Bændablaðið - 25.09.2014, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. september 2014
Ábúendur á Flúðum í Fljótsdalshéraði rækta rófur á hálfum hektara lands:
Stefnir í mjög góða uppskeru eftir gott sumar
„Við erum rétt aðeins að byrja
að taka upp og uppskeran lofar
góðu. Mér sýnist að hún muni vera
álíka mikil og í fyrrahaust, en þá
fengum við mjög góða uppskeru,“
segir Friðjón Þórarinsson, bóndi
á Flúðum á Fljótsdalshéraði,
en bærinn er skammt norðan
Egilsstaða.
Þar stunda Friðjón og Anna
Bragadóttir rófnarækt á hálfum
ha lands. Þá eru þau með um 230
vetrarfóðraðar kindur, stunda
skógrækt á 40 ha, leigja út sumarhús
og stunda að auki vinnu utan heimilis.
Safna liði úr röðum vina og
vandamanna við upptökuna
Anna og Friðjón stefna að því að
hefja upptökustörfin fyrir alvöru um
næstu mánaðamót. Þau fá til liðs við
sig góðan hóp vina og ættingja og
leggjast allir á eitt við rófuupptökuna.
„Þetta er fjölskylduvænt verkefni,
hingað koma vinir og vandamenn
og aðstoða okkur,“ segir Anna. Hún
segir að þau reyni að draga upptöku
eins lengi og hægt er fram á haustið
svo rófurnar geymist betur. Engar
vélar eru notaðar við upptöku, allt
tekið upp með höndunum „og það
gengur mjög vel þegar margir taka
þátt“.
Rófurækt hefur verið stunduð á
Flúðum um árabil og segir Friðjón að
landið henti vel til slíkrar ræktunar.
Hins vegar gangi erfiðlega að
rækta þar kartöflur þar sem iðulega
myndast frostpollur neðan bæjarins.
„Við höfum prófað að rækta kartöflur
hérna, það gengur ekki, en við erum
með lítils háttar kartöflurækt á
Setbergi,“ segir hann.
Góð uppskera í fyrra og stefnir í
annað eins nú
Friðjón segir fáa bændur á
Austurlandi stunda rófnarækt og
enginn með mikla ræktun. „Það kom
sér vel hversu mikil uppskera varð
í fyrrasumar, því lítil rófuuppskera
var í öðrum landshlutum vegna
vætutíðar.“ Alls fengu þau Anna
og Friðjón um 9 tonn af rófum upp
úr garði sínum í fyrrahaust sem er
með mesta móti. Þau eru rétt að
byrja upptöku á þessu hausti og
segja uppskeru lofa mjög góðu, hún
verði síst lakari en metárið í fyrra.
„Rófurnar eru stærri í ár, svo að
líkindum gætu tonnin orðið fleiri en
í fyrra,“ segir hann.
Uppskeran er að mestu seld
á heimamarkaði, í verslanir á
Egilsstöðum og þá er mötuneyti
álvers Alcoa á Reyðarfirði stór
kaupandi. Eins hefur fólk mætt heim
á hlað og keypt rófur í poka.
Æ fleiri prófa kornrækt
Friðjón, í félagi við þrjá bændur
aðra, var með kornrækt á 8 ha lands
á jörðinni Setbergi og á Helgafelli.
Búið er að þreskja og var uppskera
mjög góð. Áður hefur Friðjón í litlum
mæli stundað kornrækt, en hann segir
bændur á Austurlandi vera að færa
sig upp á skaftið og æ fleiri prófi
nú að rækta korn á jörðum sínum.
„Þetta er að aukast núna hin síðari ár,
en var svo til óþekkt hér áður fyrr,“
segir hann. Einstaklega gott veður
Rófurnar eru í stærri kantinum þetta árið, enda var veður einstaklega gott
fyrir austan alveg frá því í vor og langt fram á haust. Myndir / MÞÞ
Friðjón og Anna Bragadóttir, kona hans, stunda rófnarækt á hálfum hektara lands á jörð sinni, Flúðum, uppskerustörf
eru rétt að byrja og lofar uppskera góðu. Uppskera í fyrrahaust nam um 9 tonnum og stefnir í að hún verði ekki
síðri nú í haust.