Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 6
HEIMURINN ÚANDAR GAL Sjö ljón ur-Afríkuhafa verið flutt frá Suð anda Akagera-þar sem þeim verður sleppt í veir þj NatóTm. ðgarðar í KwaZulu- a Rú nd enda agáfu mönnum dýrin, þar. Síðasta ljónið þá e, itruðu nautgrip gera en enginn ha þj K A G mD ð hveu hluti aþjóða00ir um 2.fyr 2 oru revið Kína. Seinna v arang-keisinkum í tíð Mi teinar, lei o múrinn verður Beijing Times um séu horfin, angur manna BANDARÍKIN WASHINGTON ölT atvinnuleysi í Bandarík birtar á fimmtudag og það vera 5 3% minna hagfræðing minnsta at hefur síðan 23 störf bættu kvarta und lítið. Meða um 2,3% á gert er ráð í góðum gí NU ar voru á föstudag í GKan y maratkvæðagreiðslunni u fjárhagsaðstoð lá kja á sunnudag . Könnun sem gerð var á vegumm aukið aðhald sem henni fylgjarðin u oomberg- ei en 42,5% já. Alexis Tsipras forsætar sýndi að 43% hygðust segja nstofunn sráðherra hefur rihluti“ samþykki tilboð lánardromuni segja af sér ef „mikill meit að hann a, en Tsipras ð se ðu Grikkja í samningaviðræsögn hans mun það styrkja stöa nerá i. Að nardrottna. „Bæði hafa konur breytt eðli- legum mökum í óeðlileg og eins hafa karlar hætt eðlileg- um mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn hafa framið skömm með karlmönnum.“ Viðhorfið í Rómverjabréfinu 1:26, 27 til samkynhneigðar fer varla milli mála. Gamla testamentið er ekki mildara. Í 3. Mósebók 18:22 segir: „Þú mátt ekki liggja með karl- manni eins og legið er með konu, það er viðurstyggð.“ Í hirðingjasamfélag- inu var brýnt að kynmök hefðu það markmið eitt að fjölga mannfólkinu. Meirihluti sambandsríkjanna50 í Bandaríkjunum hefurnú heimilað samkyn- hneigðu fólki að ganga í hjónaband og hefur hæstiréttur í Washington nú staðfest þann rétt þess. Þróunin hefur verið hröð vestanhafs og í Evrópu; æ fleiri þjóðir líta á það sem klárt óréttlæti að skerða rétt- indi samkynhneigðra í þessum efn- um sem öðrum. Ungt fólk á erfitt með að skilja hvernig hægt sé að verja mismunun sem byggist ein- göngu á ólíkri kynhneigð. Samkyn- hneigð er fyrirbæri sem þekkst hef- ur í öllum menningarsamfélögum og er einnig vel þekkt í dýraríkinu. En hvað á kristið fólk að gera, er ekki ljóst að í Biblíunni er lagt bann við kynmökum tveggja einstaklinga af sama kyni? Vandinn er að lítið er minnst á þessi mál í ritinu og eins og ávallt í svo gömlum ritum er oft hægt að deila um túlkun, en ummælin virð- ast samt öll afar neikvæð. Samkyn- hneigð er sögð vera synd, ekki ein af dauðasyndunum sjö en samt synd. Kristur segir þó ekkert sjálf- ur um samkynhneigð. Bent hefur líka verið á að ef menn ákveði að haga sér ávallt í samræmi við þrönga bókstafstúlkun Biblíunnar myndi margt breytast. Kollsteypur yrðu óhjákvæmilegar. Í boðorðunum 10, nánar tiltekið öðru boðorðinu, eru skýr fyrirmæli um að ekki skuli gera líkneski eða myndir af lifandi verum. Sem hlýtur þá að merkja að eyða beri öllum listaverkum af því tagi í kirkjum – munum sem kristnar kirkjur hafa státað af í nær 2.000 ár. Víða stendur fólki að sjálfsögðu til boða að ganga í hjónaband hjá sýslumanni en hefðir og trúarsetn- ingar flækja málið þegar fólk vill fá blessun kirkjunnar. Sumir talsmenn samkynhneigðra vilja nú reka flótt- ann, nota tækifærið og hefna fyrir allt það misrétti og hatur sem þeir hafa sem hópur orðið að sætta sig við í hljóði gegnum aldirnar. Þeir ganga jafnvel svo langt að heimta að enginn prestur megi skírskota til sannfæringar sinnar og neita að vígja samkynhneigð pör. Fordæmir verknaðinn Margir yfirlýstir hommar og lesbíur eru í röðum krist- inna, kaþólska kirkjan hef- ur lengi sagt að hún for- dæmi aðeins samkynhneigð sem slíka, sjálfan verkn- aðinn en ekki synd- arana sjálfa. En óvíst er að sá munur skipti miklu fyrir samkynhneigða í daglegu lífi. Nið- urstaðan hefur verið að þeir hafa ekki verið velkomnir í kirkjunni nema þeir iðrist og forðist mök við fólk af eigin kyni. En Frans páfi vakti mikla athygli skömmu eftir embættistökuna þegar hann gaf í skyn að sjálfur gæti hann hugsað sér að slaka á fordæming- unni. „Hver er ég að setjast í dóm- arasætið?“ sagði hann. Í könnunum fer þeim hlutfallslega fækkandi í Bandaríkjunum sem segjast vera kristnir, mörg kristin gildi eru á undanhaldi og kirkjusókn minnkar. Dálkahöfundurinn og hægrimaðurinn David Brooks hjá New York Times er gyðingur en mjög áhugasamur um kristin gildi. Hann segir í grein í liðinni viku að kristnir Bandaríkjamenn skiptist nú í tvo hópa varðandi hjónabönd sam- kynhneigðra. Stærri hópurinn vilji halda áfram áratuga menningarlegu stríði sem frjálsræðisbyltingin í kynferðismálum hafi hrundið af stað. Hinn vilji draga sig í hlé en halda loga trúarinnar við þótt um- heimurinn fari nú í bili að trúa aftur á stokka og steina en ekki Guð. Brooks bendir á að þessi menn- ingarbarátta hafi gert stóra hluta þriggja kynslóða fráhverfa allri trú. En kristni sé fleira en slagur um kynferðismál. Fórnfúst fólk vinni undir merki krossins að marg- víslegu uppbyggingarstarfi í fá- tækrahverfum þar sem upplausn ríki, andleg og veraldleg fátækt herji, fjölskyldan sé brotin og marga þyrsti eftir einhverri merk- ingu með lífinu. Brooks segir að deilan um kyn- ferðismál verði ekki leyst á næst- unni. „Raunhæfari barátta snýst um að lagfæra samfélag sem hefur sundrast í öreindir, er harkalegt og ómannúðlegt. Fólk með íhaldssöm þjóðfélagsviðhorf hefur alla burði til að lagfæra þennan samfélagsvef og vera boðberar kærleika, virðingar, innlifunar, samneytis við aðra og náðar.“ Sumir mega bæði elska og sofa hjá LJÓST ER AÐ BARÁTTAN GEGN HJÓNABÖNDUM SAMKYN- HNEIGÐRA ER TÖPUÐ Í VESTRÆNUM LÖNDUM. MARGIR KRISTNIR MENN VELTA ÞVÍ FYRIR SÉR HVORT MINNKA BERI OFURÁHERSLUNA Á BOÐ OG BÖNN Í KYNFERÐISMÁLUM. „BRUNNIÐ Í LOSTA“ Stuðningsmenn hjónabanda samkynhneigðra veifa fánum og spjöldum skammt frá húsakynnum hæstaréttar Bandaríkj- anna í Washington. Hann hefur nú úrskurðað að slík hjónabönd sé lögleg og þau skuli virða um landið allt. * Ég styð ekki hjónabönd samkynhneigðra þótt ég séíhaldsmaður. Ég styð hjónabönd samkynhneigðra vegna þess að ég er íhaldsmaður. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Alþjóðamál KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.