Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Síða 2
Fréttir DV 2 MIÐVIKUDAGUR 1 l.JÚNl 2008 FRÉTTIR Ekki veitt í Héðinsfirði Landeigendur í Héðinsfirði hafa ákveðið að selja ekki veiði- leyfi til almennings í Héðinsfirði í sumar. Þorsteinn Jóhannesson, formaður veiðifélags Héðins- fjaröar, segir að þetta hafi verið ákveðið vegna þess hve umsvifa- mikil sprengjuvinna standi fyrir dyrum vegna Héðinsfjarðar- ganga. „Úr varð að verktakinn greiðir veiðifélaginu fyrir að selja engin veiðileyfi til almennings," seg- ir Þorsteinn. Landeigendur og starfsmenn verktakafyrirtækja fá eftir sem áður að veiða í firðinum sem er rómaður fyrir góða sjó- bleikjuveiði. Síldin komin Fyrstu síldinni, sem berst til Norðurlands á þessari vertíð, var landað á Þórshöfn. Sigurð- ur VE-15 landaði þar fullfermi af sfid, eða 1500 tonnum, og fór hún öll í bræðslu. Sfldin veiddist norðaustur af Jan Mayen en mjög góð sfldveiði er á þessum slóðum og um tugur íslenskra skipa þar á veiðum. Sfldin er úr norsk-ís- lenska sfldarstofninum, en tölu- vert hefur orðið vart við sfld úr stofninum í íslensku lögsögunni. Þetta kom fram á ruv.is Skjálftafundur með Árna Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson, þingmenn Fram- sóknarflokksins, hafa sent Árna M. Mathiesen, fyrsta þingmanni Suðurkjördæmis sem og öðrum þingmönnum kjördæmisins, beiðni þar sem farið er þess á leit við ráðherr- ann að hann boði alþingis- menn til fundar vegna nýaf- staðinna jarðskjálfta. Vilja ffamsóknarmennirn- ir að á fundinn verði boð- aðir fulltrúar þeirra sveitar- félaga sem harðast urðu úti f skjálftanum, forystumenn sunnlenskra sveitarfélaga, Viðlagatryggingar íslands, Almannavarna á svæðinu og þar verði farið yfir afleiðingar jarðskjálftanna og staða mála rædd með heimamönnum. Kaupum meira afáfengi Sala á áfengi jókst um rúm 13 prósent í maí miðað við sama mánuð árið áður. Ef miðað er við breytilegt verðlag á milli ára er aukningin þó tæp 20 prósent. f maí var velta áfengisverslunar 18,9 prósent meiri en í aprfl þar á undan miðað við fast verðlag. Líkleg skýring á þessari auknu sölu áfengis er fimmta helgin í maí sem viðmiðunarmánuðirnir hafa ekld. Neyslan eykst á sama tíma og verð hefur hækkað um 5,8 prósent ff á því í fyrra. Sigmundur Eyþórsson. slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, hefur verið leyst- ur frá störfum á meðan stjórn embættisins fer yfir hvers vegna Qölmiðlar höfðu að- gang að útkallsrásum embættisins. Sigmundur segir sjálfur nauðsynlegt að sannleik- urinn í málinu verði leiddur í ljós og boltinn sé hjá Brunavörnum. Sigurvin Guðmundsson stjórnarformaður segir að nú sé verið að skoða hversu alvarlegt eða umfangsmikið málið er. SLÖKKVILIÐSSTJÓRI SETTURIFROST VALGEIR ÖRN RAGNARSSON ^ V blaðamadurskrifar: valgeir@dv,is Sigmundur Eyþórsson, slökkvi- liðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, hefur verið leystur frá störfum í ótilgreindan tíma á meðan stjórn Brunavarna Suðurnesja skoð- ar hvers vegna tilteknir fjölmiðlar höfðu aðgang að útkallsrásum emb- ættisins. DV greindi frá því í síðasta mánuði að slökkviliðsstjórinn hefði meðal annars veitt Morgunblað- inu, Fréttablaðinu, Vflcurfréttum og Loga Bergmann Eiðssyni, fféttaþul hjá Fréttastofu Stöðvar 2, aðgang að kerfi og tíðnisviðum embættis- ins. Fjölmiðlunum var kleift að fá aðgang með svokölluðum Tetra- talstöðvum. Ákvörðun um að Sig- mundur yrði settur í leyfi var tekin um helgina. {launuðu fríi Sigurvin Guðmundsson, stjórn- arformaður Brunavarna Suður- nesja, staðfestir að Sigmundur sé kominn í leyfi á meðan embættið skoðar málið. „Þetta snýst um þetta Tetra-mál og aðgang fjölmiöla að kerfinu. Þetta er í ákveðnum farvegi núna og við erum að skoða hversu alvarlegt eða umfangsmikið þetta mál er." Sigurvin segir ómögulegt á þessu stigi að tjá sig um hvort eða hvenær Sigmundur muni snúa aft- ur til starfa, eða hvernig tekið verði á málinu af hálfu embættisins. „Ég vil ekki kalla þetta rannsóknarferli, við erum að setjast niður og fara yfir málið, það er staðan eins og hún er núna. Það er ómögulegt að segja hversu langan tíma þetta ferli mun taka, en á meðan við erum að gera okkur grein fyrir staðreynd- um málsins er hann heima hjá sér í launuðu fríi," segir hann. Jón Guðlaugsson, aðstoðar- slökkviliðsstjóri Brunavarna Suð- urnesja, hefur verið skipaður í starf Sigurmundar um ótilgreindan tíma. Spurður um samskipti embættisins Slokkvilið Fjölmiðlar höfðu aðgang að útkallsrásum slökkviliðsins. Sigmundur Eyþórsson Sigmund- ur verður í leyfi á meðan stjórn Brunavarna Suðurnesja skoðar málið ,Það er ómögulegt að segja hversu langan tíma þetta ferli mun taka, en á meðan við erum að gera okkur grein fyrir staðreynd- um málsins, þá er hann heima hjá sér í launuðu fríi: við Sigmund, segist Jón ekki vita til þess að ósætti ríki um ákvörðunina. Eðlilegt að vera heima Eins og fram hefur komið í DV sagðist Sigmundur heimila til- teknum fjölmiðlum aðgang að útkallsrásunum á þeim forsend- um að gott samstarf við fjölmiðla væri mikilvægt og það væri gott að upplýsingar kæmust sem fyrst í hendur fjölmiðla. Fjölmargir lýstu yfir óánægju sinni með einhliða ákvörðun Sigmundar, þar sem viðkvæmar persónuupplýsingar væru gefnar upp á rásunum. Sigmundur kvaðst ekki hafa áhyggjur af því. DV ræddi við Sigmund í gær. „Þetta er náttúrlega sú niðurstaða sem stjórn- in hefur tekið, að ég sé í launuðu sumarfríi. Það er alveg eðlilegt á meðan málið er í rannsókn og ég er ekkert ósáttur við það. Sannleikann í málinu þarf að leiða í ljós," segir Sigmundur Eyþórsson. Hann vill lítið tjá sig um framtíð sína hjá slökkvi- liðinu og segir boltann vera hjá stjórninni. „Það er ekki mitt að ákveða hvað gerist næst, stjórnin vinnur sína vinnu og næstu skref eru í henn- ar höndum," segir * - hann. Stefán Karl Lúðvískson er vonsvikinn vegna sakfellingar: Dæmdur fyrir deyfandi sleipiefni Stefán Karl Lúðvíksson, eigandi erótísku verslunarinnar Amor, var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðsiu fjörutíu þúsund króna sektar fyrir að ílytja til landsins handjárn og sleipiefni. Áðspurður hvort dómurinn hafi valdið honum vonbrigðum segir Stefán: „Að sjálfsögðu." Hann bætti við að hann væri staddur erlendis og gæti því ekki tjáð sig frekar um dóminn. Forsaga málsins er að við tollaeít- irlit síðasta sumar voru gerð upptæk 36 sett af handjámum úr málmi og 24 túpur af sleipiefni sem innihélt ólögleg lyf. Stefán var síðan ákærður fyrir brot á vopnalögum vegna innflutnings hand- jámanna og brota á lyfjalögum vegna innihalds sleipiefriisins. Hann hafði þá selt hvort tveggja í verslunum sínum en tók það úr sölu eftir athugasemdir lögreglu. Sleipiefnið sem um ræðir heit- ir Anal-ease og inniheldur benzocain sem er deyfandi efni. Það fæst víða í erótískum búðum erlendis og er með- al annars hægt að fá það með kirsu- berjabragði. Nú selur Stefán hins vegar sleipiefnið Moist Anal Lube með sam- þykki lögreglunnar. 1 frétt DV um málið sagði Stefán að viðskiptavinir hans hafi spurt reglulega um handjámin eftir að þau voru fjar- lægð úr versluninni. Viðskiptavinimir hafa að sögn Stefáns lýst yfir hneyksl- un sinni og undrun yfir því að honum sé meinað að selja handjámin. Stefán hefur alla tíð kallað jámin ástarjám, sem er bein þýðing úr ensk- unni; love cuffs. Samkvæmt löggjafan- um heyra þau þó undir vopnalög. Ekki er ljóst hvort Stefán ætlar að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. erla@dv.is Neitaði sök Stefán Karl Lúðvíksson sagðlst aldrel hafa grunað að hann væri að fremja afbrot og hætti sölu á bæði handjárnunum og sleipiefninu þegartollayfirvöld gerðu athugasemdir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.