Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 25.09.2014, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014 Ábúendur á Flúðum í Fljótsdalshéraði rækta rófur á hálfum hektara lands: Stefnir í mjög góða uppskeru eftir gott sumar „Við erum rétt aðeins að byrja að taka upp og uppskeran lofar góðu. Mér sýnist að hún muni vera álíka mikil og í fyrrahaust, en þá fengum við mjög góða uppskeru,“ segir Friðjón Þórarinsson, bóndi á Flúðum á Fljótsdalshéraði, en bærinn er skammt norðan Egilsstaða. Þar stunda Friðjón og Anna Bragadóttir rófnarækt á hálfum ha lands. Þá eru þau með um 230 vetrarfóðraðar kindur, stunda skógrækt á 40 ha, leigja út sumarhús og stunda að auki vinnu utan heimilis. Safna liði úr röðum vina og vandamanna við upptökuna Anna og Friðjón stefna að því að hefja upptökustörfin fyrir alvöru um næstu mánaðamót. Þau fá til liðs við sig góðan hóp vina og ættingja og leggjast allir á eitt við rófuupptökuna. „Þetta er fjölskylduvænt verkefni, hingað koma vinir og vandamenn og aðstoða okkur,“ segir Anna. Hún segir að þau reyni að draga upptöku eins lengi og hægt er fram á haustið svo rófurnar geymist betur. Engar vélar eru notaðar við upptöku, allt tekið upp með höndunum „og það gengur mjög vel þegar margir taka þátt“. Rófurækt hefur verið stunduð á Flúðum um árabil og segir Friðjón að landið henti vel til slíkrar ræktunar. Hins vegar gangi erfiðlega að rækta þar kartöflur þar sem iðulega myndast frostpollur neðan bæjarins. „Við höfum prófað að rækta kartöflur hérna, það gengur ekki, en við erum með lítils háttar kartöflurækt á Setbergi,“ segir hann. Góð uppskera í fyrra og stefnir í annað eins nú Friðjón segir fáa bændur á Austurlandi stunda rófnarækt og enginn með mikla ræktun. „Það kom sér vel hversu mikil uppskera varð í fyrrasumar, því lítil rófuuppskera var í öðrum landshlutum vegna vætutíðar.“ Alls fengu þau Anna og Friðjón um 9 tonn af rófum upp úr garði sínum í fyrrahaust sem er með mesta móti. Þau eru rétt að byrja upptöku á þessu hausti og segja uppskeru lofa mjög góðu, hún verði síst lakari en metárið í fyrra. „Rófurnar eru stærri í ár, svo að líkindum gætu tonnin orðið fleiri en í fyrra,“ segir hann. Uppskeran er að mestu seld á heimamarkaði, í verslanir á Egilsstöðum og þá er mötuneyti álvers Alcoa á Reyðarfirði stór kaupandi. Eins hefur fólk mætt heim á hlað og keypt rófur í poka. Æ fleiri prófa kornrækt Friðjón, í félagi við þrjá bændur aðra, var með kornrækt á 8 ha lands á jörðinni Setbergi og á Helgafelli. Búið er að þreskja og var uppskera mjög góð. Áður hefur Friðjón í litlum mæli stundað kornrækt, en hann segir bændur á Austurlandi vera að færa sig upp á skaftið og æ fleiri prófi nú að rækta korn á jörðum sínum. „Þetta er að aukast núna hin síðari ár, en var svo til óþekkt hér áður fyrr,“ segir hann. Einstaklega gott veður Rófurnar eru í stærri kantinum þetta árið, enda var veður einstaklega gott fyrir austan alveg frá því í vor og langt fram á haust. Myndir / MÞÞ Friðjón og Anna Bragadóttir, kona hans, stunda rófnarækt á hálfum hektara lands á jörð sinni, Flúðum, uppskerustörf eru rétt að byrja og lofar uppskera góðu. Uppskera í fyrrahaust nam um 9 tonnum og stefnir í að hún verði ekki síðri nú í haust.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.