Málfregnir - 01.12.1999, Page 52

Málfregnir - 01.12.1999, Page 52
kjarkur sem hugtaksheiti en þá er líka komin til sögunnar annars konar orðabók. - Ertu farinn að sjá fyrir þér nýja orða- bók? - Eins og ég sagði fannst mér Orðastaður kalla á framhald í þessa átt svo að ég byrjaði að safna efni til orðabókarlýsingar af þessu tagi samhliða því sem ég fékkst við Orða- stað. Undanfarin ár hef ég svo verið að fást við þetta verkefni og er nú reyndar í rann- sóknarleyfi til að vinna að því sérstaklega. Eg geri mér vonir um að sú vinna skili sér fljótlega í nýrri orðabók, vonandi á næsta ári. - Hefurðu velt fyrir þér hvaða möguleikar fælust í því að koma efninu fyrir í tölvu og veita aðgang að því sem rafrænni orðabók? - Það er augljóst mál að það er hægt að bjóða upp á fleiri aðgangsleiðir að orðabók- artexta í tölvu. Það er hægt að stýra leitinni miklu betur og þrengja hana stig af stigi. Og það má nýta ýmis flokkunaratriði sem síður og jafnvel alls ekki koma til greina í prent- aðri bók, t.d. ýmislegt sem varðar setningar- gerð og ýmiss konar hugtakavensl. Sjálfsagt er að greina slík atriði sem best á vinnslu- stigi til flokkunar á efninu hvert sem birting- arformið verður. En það kostar óhjákvæmi- lega mikla vinnu að búa þannig um efnið að kostir rafrænnar orðabókar nýtist til fulls. En gildi hugtakslegrar flokkunar og auð- kenningar á orðum og orðasamböndum er ekki bundið við hugtakaorðabækur einar. Það er t.d. mikill stuðningur að slikri grein- ingu við gerð tvímálaorðabóka þannig að hægt sé að auðkenna og binda saman sam- stætt orðafar sem þá má skoða í heild og bera að jafnheitum markmálsins og hafa hliðsjón af skyldu orðafari við jafnheitaval- ið hverju sinni. Kannski má líka beinlínis hugsa sér að hugtakaheiti á máli notandans geti á einhvem hátt verið aðgangslykill að upplýsingum um framandmálið, tengt saman efnisatriði í orðabókartextanum og þannig komið notandanum á sporið þegar hann þekkir ekki eða ratar illa á þau flettiorð sem hann á erindi við. - Sennilega verður orðabókamotendum sjaldnast hugsað til höfundar orðabókarinn- ar og þess hvað fyrir honum vakti þegar hann var að semja bókina og hvað það var sem hélt honum við efnið. Hvað finnst þér hafa haldið þér við efnið? - Eg á ekki auðvelt með að svara því en það er mikil ánægja í því fólgin að kynnast auðlegð tungunnar svo að ég noti hátíðlegt orðalag, og fá tækifæri til að miðla þeirri fjölbreytni sem orðaforðinn býr yfir og stuðla þar með að því að menn geti tjáð sig á markvissan og blæbrigðaríkan hátt. Von- andi hafa sem flestar orðabækur komið not- endum sínum að gagni að þessu leyti. Stór og mikil orðabókarverk eru vissulega til þess fallin að vekja tilfinningu fyrir því að málið sé auðugt, orðaforðinn stór og fjöl- breyttur, en það er ekki alltaf hlaupið að því að höndla þessa fjölbreytni. Það getur reynst erfitt að fá yfirsýn, maður situr oftast nær fastur í tiltölulega litlum atriðum og það eru ekki nema hraustustu menn sem lesa orða- bækur og það dugir reyndar skammt því að lestrarefnið er ekki ýkja samstætt. Mér finnst þörf á að koma betur til móts við not- endur í þessu efni og ég er ánægður ef það hefur tekist að einhverju leyti. - Það skiptir þá höfuðmáli að framsetn- ingin þjóni sem best markmiði orðabókar- innar. Er kannski betra við það að eiga þegar aðeins er einn höfundur að orðabók? - Já, ég held að það sé ekki hægt að neita því. Auðvitað er það að ýmsu leyti gallað og áhættusamt að vera einn á ferð en á hinn bóginn vill orðabókarhöfundur gjarna hafa ákveðið sjálfræði um það hvernig hann vel- ur og hafnar, hvað skilið er eftir og hvað blásið er út og hvað fær að njóta sín í fullri breidd eða stærð. Þetta getur jafnvel varðað miklu um það hvort menn njóta þess að vinna verkið og koma því á leiðarenda. Og það er óneitanlega auðveldara að semja við sjálfan sig en heila ritnefnd. Eg get vísað hér til reynslunnar af Orðastað en þar lenti ég í því á miðri leið að mér fannst ég þurfa að gera ákveðnar breytingar á framsetningunni 52

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.