Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 49

Málfregnir - 01.12.1999, Qupperneq 49
Fjölbreytni málsins þarf að njóta sín Dóra Hafsteinsdóttir ræðir við Jón Hilmar Jónsson orðabókarritstjóra. Jón Hilmar Jónsson hefur staifað á Orða- bók Háskóla íslands frá árinu 1982. Eitt helsta viðfangsefni hans undanfarin ár hefur verið orðabókarleg lýsing orðasam- banda. Meginverk hans á því sviði er orða- bókin Orðastaður. Orðabók um íslenska málnotkun sem kom út árið 1994. Jón Hilmar hefur lengi tekið virkan þátt í nor- rœnu orðabókasamstaifi og var m.a. sex ár í stjórn Nordisk forening for leksikografi, sem formaður síðustu tvö árin, 1995-1997. Hann er og einn höfunda Nordisk leksiko- grafisk ordbok. Viðtal um sama efni birtist í tímariti norrœna orðabókafélagsins, NFL- nytt, 1, 1999. - Hvenær fórstu að huga að því að semja Orðastað og hvað varð til þess? - Hvatinn að orðabókinni tengist þeim viðfangsefnum sem voru efst á baugi hér á stofnuninni á 9. áratugnum og fram um 1990. Þá vorum við að taka tölvutæknina í þjónustu okkar, gerðum yfirlitsskrá um fiettiorðin í seðlasafninu og prófuðum á ýmsan hátt hvemig söfnin stæðu sem efni- viður í orðabókarlýsingu. Við gerðum tals- vert mikla atrennu að lýsingu sagnorða, þar sem við greindum ýmis einkenni þeirra, ekki síst þau sem lúta að setningarlegri stöðu og orðasamböndum ýmiss konar. Þessi vinna kom m.a. fram í sérstöku sýnis- hefti sagnorðabókar árið 1993. Á þessum árum voru líka að koma út orðabækur þar sem setningarleg staða orðanna og orðasam- bönd voru í brennidepli, bækur eins og Collins COBUILD English Language Dicti- onary og BBI Combinatory Dictionary of English sem mér þóttu athyglisverðar á margan hátt. Þessar aðstæður urðu til þess að ég fór að velta því fyrir mér að þörf væri á að semja orðabók um íslensku þar sem dregin yrðu fram þau einkenni orðanna sem felast í setningarlegum samböndum, einkum orðastæðum, en orðmyndunarleg vensl yrðu einnig dregin inn í myndina. Mér fannst þetta tvennt að mörgu leyti eiga samleið og sá að í yfirlitsskránni um orðaforðann í ritmálssafni Orðabókar Háskólans var mikill efniviður til orðabókar af þessu tagi. Framan af vann ég mest að bókinni í hjá- verkum en síðan fékk ég árs rannsóknarleyfi til að fást við hana eingöngu, fram á árið 1993, og viðbótarleyfi nokkru síðar sem tryggði það að ég gat lokið við bókina árið 1994. - Orðastaður er að ýmsu leyti óhefð- bundin og ólík þeim íslensku orðabókum sem til voru þegar hún kom út. - Það má segja það. Það var ekki til nein íslensk orðabók um setningarsambönd í lík- ingu við Dansk sprogbrug eða Svensk hand- ordbok, svo að vísað sé til norrænna orða- bóka, svo að hér var farið inn á nýjar slóðir. En efnisafmörkun og framsetning er talsvert ólík því sem er í þeim orðabókum. Það gef- ur vissar vísbendingar að nefna stærðar- hlutföll í bókinni. Flettiorðaforðinn er til- tölulega takmarkaður, u.þ.b. 11.000 orð. Orðasamböndin eru hins vegar u.þ.b. 45.000 og til viðbótar þeim koma um 15.000 notkunardæmi í formi heilla setn- inga. I allt eru svo tilgreind nálega 100.000 samsett orð. Orðsgreinarnar eru misjafnlega efnismiklar og reynt er að gefa gildustu orðunum það rými sem þau útheimta. Meg- ináhersla er lögð á að haga efnisvali og efnisskipan þannig að flettiorðið sé eðli- legur kjami þeirra orðasambanda og sam- setninga sem undir því birtast og það veitir aðgang að. Hér sýndist mér þurfa að draga skýrari markalínur en gert er í mörgum hliðstæðum orðabókum, t.d. gagnvart orð- 49

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.