Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014 Bandaríski dýralæknirinn og erfðafræðingurinn dr. Phillip Sponenberg hélt fyrir skömmu fyrirlestur á vegum Bændasamtaka Íslands um erfðaauðlindir búfjár og nauðsyn þess að vernda þær. Sponenberg sagði í stuttu samtali við Bændablaðið að þrátt fyrir að fjöldi búfjárkynja væri í útrýmingarhættu væri vaxandi vilji til að vernda þau enda nauðsynlegt til að viðhalda erfðafjölbreytileika búfjárstofna. Í fyrirlestrinum kom fram að fjölmargar ástæður liggi að baki nauðsyn þess að vernda ólík búfjárkyn og að engin ein ástæða sé mikilvægari en önnur. „Rökin sem algengust eru í dag eru að með því að vernda ólík kyn sé verið að viðhalda erfðaefni sem geti komið sér vel í framtíðinni vegna breytinga í umhverfinu eða til að koma á móts við breyttar neysluvenjur. Báðar þessar ástæður eru góðar og gildar og tengjast fæðuöryggi.“ Margs konar rök fyrir verndun Sponenberg segir að einnig sé hægt að líta á nauðsyn þess að vernda erfðaauðlindir út frá þeirri hugmynd að okkur hafi verið afhent búfé með fjölbreytt genamengi og að okkur beri skylda til að varðveita það fyrir komandi kynslóðir. Hægt er að rökstyðja verndunina út frá vísindalegum rökum og segja að hvert kyn búi yfir sérstöku genamengi og að fjölbreytileikinn sé bæði áhugaverður og gagnlegur út frá vísindalegu sjónarhorni. Dæmi um þetta er sjaldgæft sauðfjárkyn sem nefnist Jakobsfé og er eina dýrið að manninum undanskildum sem vegna genamengis síns getur borið Tay- Sachs-sjúkdóminn. Vegna þessa er féð mjög mikilvægt þegar kemur að rannsóknum á sjúkdómnum og gæti orðið lykillinn að lækningu. Ekki má gleyma menningarlegum rökum sem líta til tengsla búfjárkynjanna við samfélögin sem ræktuðu þau upp og nytjuðu. Búfjárkyn sem hafa verið ræktuð vegna sérstakra eiginleika og nytja eru hluti af sögu, menningu og afrekum samfélaga á sama hátt og byggingar, bókmenntir og listir. Breyttar áherslur í ræktun Miklar breytingar hafa orðið í ræktun búfjár frá því um aldamótin 1900. Fyrir þann tíma voru breytingar hægar og stofnar stöðugir. Útbreiðsla stofna var út frá ákveðnum svæðum þar sem þeir höfðu aðlagast tilteknu veðurfari, fæðu og landslagi. Umhverfisþættir höfðu því mikið að segja um þróun, útlit og nytjar dýranna. Eftir 1900 var lögð áhersla á ræktun gripa sem gáfu meira af sér og minni áhersla lögð á stofna sem voru lagaðir að ákveðnum umhverfisaðstæðum. Hraði þessara breytinga var mikill á efnahagslega þróuðum svæðum um allan heim. Afleiðing þessa er sú að stofnar sem höfðu verið að breiðast út hægt og sígandi í 10.000 ár hafa dregist mikið saman á síðustu 100 árum. Og af þeim sökum er nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að vernda þá og erfðafjölbreytileikann innan þeirra. Þróun búfjárstofna Að sögn Sponenberg þróast stofnar á ólíkan hátt en grunnurinn þeirra byggist á erfðamengi dýranna sem stofninn sprettur úr. Það hversu einangraðir stofnar eru og hvaða dýr eru valin til áframeldis, umhverfisþættir og inngrip manna hafa þar einnig mikið að segja um þróun stofna. Flestir búfjárstofnar rekja uppruna sinn til staðbundinna hópa eða hjarða sem hafa verið lengi á sama stað án innblöndunar við aðrar hjarðir. Dæmi um þetta eru íslensku landnámshænurnar sem hafa verið einangraðar frá öðrum hænsnastofnum um margar aldir og teljast því sérstakt hænsnakyn. Einkenni staðbundinna stofna ráðast því að miklu leyti af einangrun þeirra og grunnerfðamengi stofnsins án utanaðkomandi innblöndunar. Einangrun ólíkra stofna getur verið vegna staðhátta og eru stofnar sem þróast á eyjum gott dæmi um slíkt. Einangrunin getur einnig verið menningartengd, til dæmis þegar eigendur búfjárins hefta blöndun þess við önnur kyn. Einangrun af þessu tagi er minni í dag en áður vegna aukins áhuga Fæddur í Texas Dr. Sponenberg fæddist í Texas árið 1953. Hann lauk dýralæknisprófi frá Texas A&M-háskólanum 1976 og doktorsprófi frá Cornell 1979. Í dag starfar hann sem prófessor við dýralæknaháskólann í Maryland í Virginíu-ríki þar sem hann kennir og rannsakar sjúkdóma- og erfðafræði, auk þess sem hann heldur fyrirlestra um erfðaauðlindir búfjár. Sponenberg er einn þekktasti litaerfðafræðingur búfjár í heiminum og starfaði meðal annars með dr. Stefáni Aðalsteinssyni að slíkum rannsóknum. Hann er ráðgjafi um verndun erfðaefnis hjá Livestock Conservancy í Bandaríkjunum og tekur þátt í verndarstarfi fyrir búfé víða um heim. Fyrir skömmu kom út eftir hann bók sem nefnist An Introduction to Heritace Breeds. Í tómstundum sínum sinnir hann geitfjárrækt og ræktun smáhesta. Þá bæði spinnur Sponenberg og prjónar af miklum áhuga og kann vel að meta náttúrulega ullarliti. Dr. Phillip Sponenberg ræðir erfðafjölbreytileika: Verndun erfðaauðlinda búfjár er nauðsynleg Jakobsfé er eina dýrið, að manninum undanskildum, sem vegna genamengis síns getur borið Tay-Sachs-sjúkdóminn og því mikilvægt þegar kemur að rannsóknum á sjúkdómnum. Mynd / TB

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.