Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008
SUÐURLAND DV
Vatnajökulsþjóögarður var vígöur á laugardag við hátíðlega athöfn í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfri. Anna
Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra og stjórnarformaður garðsins, segir verkefnið það
stærsta sinnar tegundar á íslandi. Þá segir hún hugmyndafræðina á bak við garðinn einnig vera nýja og
ólíka því sem er í öðrum görðum hérlendis.
TÆRSTA NA'
VERNDARVEI
ISLANDS
‘**‘.r**ti 4 ■ *v,** • •.
.• -• m. •
--«r, >,4f ' 5..,' 'rr
. . . '"L- '
•?' *• ' ~ '*ILL• •* ' v-* 4*’ '*„** ' ’’■■. .
Vatnajökull Þekur um helming
hins nýja þjóðgarðs.
„Þetta hefur verið í pípunum í
tæpan áratug eða allt frá árinu 1999,"
segir Anna Kristín Ólafsdóttir, að-
stoðarmaður umhverfisráðherra
og stjórnarformaður garðsins, um
Vatnajökulsþjóðgarð sem varð að
veruleika á laugardag. Garðurinn er
sá stærsti sinnar tegundar í Evrópu
og langstærsta náttúruverndarverk-
efni íslands fyrr og síðar. „Þetta er
ekki bara risaverkefni heldur tíma-
mótaverkefni í náttúruvernd á ís-
landi."
Ný hugmyndafræði
Alls hafa fjórar formlegar undir-
búningsnefndir komið að skipulagn-
ingu garðsins ffá árinu 1999. „Þessar
nefndir hafa verið í æðislega miklu
samráði við hagsmunaaðila á svæð-
inu og alla þá sem að málinu koma,"
segir Anna Kristín. „í fyrra setti Al-
þingi síðan lög um stofnun garðsins
og þau tóku gildi núna um helgina."
Anna Kristín segir hugmynda-
fræði Vatnajökulsþjóðgarðs vera aðra
en í öðrum þjóðgörðum hér heima.
„Eitt af markmiðum garðsins er að
búa til störf og skapa traustar byggð-
ir í kringum hann. Þjóðgarðinum er
ætlað að sýna að verndað land geti
skilað þjóðartekjum," en þarna segir
Anna Kristín vernd og nýtingu fara
saman sem sé eitt af grunnhugtökum
landsins. „Einnig er það nýbreytni
að hluti garðsins er ekki í eigu ríkis-
ins heldur í einkaeign og því um áður
óþekkta samnýtingu að ræða."
Skiptist {fjögur svæði
Þjóðgarðinum er skipt upp í fjög-
ur meginsvæði. Þau eru norður-,
suður-, austur- og vestursvæði. „Á
hverju svæði verða síðan sérstök
svæðisráð," en Anna Kristín segir
það gefa íbúum hvers svæðis tæki-
færi á að komast nær garðinum og
hafa áhrif á mótun hans. „Svæðis-
ráðin eru síðan yfirstjórn garðsins
innan handar. Með ráðningar á fólki,
uppbyggingu og annað sem snýr að
garðinum."
Einnig verða byggð ný og glæsi-
leg gestahús á hverju svæði. „Sam-
kvæmt framkvæmdaáætlun verða
gestahúsin tilbúin á næstu fimm
til sex árum. Einnig verða byggðar
landvarðastöðvar auk upplýsinga-
og þjónustumiðstöðva," en allt mun
þetta sameinast í sterku innra neti
fyrir garðinn sem bæði eykur að-
gengi hans og uppbyggingu. „Síð-
ast en ekki síst vonumst við til þess
að auka landsvæði hans á komandi
árum," segir Anna Kristín að lok-
um en hægt er að kynna sér garðinn
nánar á heimasíðu umhverfisráðu-
neytisins. asgeir@dv.is
Horft yfir Breiðamerkursand frá
Kvíárjökli Bláma bregður á
Breiðamerkurjökui.Veðurárdalsegg
leynist á bak við.
VEIKOMIN í
SKAFTAFELLSSTOFU
Anna Kristfn Flytur tölu við opnun
Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli.
Björk Hákanson og Linda
Vilhjálmsdóttir
Ganga saman á Brúarjökul sem er
hluti afVatnajökli.
TIU ÞÚSUND FINGUR
Meira en tíu þúsund fingur hafa leikið
fagra tónlist á þetta píanó, síðan það
kom í Húsið á Eyrarbakka, árið 1871.
Það var flutt á seglskipi til landsins, í
árabáti upp í fjöru, þaðan sem fjórir
menn báru það heim í grenjandi
rigningu. En þú getur snert það núna í
Húsinu á Eyrarbakka.
HÚSIÐ Á EYRARBAKKA
Söfnin vlð Suðurstrondina
Opið alla daga frá 15. rnaí til 15. sept. rnilli kl 11 -18. Á öðrum tíinum eftir samkomulagi.
sími 483 1504 | husid@south.isj www.husid.com
Guðbjartur Jónsson verslunarmaöur leggur kristal á vogarskálar:
Þekkir sjálfur hamfarir
Hamfarakristall Guðbjartur
Jónsson og Lada Cherkasoff.
„Það verða allir að hjálpa til þeg-
ar svona atburðir gerast," segir Guð-
bjartur Jónsson, verslunarmaður í
Bergkristal. Verslun hans hefur boðið
íbúum jarðskjáltasvæðanna á Suður-
landi afslátt af kristals- og posmlíns-
vörum og hefur afsláttarmiði verið
sendur í öll hús á hamfarasvæðinu.
Hann segir að strax hafi fólk farið
að koma í búðina til að leita upplýs-
inga um hvernig best yrði fýllt í þau
skörð sem skjálftarnir gerðu í spari-
borðbúnað flestra heimila.
„Við erum að bjóða hágæðavörur
frá ffamleiðendum sem í árhundruð
hafa þolað hið misjafna rússneska
stjórnarfar keisara og kommúnista,
þannig að seiglan í vörunum er til
staðar. Þó ég ábyrgist ekki að þær séu
skjálftafríar," segir hann og brosir.
Þrátt fyrir að tryggingar bæti tjón
á flestu því er aflaga fór í hamförun-
um verður þetta smærra oft út und-
an og því nauðsynlegt að koma til
móts við fólk eftir svona atburði.
Sjálfur kveðst hann hafa lent
í hamförum snjóflóða þar sem
hann tapaði miklu, bæði stóru
sem smáu, og þekki vel vanda fólks
á svæðinu.