Málfregnir - 01.12.1999, Síða 48

Málfregnir - 01.12.1999, Síða 48
Því tel ég að stjórnvöld þurfi að móta opinbera málstefnu sem víðtækt samkomu- lag yrði um. Til þess þarf að efna til umræðu um íslenskt mál og íslenska málstefnu og þurfa margir að taka þátt í þeim umræðum auk stjómvalda, s.s. rithöfundar og skáld, kennarar og skólayfirvöld, málvísindamenn og sagnfræðingar, auk þess sem fulltrúar atvinnulífsins - og þá ekki síst fulltrúar einkafyrirtækja - þurfa að taka þátt í því mótunarstarfi, enda hafa mörg einkafyrir- tæki sýnt málvernd og málrækt áhuga og skilning auk þess sem opinber málstefna varðar alla þætti þjóðlífsins. Islensk málstefna verður að mínum dómi að taka til fimm atriða. I fyrsta lagi þarf að leggja meiri áherslu á fjölþætta og mark- vissa móðurmálskennslu í skólum í samráði við heimilin og efla íslenska námsgagna- gerð, eins og stefnt er að með nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og nýrri námskrá í íslensku sem hér hefur verið til umræðu. I öðru lagi þarf að setja fjölmiðlum reglur um mál og málnotkun á sama hátt og Ríkisútvarpið hefur gert; þar á meðal þarf að setja reglur um íslenskan framburð. I þriðja lagi þarf að auka þýðing- ar úr erlendum málum og koma á fót íslenskri þýðingarmiðstöð sem annist þýð- ingar á erlendum textum sem varða daglegt líf fólks. I fjórða lagi þarf að endurskoða kennslu í erlendum tungumálum frá grunni og gera alla Islendinga talandi á tveimur tungumálum. M.a. þarf að huga að kennslu í Norðurlandamálum í grunnskólum lands- ins. I fimmta lagi ber að stofna íslenska akademíu þar sem sitja rithöfundar og skáld, kennarar og málvísindamenn og fulltrúar atvinnulífsins. Undir stjóm íslenskrar aka- demíu og í samvinnu við Orðabók Háskóla Islands og Islenska málstöð verði unnið að gerð tölvutækrar orðabókar sem hafi að geyma allt ritað mál íslenskt frá upphafi, auk þess sem akademían sæi um gerð ann- arra hugbúnaðartækja fyrir íslenska tungu- tækni, s.s. íslenska þýðingarvél. Þetta eru verðug verkefni fyrir íslenska þjóð á nýrri öld alþjóðlegra samskipta og þjóðlegra verðmæta. Menntaskólanum á Akureyri, nóvember 1999. Heimildir AÖalnámskrá framhaldsskóla. Islenska. Menntamálaráðuneytið, 1999. Arsskýrsla Ríkisútvarpsins 1985. Fréttabréf Islenskrar málnefndar, 11. maí 1982. Gísli Pálsson, Vont mál og vond málfræði. Um málveirufræði, Skírnir 153. ár, 1979. Halldór Halldórsson og Baldur Jónsson, íslensk málnefnd 1964-1989. Afmœlisrit, 1993. Helgi Guðmundsson, Um ytri aðstæður íslenzkrar málþróunar, Sjötíu ritgerðir helgaðar Jakobi Benediktssyni, 1977. Höskuldur Þráinsson og Kristján Ámason, Um reykvísku, Islenskt mál 6, 1984. Jón Jóhannesson, Islendinga saga I. 1956. Islensk bókmenntasaga I, 1992. íslenzkfornrit XXVII, 1945. Kjartan G. Ottósson, Islensk málhreinsun. Sögulegt yfirlit, 1990. Kulturhistorisk Leksikon VII, 1962. Málfregnir 5,1, 1991. Naisbitt, John, Global Paradox, 1994. -, High Tech - High Touch, 1999. Tlie First Grammatical Treatise (útg. Hreinn Benediktsson), 1972. Þorbjöm Broddason, Minnkandi bókhneigð ungmenna, Skíma 3, 1992. 48

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.