Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2008, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNI2008
SUÐURLAND DV
Langisjór er ekki hluti af Vatnajökulsþjóðgarði eins og lagt var upp með. Sveitarstjórn Skaftárhrepps
samdi við Þórunni Sveinbjarnardóttur um að Langisjór yrði ekki hluti af þjóðgarðinum fyrr en að ári,
þegar allir kostir við nýtingu Langasjávar og Skaftár hefðu verið skoðaðir. Bæði er litið til virkjunar-
möguleika og eins aðgerða til þess að hindra landeyðingu af völdum framburðar árinnar.
SKAFTÁ og klaustur Skaftá hefur, að
margra mati, valdið skaða með framburði á leir
og gosefnum sem síðan fjúka um sveitirnar.
BJARNI OANlELSSON Sveitarfélagið hefur
eitt ár til þess að meta hvað skynsamlegast
sé að gera varðandi friðun og nýtingu
Langasjávar og Skaftár.
Sveitarstjórn Skaftárhrepps vill að
farið verði í saumana á virkjun-
armöguleikum Skaftár og land-
eyðingaráhrifum hennar áður en
ákveðið verður hvort Langisjór
fær inni í Vatnajökulsþjóðgarði.
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra óskaði eftir því
að Langsjór tilheyrði þjóðgarðin-
um strax frá upphafi, en samdi við
sveitarstjórnina að svo yrði eftir
eitt ár, eftir að nýtingarmöguleikar
Skaftár hefðu verið skoðaðir ofan
íkjölinn.
„Sveitarstjórnin vildi gefa sér
tíma til þess að bregðast við at-
hugasemdum frá íbúum hér á
svæðinu, ekki síst vegna tilrauna
til þess að hefta leirframburð í
Skaftá," segir Bjarni Daníelsson,
sveitarstjóri Skaftárhrepps.
Virkjun Skaftár
Talið er að með því að virkja
Skaftá megi framleiða á bilinu
130 til 150 megavött af raforku og
hafa hugmyndir um þess konar
virkjun oft verið viðraðar. „Menn
hafa rætt það að með því að beina
Skaftá f gegnum Langasjó á nýj-
an leik þá myndi mikið af fíngerð-
um jökulleir og öðrum framburði
Skaftár sökkva til botns í Langasjó.
Á sama tíma yrði til vatnsmiðlun
fyrir virkjun," segir Bjarni. „Slíkt
verður þó ekki gert án þess að til
komi gríðarlegar framkæmdir
með bæði jarðraski og mannvirkj-
Bjarni segir að þessar hug-
myndir séu hins vegar ákaflega
umdeildar og í raun ólíklegt að
lagt verði f slíka framkvæmd.
„Það er hins vegar nauðsynlegt að
leggjastyfir það hvaða möguleikar
eru í stöðunni, bæði hvað varðar
landgræðslu og landvernd og ekki
síður virkjunarmöguleika."
Ánni veitt I hraunið
Annarvandi sem blasir við íbú-
um í Skaftárhreppi er þegar áin
hleypur og flæðir út í Eldhraunið.
„Ánni hefur reyndar þegar verið
veitt út í hraunið til þess að tryggja
vatnsmagn í sjóbirtingsánum í
Meðallandi og Landbroti. Það eru
hins vegar mjög skiptar skoðan-
ir um þessar ferðir vatnsins, bæði
neðan- og ofanjarðar í hrauninu
og hér eru á ferðinni sjónarmið
sem við þurfum að finna ásættan-
legan flöt á," heldur Bjarni áfram.
Hann segir að þegar sé mik-
ið til af upplýsingum um þessi
mál. Menn þurfi að kynna sér þær
betur áður en endanleg ákvörð-
un um framtíð Langasjávar verði
tekin. Það séu umhverfisspjöllin
sem hljótist af framburði árinnar
sem standi fólki næst, en virkjun-
armöguleikar Skaftár spili mikið
hlutverk í sveitarfélagi sem glími
við öra fólksfækkun.
Friðun og nýting
„Við erum í rauninni í sama
vetfangi að velta fýrir okkur um-
fangsmikilli landvernd og ffiðun
og stórbromum virkjunar- og nýt-
ingaráformum," segir Bjarni. „Það
eru reyndar margir sem trúa því að
þetta tvennt geti farið saman og að
virkjunarframkvæmdir þurfi ekki
endilega að vera náttúruspjöll."
Bjarni segir að með hækkandi
orkuverði og aukinni eftirspurn
geti forsendur hafa skapast til þess
að vanda enn frekar til verka en
hingað til hefur verið gert í vams-
aflsvirkjunum.
Gert er ráð fýrir að Landgræðsla
ríkisins, Vamamælingar og Nátt-
úrufræðistofnun muni standa að
þessum athugunum næsta árið,
áður en það ræðst hvort Langis-
jór hlýtur friðun innan þjóðgarðs-
ins. „Það eru margar hliðar á þessu
og margir sem eiga hagsmuna að
gæta. Menn þurfa að geta skýrt
með góðum og gildum rökum þær
aðgerðir sem á endanum verður
gripið til," segir Bjarni.
Iðnað á staðinn
Engar formlegar umleitanir hafa
verið innan sveitarinnar um að fá
þangað stóriðju af einhverju tagi.
Bjarni bendir þó á að ef til Skaft-
árvirkjunar kæmi, þá yrði það skil-
yrði að hluti orkunnar yrði nýttur
í héraðinu. „Sjálf virkjunin myndi
ekki skila sveitarfélaginu öðru en
fasteignasköttum," segir hann.
Ekki hafi verið rætt um að sækj-
ast eftir því að álver verði staðsett
í sveitinni eða slíkt. Ef hins vegar
finnist einhver orkufrek starfsemi
sem skapi störf á svæðinu, þá sé
það slíkt sem sóst sé eftir.
„Það er mjög í tísku að tala
um netþjónabú. Það er hins veg-
ar önnur atvinnustarfsemi sem
þarf á orku að halda. Orkuverð fer
stöðugt hækkandi og eftirspurnin
eykst. Það hangir hins vegar óhjá-
kvæmilega á spýtunni að fá hing-
að einhverja tegund af orkufrekri
starfsemi."
Fólksfækkun
Bjarni segir að þrátt fyrir að
Skaftárhreppur og Kirlq'ubæjar-
klaustur séu óháð hremmingum
kvótakerfis þá sé fólksfækkun á
svæðinu alvarlegt vandamál. Fyrir
25 árum hafi búið ríflega sjö hundr-
uð manns í sveitinni. I dag búi þar
rétt um 470 manns. „Svona fækkun
veikir helstu stoðir samfélagsins og
dregur úr þeirri þjónustu sem nú-
tímafólk gerir kröfur um." Það sé því
áríðandi fýrir ffamtíð samfélagsins
við Skaftá að finna lausn sem henti.
„Menn binda ekki síður vonir
við stofnun Vamajökulsþjóðgarðs
í þessu samhengi. Stór hluti þjóð-
garðsins kemur til með að verða
innan Skaftárhrepps. Lakagígar og
einhver ræma í kringum þá hafa
tilheyrt Skaftafellsþjóðgarði hingað
til. Allur sá þjóðgarður fellur nú inn
í Vatnajökulsþjóðgarð." Þá sé eftir
að taka Langasjó með í reikninginn,
auk þess sem nokkrar líkur séu á því
að hluti af Eldgjá komi til með að til-
heyra þjóðgarðinum.
„Þetta er hefðbundið landbún-
aðarsvæði og auðvitað viijum við
líka sjá landbúnaðinn pluma sig,
jafnvel með einhverjum breyttum
formerlq'um. Eftir stendur að menn
vilja snúa fólksfækkuninni við með
öllum tiltækum ráðum."
sigtryggur@dv.is