Málfregnir - 01.12.1999, Page 38

Málfregnir - 01.12.1999, Page 38
TRYGGVI GÍSLASON Málvernd í ljósi fortíðar og skugga framtíðar í þessum hugleiðingum um málvemd og stöðu íslenskrar tungu á aldahvörfum er það einkum þrennt sem ég geri að umræðuefni. I fyrsta lagi held ég því fram að íslensk tunga hafi aldrei staðið sterkar sem lifandi þjóðtunga en nú. I öðru lagi ætla ég að gera grein fyrir því hvers vegna styrkur þjóð- tungu í fámennu málsamfélagi er svo mikill sem raun ber vitni. I þriðja lagi horfi ég fram á veginn til þess að reyna að átta mig á því hvað bíður, því að íslensk tunga stendur á tímamótum eins og margar aðrar þjóð- tungur. Þessar hugleiðingar bera svip félagsmál- vísinda - sem svo eru kölluð - en félagsmál- vísindi fjalla um tungumál sem afsprengi mannlegs samfélags þar sem ráða sterk hagsmunaöfl, en mannlegt mál er félagslegt tjáningartæki og ber einkum að líta á tungu- mál í því ljósi. 1 íslensk tunga hefur aldrei staðið sterkar sem lifandi þjóðtunga en nú undir lok þessarar aldar sem sögð er mesta framfaraskeið í sögu mannkyns en jafnframt skeið mestu grimmdarverka sem sögur fara af, öld glundroða, örbirgðar og siðleysis en sam- tímis öld göfugra hugsjóna, mikilla menn- ingarafreka og ómœldra lífsgœða og hefur hún því verið nefnd öld öfganna, svo að vitnað sé til orða breska sagnfræðingsins Erics Hobsbawms. Staðhæfingu mína reisi ég á þeirri stað- reynd að undanfarna áratugi hefur verið rit- að um fleiri þekkingarsvið á íslensku en áður. Skáldsagnagerð, leikritun, ljóðagerð og önnur orðlist, s.s. kvikmyndagerð og gerð útvarps- og sjónvarpsþátta, stendur með miklum blóma. Nýmæli á ýmsum svið- um hafa komið fram svo sem í ljóðagerð og vísnasöng og í auglýsingagerð, bæði í blöð- um, útvarpi og sjónvarpi, þar sem orðvísi og frumleiki hefur auðgað tunguna, t.d. með orðaleikjum sem áður voru óþekktir í málinu. Síðustu áratugi hefur líka orðið til ný íslensk fyndni, gamansögur og orðaleik- ir, einkum meðal ungs fólks, sem áður voru óþekktir í málinu. Vandaðar bækur um fjöl- breytt efni hafa verið gefnar út alla öldina, ekki síst undanfarinn aldarfjórðung. Fleiri njóta kennslu í íslensku og íslenskum bók- menntum og sögu þjóðarinnar en áður. Víð- tækar rannsóknir hafa verið gerðar á máli, málnotkun, bókmenntum, sagnfræði, fé- lagsvísindum, mannfræði og heimspeki í skjóli Háskóla Islands og stofnana hans. Nýyrðasmíð er öflugri en nokkru sinni og hafa bæði einstaklingar, stofnanir og fyrir- tæki tekið þátt í því starfi. Fleiri nota nú ritað mál og talað í daglegu starfi og tóm- stundum en áður. Síðast en ekki síst hafa stjómvöld og almenningur verið einhuga um að auka málrækt og málvemd, m.a. með því að efla íslenskukennslu í skólum, og er síðasta vitni um þennan einhug ný aðalnám- skrá í íslensku fyrir framhaldsskóla sem menntamálaráðherra gaf út í sumar en meginþema dags íslenskrar tungu 1999, sem þetta málræktarþing Islenskrar málnefndar er hluti af, er einmitt skólinn og tungan. 2 Aður en lengra er haldið vil ég leyfa mér að geta þess að erlend áhrif - erlend menning- aráhrif og erlend máláhrif - hafa auðgað íslenskt samfélag, auðgað íslenskt málsam- félag og íslenska tungu og gert hana betur hæfa til þess að gegna hlutverki sínu sem fé- lagslegt tjáningartæki í margskiptu þjóðfé- 38

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.