Málfregnir - 01.12.1999, Blaðsíða 27

Málfregnir - 01.12.1999, Blaðsíða 27
unar í námi leikskólakennara er tekið mið af því hvernig starfið verði best unnið úti á vettvangi og hvað eigi þess vegna erindi við leikskólakennara sem eiga að sinna uppeldi og menntun bama á fyrsta skólastigi þeirra. I samræmi við hvað álitið er nauðsynlegt er ráðinn sérfræðingur í hverri fræðigrein. Það er síðan sérfræðingsins að meta, m.a. út frá gildandi Aðalnámskrá fyrir leikskóla (áður Uppeldisáœtlun fyrir leikskóla) hvað úr við- komandi fræðigrein á erindi við leikskóla- kennara með hliðsjón af starfinu á vett- vangi. Það val, sem sérfræðingurinn stendur frammi fyrir hverju sinni, breytist og þróast m.a. í takt við nýja þekkingu og breytingar á uppeldisumhverfi bama. Á sama tíma og ný Aðalnámskrá fyrir leikskóla kom út var verið að endurskoða námskrá leikskólaskorar og var því starfi lokið vorið 1999. íslenskukennsla var skert um 1 og '/2 einingu frá því sem verið hafði. Samkvæmt nýrri námskrá, sem tók gildi frá og með 1. bekk haustið 1999, er ekki gert ráð fyrir að leikskólakennarar fái kennslu um íslenskt mál, hvorki er varðar málnotkun þeirra sjálfra né fræðilega umfjöllun um tungumálið sjálft. Þeir fá kennslu um mál- töku bama, málþroska og málörvun en þá kennslu þyrfti að undirbyggja betur með því sem áður er talið. Til þess að leikskólakenn- arar geti nýtt sér niðurstöður úr rannsóknum um málþroska bama þurfa þeir að vera vel að sér um íslenskt mál og þekkja helstu hug- tök sem fræðileg umræða um það byggist á. Það er auðvitað ljóst að gera verður ráð fyrir ákveðinni þekkingu nemenda um íslenskt mál þegar þeir hefja nám við Kenn- araháskólann enda er stúdentspróf skilyrði fyrir inntöku í skólann. En þegar nemandi hefur valið sér að verða leikskólakennari breytist sjónarhornið í þessu efni hins vegar mjög mikið. Málnotkun leikskólakennara er ekki þeirra einkamál, ef svo má að orði komast, í sama mæli og margra annarra starfstétta. Leikskólakennarar eru, fyrir utan foreldra, mikilvægasta málfyrirmynd barna á máltökuskeiði og það eru gerðar þær kröf- ur til þeirra í samfélaginu, eins og annarra kennara, að þeir vandi málfar sitt og fylgi þeim reglum málsins sem þykja góðar og gildar. Könnunarpróf í ýmsum atriðum, er varða daglegt mál og lagt er fyrir nýnema á haustin, sýna ásamt öðru, svo að ekki verð- ur um villst, að brýn þörf er á því að auka til muna kennslu um íslenskt mál í leik- skólaskor. Ekki má þó skilja orð mín þannig að nemendur og leikskólakennarar séu upp til hópa ótalandi fólk. En í áðurnefndri rann- sókn Rannveigar Á. Jóhannsdóttur kemur fram að skilningur leikskólakennaranna, sem hún ræddi við, á ábyrgð sinni á málrækt í starfi sínu, kom m.a. fram í því að þeir ættu sjálfir að vera góð málfyrirmynd barna með sinni eigin málnotkun. Og nemendur leik- skólaskorar hafa látið í ljósi áhuga á kennslu um þetta efni. Við þessu verður að bregðast og jafnvel háskóli getur ekki leyft sér að líta fram hjá raunverulegum aðstæðum þegar móðurmálskennsla kennara á í hlut. Nú stendur yfir endurskoðun á námskrám allra skora Kennaraháskólans og er m.a. miðað að sameiginlegum námskeiðum fyrir nemendur allra skora. Islenska er grunnfag í öllu skólakerfinu og á einnig að vera það í menntun leikskólakennara. Eg vænti þess að fullt tillit verði tekið til þess í umræddri námskrárvinnu. Á degi íslenskrar tungu í fyrra (1998) gerðust þau ánægjulegu tíðindi að leik- skólakennarar fengu viðurkenningu fyrir framlag sitt til málræktar. Það var í senn viðurkenning fyrir gott starf sem unnið er í leikskólunum og viðurkenning á mikilvægi starfsins og þeirri staðreynd að leikskóla- kennarar eru fyrstu móðurmálskennarar bama. Og ef það á einhvern tíma við að allir kennarar séu móðurmálskennarar, þá á það alveg sérstaklega við um leikskólakennara. En viðurkenningin er einnig hvatning til þeirra um að halda áfram og gera gott starf betra. Til þess þurfa leikskólakennarar stuðning og þann stuðning eiga þeir fyrst og fremst að fá í grunnmenntun sinni í Kenn- araháskóla Islands. 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.