Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014 Embætti landlæknis gaf út nú í sumar skýrslu um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería í mönnum og dýrum á Íslandi á árinu 2013. Þetta er annað árið í röð sem fjallað er um notkun og næmi í bæði mönnum og dýrum. Sambærileg skýrsla um sýklalyfjanotkun í mönnum var gefin út í nokkur ár þar á undan. Í nýju skýrslunni segir m.a.: „Sýklalyfjaónæmi baktería er ein af stærstu heilbrigðisógnum heimsins í dag. Aukið ónæmi fyrir sýklalyfjum veldur vandamálum við meðferð sýkinga og hefur þar af leiðandi slæmar afleiðingar fyrir heilsu manna og dýra og veldur auknum kostnaði við heilbrigðisþjónustu. 400 þúsund sýkingar af völdum ónæmra sýkla í Evrópu Sóttvarnastofnun Evrópu- sambands ins (European Centre for Disease Prevention and Control - ECDC) áætlar að í Evrópu einni komi upp um það bil 400 þúsund sýkingar á ári hverju af völdum ónæmra sýkla sem leiða til um 25 þúsund dauðsfalla. Með auknum ferðalögum og viðskiptum með matvæli og dýraafurðir heimshorna á milli opnast leiðir fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur til að dreifa sér. Sýklalyfjaónæmi er því alþjóðlegt vandamál. Sýklalyfjanotkun er einn af áhrifamestu þáttunum í vali og dreifingu sýklalyfjaónæmis, þótt sambandið geti verið flókið. Röng og/eða of mikil notkun sýklalyfja eykur hættu á uppkomu og útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Forsenda markvissra aðgerða gegn óskynsamlegri sýklalyfjanotkun er að hafa góðar og áreiðanlegar upplýsingar um notkun sýklalyfja og þróun ónæmis gegn þeim. Á Íslandi er hvatt til þess að sýklalyf séu notuð með ábyrgum hætti. Áhersla er lögð á sýkingavarnir á heilbrigðisstofnunum og fylgst er með tíðni sýkinga sem tengjast heilbrigðisþjónustunni.“ Góð staða í landbúnaði en verri hvað fólk varðar Erlendar rannsóknir sýna að Noregur og Ísland eru í fararbroddi Evrópuríkja hvað varðar litla sýklalyfjanotkun í búfénaði mælt sem magn á þyngdareiningu. Víða annars staðar er hún talsvert mikil, m.a. í þeim löndum sem íslenskir kaupmenn sækja kjöt til að selja á Íslandi. Er staðan verst á Kýpur, Ítalíu, Spáni og í Þýskalandi. Þá er hún líka margfalt meiri í Danmörku en á Íslandi og um 40 sinnum meiri á Spáni, en þaðan hafa Íslendingar m.a. verið að fá nautakjöt. Varað hefur verið við því að sýklalyfjaleifar í kjöti geta borist í menn og safnast þar upp. Þetta getur leitt til sýklalyfjaónæmis og útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería sem landlæknisembættið bendir á í skýrslu sinni. Aftur á móti sýnir skýrslan að staðan er ekki eins góð hvað mannfólkið varðar. Þar er Ísland rétt fyrir ofan meðaltal Evrópuríkja og eftirbátur allra Norðurlandaþjóðanna. Notkun sýklalyfja fyrir dýr hefur dregist saman Fram kemur í skýrslunni að sýklalyfjanotkun í dýrum fór minnkandi á árunum 2010–2012 en stóð nokkurn veginn í stað milli áranna 2012 og 2013. Sala í flestum lyfjaflokkum minnkaði á tímabilinu 2010–2013 en þó má nefna að sala á lyfjum úr flokki súlfónamíða og trímetópríms hefur aukist um 119% á tímabilinu og þar af um 80% milli áranna 2012 og 2013. Salmonella og Campylobacter sp. stofnar sem greindust í mönnum á Íslandi 2013 og teljast til innlends smits voru vel næmir fyrir flestum sýklalyfjum sem prófað var fyrir. Þó hefur ónæmi Campylobacter- stofna fyrir cíprófloxacíni verið að aukast á árunum 2009–2012 og vert að fylgjast með því á næstu árum. Stofnar Salmonella og Campylobacter sp. í kjúklingum og svínum hafa einnig verið vel næmir fyrir þeim sýklalyfjum sem prófað hefur verið fyrir síðustu ár. Campylobactersýking í kjúklingum sú minnsta síðan eftirlit hófst Sýni eru tekin úr hverjum kjúklingaeldishópi tveimur til fimm dögum fyrir slátrun allt árið. Eldishópar sem eru Campylobacter-jákvæðir í eldi eru frystir strax eftir slátrun. Við slátrun eru tekin sýni til Campylobacter-ræktunar úr botnlöngum kjúklinganna. Ekki eru tekin slátursýni úr eldishópum sem voru jákvæðir í eldi. Á árinu 2013 greindist Campylobacter í um 1,9% af kjúklingasláturhópum á Íslandi (sjá mynd 37) og hefur tíðnin ekki verið jafn lág síðan eftirlit hófst. Um mitt ár 2012 var þó eftirliti breytt á þá leið að engin sýni eru tekin úr sláturhópum m.t.t. Campylobacter yfir vetrarmánuðina, eða í janúar, febrúar, mars, nóvember og desember, þar sem líkur á jákvæðum hópum eru hverfandi á þessum árstíma. Því er erfitt að bera saman niðurstöður frá seinni hluta árs 2012 og ársins 2013 við niðurstöður fyrri ára. Niðurstöður skýrslunnar eru að notkun sýklalyfja í mönnum hefur haldist nokkurn veginn óbreytt síðustu ár. Þó hefur notkunin minnkað eilítið síðustu ár í aldurshópunum 0–4 ára og 15–19 ára. Athygli vekur að notkun þröngvirkra sýklalyfja innan heilbrigðisstofnana hefur minnkað milli áranna 2012 og 2013 á meðan notkun breiðvirkra lyfja hefur aukist. /HKr. Skýrsla landlæknisembættisins um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi 2013: Sýklalyfjanotkun í dýrum hefur dregist saman – Varðandi almenning standa Íslendingar sig verst allra Norðurlandabúa Um síðustu áramót tók gildi ný reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu (nr. 1160/2013). Fulltrúar Landssambands sauðfjárbænda (LS) höfðu veg og vanda af gerð hennar með umsögn frá ýmsum aðilum, sem svo ráðuneytið staðfesti 20. desember. Um áramótin tóku jafnframt gildi ný lög um búfjárhald. Með gildistöku þeirra laga færðist búfjáreftirlit frá sveitarfélögum yfir til Matvælastofnunar (MAST) og í stað þeirra sem fyrir voru í hlutastörfum voru ráðnir sex dýraeftirlitsmenn, einn í hvert umdæmi landsins. Matvælastofnun hefur hingað til séð um eftirlit með velferð og aðbúnað dýra en með nýrri gæðastýringarreglugerð var stofnuninni falið að fara með eftirlit með framkvæmd gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu. Dýraeftirlitsmenn sinna nú ásamt héraðsdýralæknum og eftirlitsdýralæknum eftirliti með velferð og aðbúnaði dýra og hafa eftirlit með sérstökum þáttum gæðastýringar. Í nýrri gæðastýringarreglugerð er eins og áður miðað við að lágmarkskröfur aðbúnaðar- reglugerðar sauðfjár séu uppfylltar en til viðbótar við þær kröfur er skerpt á umhverfismálum þ.e. umgengni og ásýnd býla. Helstu þættir sem hafa þarf í huga: • Þeir sem óska eftir að taka upp gæðastýrða framleiðslu sækja um það í Þjónustugátt Matvælastofnunar fyrir 20. nóvember ár hvert. Beiðni um að hætta er jafnframt send til MAST. • Umsækjandi þarf að sækja undirbúningsnámskeið. • Framleiðendur eru skyldaðir til að fylla út gæðahandbók, s.s. áburðarnotkun, gróf fóður- öflun og fóðrun, landnýtingu, lyfjakaup og -notkun, umhverfi, ástand og ásýnd umhverfis. • Fjárstofn skal skrá í skýrslu- haldskerfi Bænda samtaka Íslands fyrir 31. desember. Sé það ekki gert fær viðkomandi bóndi viðvörun og í framhaldi fjögurra vikna frest, annars er litið svo á að viðkomandi uppfylli ekki skilyrði um gæðastýrða framleiðslu. • Eftirfarandi eru þættir sem varða ímynd sauð fjár búskapar, þ.e. viðmið unar reglur um mat á umhverfisþáttum. Bóndi telst ekki uppfylla skilyrði um gæðastýringu ef eitt eða fleiri atriði eru ekki í lagi: • Girðingar: Ástand girðinga er með þeim hætti að þær eru hættulegar skepnum t.d. liggja á hliðinni, laus gaddavír og svo framvegis. • Umhverfi mannvirkja: Óþrifnaður út frá taðhaugum, járnadrasl, ónýtir rafgeymar, áberandi magn af ónýtum vélum, tækjum o.s.frv. • Umhirða og uppröðun lausra hluta: Magn ónýtra tækja sem ekki er raðað eða komið fyrir með skipulegum hætti, sem og vélar og tæki sem hindra aðgengi að mannvirkjum. • Laust plast, net, garn og stórsekkir: Laust og fjúkandi plast, net og garn. Stórsekkir áberandi, t.d. plast, net og garn. Stórsekkir á girðingum eða troðið niður í kringum rúllustæður. Ekki sinnt um að hirða plast, net og garn af rúllum sem eru gefnar úti. Haugar af ónýtum rúllum með rifið plast. Tómir og/ eða ónýtir áburðar- eða fóðurbætissekkir. • Framleiðandi þarf að uppfylla skilyrði um landnýtingu á öllu því svæði sem tilgreint er í umsókn. Uppfylli heimaland ekki kröfur þarf að vinna landbótaáætlun til allt að 10 ára og skal þá leita umsagnar Landgræðslu ríkisins. • Uppfylli framleiðandi ekki skilyrði gæðastýringar skal MAST veita hæfilegan frest til úrbóta þó að hámarki fjögurra vikna frest, samkvæmt reglugerðinni. Þegar grípa þarf til ráðstafana vegna vanfóðrunar, harðýðgi, slysa eða slæms aðbúnaðar hjá framleiðanda skv. 38. gr. laga nr 55/2013 um velferð dýra eru skilyrði gæðastýringar ekki uppfyllt. Í slíkum tilfellum skal ekki veita frest til úrbóta. – Sjá viðkomandi reglugerð á vef MAST og LS undir Lög og reglugerðir. Ljóst er að miklar breytingar hafa átt sér stað í hefðbundnu búfjáreftirliti, eins og við flestar breytingar ganga þær sjaldnast hnökralaust fyrir sig. Eftirlitsaðilar sem og bændur hafa bent á ýmsa þætti sem betur mættu fara í kjölfar eftirlits síðasta vors og vinnur nú MAST að því að endurskoða verklag og framsetningu, m.t.t. þeirra athugasemda sem gerðar hafa verið. Mikilvægt er að framkvæmd eftirlits sé í stöðugri endurskoðun og að markvisst sé unnið að úrbótum. Á þessu ári hefur að nokkru verið komið til móts við framleiðendur og sveigjanlegri frestur verið veittur en reglugerðin segir til um, þ.e. lengri en 4 vikur. Ljóst er að það samræmist ekki reglugerðinni, en er tímabundin viðleitni MAST til að vinna með framleiðendum að settum markmiðum gæðastýringar. Metnaður allra er jú að tryggja aðbúnað og velferð dýra og í gegnum gæðastýringareglugerðina að skrásetja framleiðsluaðferðina, tryggja rekjanleika afurða, viðhalda náttúrugæðum og ásýnd býla. Ásdís Helga Bjarnadóttir, dýraeftirlitsmaður ...frá heilbrigði til hollustu Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.