Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014 Við festum kaup á jörðinni Stórhól árið 1999. Voru þá á bænum 120 fjár og 15 hross og var strax farið í að setja vel á til að fjölga fjárstofninum á bænum. Árið 2005 byggðum við fjárhús fyrir 330 fjár og höfum við því pláss fyrir u.þ.b. 700 fjár í dag. Í desember 2006 greinist hér riða og var því öllum stofninum fargað, þá orðinn um 550 fjár. Árið 2008 kaupum við svo nýjan stofn, sem er að mestu leyti ættaður úr Öræfunum, en 503 gimbrar voru keyptar það haustið, þar af um 430 úr Öræfunum. Býli: Stórhóll, Húnaþingi vestra. Staðsett í sveit: Víðidal. Ábúendur: Garðar Valur Gíslason, Maríanna Eva Ragnarsdóttir og börn þeirra; Ragnar Logi (2000), Kolbrún Hanna (2004), Valgerður Emma (2006). Fjölskyldustærð (og gæludýra): Fimm manna fjölskylda eins og áður er upptalið, auk þess búa Djákni, Olli, Týra og Bína, sem eru hundarnir á heimilinu, Tarsan, Bangsi og Lína sem eru kettirnir og svo tveir hamstrar sem dæturnar eiga. Ef húsmóðirin fengi meiru að ráða væri þessi listi mjög langur. Stærð jarðar? Tja … segjum +/- 600 hektarar. Gerð bús? Sauðfjárbú með smá hrossaívafi. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 630 fjár voru á fóðrum sl. vetur, líklega fjölgar lítillega núna þar sem að gera þarf ráð fyrir því að 2008-árgangurinn fari að detta út, 40 hross eru á bænum, nokkrar endur og dágóður slatti af hænum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Það er nú árstíðarskipt hvernig vinnudagurinn er, á veturna eru það þessar almennu gegningar, sauðburðurinn hertekur vorið og heyskapurinn sumarið. Haustin snúast mikið til um smalamennsku eins og við er að búast og Garðar hefur líka yfirleitt farið í sláturstörf hjá SAH Afurðum á Blönduósi. Maríanna vinnur núorðið mestmegnis utan heimilis nema þá á vorin, eftir að öll börnin komust á grunnskólaaldur. Eitthvað er svo reynt að þvælast á hestbaki, með misjöfnum árangri þó. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburðurinn er skemmtilegastur þótt hann sé vissulega oft erfiður. Einnig er alltaf skemmtilegt að fá féð heim á haustin, sjá árangur erfiðisins! Annars finnst Garðari klárlega leiðinlegast að hræra skít, enda gengur það upp og ofan. Maríönnu finnst leiðinlegast að skafa grindurnar eftir sauðburð og iðulega dregst þetta verk ansi mikið á langinn, síðustu krærnar hafast af á illskunni í lok sumars. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Góðan. Margir draumar í gangi en spurning hversu margir þeirra rætast á fimm árum! Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Eru þau ekki í þokkalegu standi? Mest er um vert að ungt fólk komist að og komi með nýjar og ferskar hugmyndir. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vonandi vel, ef við sitjum ekki föst í fortíðinni. Við verðum að fylgja markaðnum, finna upp á nýjungum – en ekki á kostnað gæðanna. Og svo bara muna að vera jákvæð og trúa á það sem við erum að gera! Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Helstu tækifærin felast í að vera með hreina og góða vöru, hvort sem það er lambakjöt, mjólkurvörur o.fl. Gott orðspor er gulls ígildi. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Egg og aftur egg, mjólk, smjörvi og svo ótal tegundir af sósum og sultum. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjötið stendur nú alltaf fyrir sínu en líklegast er það folaldakjötið sem hefur vinninginn. Steiktur folaldavöðvi með bernaise- sósu og dassi af nýkreistum sítrónusafa hittir alltaf beint í mark og er étið upp til agna af öllum fjölskyldumeðlimum. Skiljum ekki af hverju þetta dýrindis kjöt sem folaldakjöt er, er ekki gert hærra undir höfði! Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fjárbílarnir renndu í hlað með líflömbin okkar haustið 2008, okkur leið eins og börnum á aðfangadag! Líf og lyst BÆRINN OKKAR Lamb, lax og nautastrimlar Nú er sláturtíðin í hámarki og ferskt lambakjöt flæðir í verslanir. Ef til vill er síðasti séns að grilla kótilettur þó oft geti gert góða daga á haustin. Síðustu laxarnir eru líka að koma á land og þá er um að gera að slá upp laxaveislu. Fyrir þá sem kjósa nautakjötið í bland við ferskt íslenskt grænmeti fylgir suðræn uppskrift í kaupbæti. Lambakótilettur með bökuðum hvítlauk Hráefni: › 8 stk. stórar lambakótilettur › 1 stk. hvítlauksgeiri › 3 msk. Dijon sinnep › ólífuolía › salt og pipar › 100 ml sweet sojasósa › 1 grein garðablóðberg Aðferð Afhýðið hvítlauksgeira og skerið þunnt. Nuddið kjötið með garðablóðbergi. Steikið kótiletturnar á báðum hliðum og kryddið með salti og pipar. Það má líka steikja kjötið með hvítlauknum og garðablóðberginu en þá kemur gott bragð í fituna og kryddið og hvítlaukurinn karmelliserast. Setjið síðan inn í heitan ofn í 10 mín. eða lengur, eftir stærð sneiðanna, ásamt hvítlauksþynnunum. Ef að kjötið er grillað er upplagt að pensla með sætri sojasósu og hvítlauksolíu. Lax með humar Hráefni: › 600 g lax › 350–400 g skelflettir humarhalar › 1 laukur › 1–2 hvítlauksrif eftir smekk › 200 g smjör › Salt og pipar › 1 1/2 dl hvítvín › 300 g litlar soðnar kartöflur Aðferð Laukurinn er brytjaður frekar smátt og mýktur í smjöri á pönnu. Gætið vel að hitanum því laukurinn má ekki brúnast. Þegar hann er mátulegur er hann veiddur upp af pönnunni og settur til hliðar. Bætt við meira af smjöri á pönnuna. Steikið bæði laxinn og humarinn í smástund (eiga ekki að gegnumsteikjast). Saltað aðeins og piprað. Þá eru þeir teknir af pönnunni og geymdir. Hvítlaukurinn er saxaður smátt og settur á pönnuna. Hvítvíninu hellt yfir og látið sjóða upp að mestu við vægan hita. Framreiðið með ristuðum kartöflum og grófu brauði. Nautastrimlar með maíssalsa Hráefni: › 400 g gæða nautakjöt › 4 stk. stjörnuanís › 1 msk. svört piparkorn › 1⁄2 msk. salt › 2 msk. sesamolía › 1 búnt vorlaukar › 2 stk. rautt chili › 1 stk. lime, safinn › 300 g grænmeti eins og blómkál og fennel Aðferð Malið pipar og stjörnuanís vel. Steikið á grilli eða vel heitri pönnu á öllum hliðum í um 4 mín. á hverri hlið án þess að kjötið brenni. Athugið að kjarnhiti á ekki að fara yfir 50°C þar sem kjötið á ekki að vera mikið steikt. Raðið klettasalati á stórt kjötfat. Sneiðið nautakjötið í um 5 mm þunnar sneiðar og leggið þær á fat með grænmetinu, og berið fram með salsanu og maískökum. Maíssalsasósa: › 1 dós maískorn › 1/2 laukur › 1 tómatur › 1/2 rauð paprika › 1/2 mangó vel þroskað › 1/2 tsk hvítlauksmauk › 1 msk kóríander ferskt › 1/2 safi úr 1/2 lime › 3 msk ólífuolía › salt og pipar Aðferð Allt hráefnið skorið í svipaða stærð og blandað vel saman. Þessa fersku og einföldu salsasósu má alveg leika sér með. Ef maður á ekki eitthvað eitt hráefni þá er bara að nota hugmyndaflugið, frábær með hvaða mat sem er. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Stórhóll

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.