlegt, hins vegar það sem bygg- ist á gamalkunnum forskriftum og á samkvæmt því að vera íhaldssamt og úr sér gengið. Það hefur stund- um flökrað að mér að þessi leiða til- hneiging stafi bæði af vanþekkingu Erindi Tinnu Tinna Gunnlaugsdóttir á enn eftir að sýna að hún hafi átt erindi (stól þjóðleikhússtjóra, að hún hafi burði til að stýra þessari stofnun á farsælan hátt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.