Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2007, Page 68
68 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007
Ferðir DV
MADAME
Blysför Úti-
vistar og FÍ
Á laugardaginn verður ferðaárið
2007 kvatt með pompi og prakt.
Ferðafélagið Útivist og Ferðafélag
íslands standa fyrir léttri göngu frá
Nauthóli í gegnum skóginn í
öskjuhlíðinni að Perlunni þar sem
boðið verður upp á flugeldasýn-
ingu. Jólasveinar heimsækja
hópinn í skóginum, bregða á leik
og taka lagið. Brottför verður
klukkan 17.15 en flugeldasýning
Landsbjargar hefst klukkan 18. Allir
eru að sjálfsögðu velkomnir og
þátttaka er ókeypis.
Blaðamaöurinn Kolbrún Bergþórsdóttir fer óhefðbundnar leiðir um hátiðirnar.
Þegar dæmigerðir íslendingar sprengja allt sem sprungið getur í loft upp dvelst Kol-
brún ein í góðu yfirlæti á hótelherbergi í London, og horfir á breska sjónvarpið.
C MYNDUÐ MEÐ BRESKU
KONUNGSFJÖLSKYLDUNNI
Framhalds-
námskeið
í ísklifri
Þeir sem vilja byrja árið með stæl
geta svo sannarlega fundið
eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem hafa
áhuga á að príla geta skellt sér á
(sklifurnámskeið í Klifurhúsinu.
Islenski Alpaklúbburinn mun í
samstarfi við Islenska fjallaleið-
sögumenn halda framhaldsnám-
skeið I ísklifri en það fer fram
miðvikudagskvöldið9.janúar
klukkan átta. Nánari upplýsingar
verða til taks á isalp.is þegar nær
dregur en skráning á þetta
framhaldsnámskeið er óþörf.
Kolbrún Bergþórsdóttir flýr til London yfir áramótin Hér er hún á góðri stund á TUSSAUDS ? t4Trr4,11 . •' -sn mmmim
VladameTussauds-vaxmyndasafninu fræga. > . 33~Í11 ilit 2 L
Óvissuferð
Islenskir fjallaleiðsögumenn bjóða
öllum áhugasömum til óvissuferð-
ar (nágrenni Reykjavíkur á
laugardaginn. Um er að ræða
göngu á eitthvert fjall í námunda
við Reykjavík, en veður og færð
munu að sjálfsögðu ráða
áfangastað. Leifur örn Svavarsson
verður leiðsögumaöur (ferðinni en
á heimasíðu félagsins er ferðin
flokkuð sem miðlungserfið.
Nauðsynlegt erað mæta með
nesti og viðeigandi búnað en
sameinast verður í bíla við brottför.
Nauðsynlegt er að skrá sig eigi
síðar en á hádegi föstudaginn 28.
desember. Verð er 4.900 krónur en
farið verður frá Vagnhöfða 7
klukkan 9 á laugardagsmorgnin-
um,
„Ég hafði mjög gaman af áramót-
unum þegar ég var barn og unglingur
en í seinni tíð get ég ekki hugsað mér
að vera hér á íslandi í öllum látun-
um. Ég er svolítið eins og hundarn-
ir; þoli ekki lætin, drykkjuskapinn og
hávaðann í flugeldunum. Maður get-
ur ekki farið að sofa á skikkanlegum
tíma vegna þess að úti á götu eru svo
mikil læti að maður festir ekki svefn.
Áramótin raska ró minni," segir Kol-
brún Bergþórsdóttir blaðamaður, en
hún hefur undanfarin ár forðað sér
aflandi brott um áramótin.
„Einn daginn stóð ég frammi fyr-
ir því að taka ákvörðun um hvað ég
ætti til bragðs að taka. Ég var búin
að fá nóg af íslenskum áramótum og
ákvað einfaldlega að láta mig hverfa
af landinu. Ég er ekki rík svo ekki
hafði ég sumarbústað til að flýja í. Ég
ákvað því að nota bara vísakortið og
skreppa til London," segir hún.
Troðin undir á Time Square
Undanfarin ár hefur Kolbrún því
dvalið í London um áramótin. „Einu
sinni fór ég á Time Square um ára-
mótin þarna úti og var næstum því
troðin undir. Ég átti fótum mínum
fjör að launa og hélt heim á hótel. Ég
gekk sem leið lá eftir Oxford-stræti.
Þar voru eiginlega engir á ferli, á
þessari frægu götu, nema nokkrir
rónar. Þetta var mjög einkennilegt
og ég var fljót að forða mér upp á
herbergi og ákveða að á Time Squ-
are færi ég aldrei aftur á gamfárs-
dag. Eftir þennan atburð hef ég varið
gamlárskvöldum á hótelherbergi og
horft á breska sjónvarpið. Þar er ver-
ið að fara yfir merkilegustu atburði
ársins, kryfja helstu skandala fræga
fólksins; drykkjuskap þess og fram-
hjáhöld," segir Kolbrún og bætir við
að þetta sé albesta sjónvarpsefni
sem völ er á. „Ég er aldrei einmana
um áramót."
Nýársdagur aðaldagurinn
Þó Kolbrún dvelji ein síns liðs
á sama hótelinu ár eftir ár fer fjarri
því að henni leiðist. „Ég er alltaf
mjög spennt fyrir því að nýársdag-
ur renni upp. Það er einn skemmti-
legasti dagur ársins hjá mér. Þá geng
ég Oxford-stræti þar sem allt er á 50
prósenta afslætti. Ég skoða og versla
í búðum fram á kvöld, gef sjálfri mér
jólagjafir og kaupi allt sem hugurinn
girnist. Þetta er dásamfegur dagur,"
segir hún. Aðspurð hvort hún borði
góðan mat í þessum ferðum sínum
segir hún svo vera. „Ég borða eigin-
lega alitaf á sama stað á gamlársdag.
Það er sannkölluð kóngamáltíð en
veitingastaðurinn heitir Kentucky
Fried Chicken. Það bregst aldrei,"
segir hún ákveðin.
Jólin á íslandi
Þótt hún vilji vera erlendis
um áramótin eru jólin heilög fyr-
ir henni. „Ég held jólin alltaf hér á
íslandi. Ef ég héldi jólin í útlönd-
um fyndist mér ég vera að saurga
helgidóminn. Aðfangadegi ver ég í
faðmi fjölskyldunnar en á jóladag
og á öðrum jóladegi er ég alltaf ein
heima hjá mér og finnst það æð-
islegt. Þá les ég, horfi á góðar bíó-
myndir og borða hátíðarmat. Ég
hleypi engum að mér þessa daga
enda eru þeir dásamlegir," segir
Kolbrún.
Menningarreisa
Kolbrún fer jafnan út á þriðja
degi jóla en kemur heim ann-
an janúar. Hún notar tímann
vel úti til að heimsækja söfn og
fara á leiksýningar. „Ég fer alltaf
í leikhús í þessum ferðum mín-
um. Þegar ég fer í leikhús hérna
heima leiðist mér svo hrylli-
lega að ég geng yfirleitt út í hléi.
„Standardinn" á leikhúsinu í
London er hins vegar alveg stór-
kostlegur. Þar hef ég séð Kristin
Scott Thomas, sir Ian McKellen
og Derek Jacobi svo einhverjar
stjörnur séu nefndar. Ég fer líka
mikið á söngleiki eins og My Fair
Lady og Mary Poppins," segir hún
en þetta árið verður Mary Popp-
ins aftur fyrir valinu.
Kolbrún er líka dugleg að
heimsækja listasöfn og venur
komur sínar meðal annars á vax-
myndasafn Madame Tussauds.
„Ég stunda það að fara í safnið
og láta taka af mér myndir með
frægu fólki. Julia Roberts varð
einu sinni fyrir valinu og síðast
lét ég mynda mig með bresku
konungsfjölskyldunni þar sem
ég smellpassaði í hópinn," segir
Kolbrún glöð í bragði.
Þótt hún fari iðulega ein síns
liðs til London kemur stundum
fyrir að hún hitti þar góða vini.
1 ár stefnir í að hún hafi góðan
félagsskap. „Um þessi áramót
stefnir allt í að vinur minn Egill
Helgason verði staddur í London
líka. Ég geri því fastlega ráð fyrir
að drekka með honum te á ein-
hverju glerfínu hóteli," segir hún
að lokum.
FERÐINNI
Umsjórr. Baldur Guðmundsson. Netfang: ba I d u r@dv. i s
Hve margir ísbirnir hafa komið til íslands?
ÁVfsindavefnum kemurfram að skráðareru (heimildir rétttæplega 250 hvítabjarnarkomurtil landsins
frá upphafi byggðar, með um 500 dýrum. Elsta frásögn um ísbjarnarkomu er sögð vera frá um 890, en
þá á Ingimundur gamli, landnámsmaður í Vatnsdal, að hafa séð birnu með tvo húna og varð þá tii
örnefnið Flúnavatn (Austur-Húnavatnssýslu. Síðast kom hvítabjörn til landsins árið 1993 sem var
hífður upp úr sjó og hengdur. Drápið olli miklum deilum en dýrið er til sýnis, uppstoppað, á náttúru-
gripasafninu í Bolungarvík.