Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 17
5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Það er ekki nýr sannleikur að skyndibitafæða sé oftar en ekki óholl. Nú benda hins vegar rannsóknir til þess að skyndibitinn geti einnig farið illa með eðlilega örveruflóru í þörmum en þær örverur eru hjálplegar og því oft er slæmt ef flóran breytist. Skyndibiti og örveruflóra*Hugsaðu vel um líkamaþinn. Hann er eini stað-urinn sem þú hefur til að búa á. Jim Rohn Góð tónlist gerir góðan hlaupatúr betri. Það getur hins vegar verið þrálátur hausverkur að hafa sífellt nýja og spennandi tónlist á taktein- um, sér í lagi fyrir þá sem hlaupa mikið og oft. Þarna geta ýmsar tón- listarveitur komið til hjálpar en flest- ar þeirra bjóða upp á lagalista sem eru sérsniðnir að hlaupum og ann- arri íþróttaiðkun. Nýjasta nýtt í þessum bransa er svo Spotify Running frá tónlistarveit- unni Spotify en það fyrirbæri býður upp á tónlist sem er í sama takti og þeim sem hlustandinn hleypur í. Fyrir þá sem vilja hins vegar setja saman sína eigin tónlist eru hér þrettán lög, gömul, ný og glæný, sem öll henta vel til sprikls: – I Don’t Like it, I Love it með Flo Rida, Robin Thicke og Verdin White – Bad Blood með Taylor Swift og Kendrick Lamar – Bills með Lunchmoney Lewis – Really Don’t Care með Demi Lovato – Ai No Corrida með Quincy Jones – Heartbeat Song með Kelly Clarkson – September með Earth, Wind & Fire – Classic með MKTO – Stuð stuð stuð með Ðe lónlí blú bojs – Best Day of My Life með American Authors – Honey, I’m Good með Andy Grammer – Shut Up and Dance með Walk the Moon – Stjúpi með Brimkló Spriklað í fjörugum takti Þessir eldhressu hlauparar hlupu í Reykjavíkurmaraþoni síðasta árs og aldrei að vita nema þeir hafi nýtt sér skemmtilega tónlist við hlaupaæfingar. Morgunblaðið/Eggert Í nýlegri könnun sem gerð var í Bandaríkjunum voru heilsufars- ráðgjafar og næringarfræðingar spurðir hvað væri hollast að borða í morgunmat. Þeir tóku sig til og útbjuggu lista með átta fæðuteg- undum sem gott væri að setja á morgunverðardiskinn:1) Egg, því að borði maður próteinríkan mat að morgni er ólíklegra að maður stelist í millimál 2) Svart kaffi hefur góð áhrif á hjartað 3) Banani, því hann er kalíumríkur 4) Greipaldin sökum þess hvað það er c- vítamínríkt 5) Ber, alls konar ynd- isleg ber, því að þau eru rík af an- doxunarefnum, c-vítamínum og trefjum 6) Grískt jógúrt því það inniheldur svo mikið kalk og sama seðjandi prótein og egg 7) Te, því að það er bólgueyðandi og styrkir ónæmiskerfið. Grænt, svart og hvítt te er sömuleiðis þekkt fyrir að draga úr líkum á krabbameini og sykursýki 8) Hafragrautur hefur þá virkni að maður er saddur lengur. Einnig getur hann lækkað kólester- ólstig, svo fremi sem maður borð- ar ekki bragðbættar tegundir sem eru yfirfullar af sykri. Þá er bara að vera hugmyndaríkur og finna leið til þess að sameina allar þessar matar- tegundir í mismunandi útfærslum fyrir alla daga vikunnar. Hafragrautur hefur um árabil verið vinsæll morgunverður. Morgunmatur meistarans Sumarmánuðir eru erfiður tími fyrir marga þeirra sem gætt hafa að mataræði sínu og hreyfingu yfir veturinn. Enginn vill láta góð- an árangur fara út um þúfur en að sama skapi er erfitt að neita sér um einhvern dagamun þegar maður er í sumarfríi og sól- in skín. Sérstaklega heillar ísinn marga. Ekki er þó ástæða til að örvænta, því að lítill vandi er að finna eitthvað kalt og gómsætt að gæða sér á. -Í stað rjómaíss má velja fituminni ísteg- undir. Þær má oft þekkja á nöfnum á borð við „jógúrtís“ eða „sorbet“. -Frosin vínber eru lygilega góð. Ófor- skammaðir sælkerar geta jafnvel dýft þeim í brætt súkkulaði, þótt það minnki vitaskuld hollustuna. -Ýmsa ávexti má nota til að búa til heima- gerðan ís. Melónur eru sérstaklega sumar- legar. Melónan er þá skorin í bita og sett í blandara. Gott getur verið að blanda myntu eða hunangsslettu með. Blandan er síðan sett í form og fryst en hrært í henni á klukkutíma fresti þar til áferðin er orðin falleg. Best er að borða þennan ís fljótlega eftir að hann er til- búinn. -Þeim sem finnst frosna ávaxtamaukið að ofan heldur fátæklegt sem „ís“ geta blandað hreinni jógúrt út í maukið. Það er best að gera eftir að maukið hefur fengið að hvíla í frysti í eina klukkustund. Skemmtilegast er að hræra maukinu og jógúrtinni ekki alveg saman heldur bara hálfpartinn og frysta svo aftur. -Bláber eru góð en þau eru enn betri frosin og með jógúrthjúpi! Auðveldast er að nota tannstöngul til að dýfa hverju beri ofan í gríska jógúrt og leggja þau á smjörpappírslagða bökunarplötu. Platan er svo geymd í frysti þar til berin eru frosin í gegn en eftir það má flytja þau í box eða plastpoka og geyma í frysti. -Gera má bragðgóða frostpinna úr banönum. Ef bananinn er stór má skera hann í tvennt, annars má nota hann heilan. Íspinnapriki eða grillpinna er stungið inn í bananann, hann þakinn hunangi á alla kanta og loks velt upp úr granóla, áður en hann er lagður á plötu eða disk og stungið í frysti. -Frostpinna má líka gera úr góðum, þykkum ávaxtasafa sem hellt er í þar til gert frostpinnamót. -Ævintýragjarnir heilsukokkar sem náð hafa tvítugu geta prófað sig áfram með vínfrostpinna. Ýmsar að- ferðir geta gengið við verkið en einna einfaldast er að mauka ávexti í blandara og píska síðan saman við rauðvín. Gott er að velja sæta ávexti frekar en súra og gæta þess að ávextirnir sem verða fyrir valinu passi með víninu. Blöndunni er síðan hellt ofan í frostpinnamót og sett í frysti. Andoxunarbomba! -Grísk jógúrt er góð frosin. Skemmtileg tilbreyting er að blanda út í hana dálitlu hunangi eftir smekk og berjum eða niðurskornum ávöxtum. Breitt er úr blöndunni í botninn á álpappírslögðu formi þannig að lag- ið verði einungis um 1 cm á þykkt. Formið er síðan sett í frysti í a.m.k. 4 klukkustundir og jógúrtplatan þá skorin eða brotin í bita. Munið að geyma afgangsbita í frysti! ÍSKÖLD OG SUMARLEG SÆTINDI Frosin bláber með jógúrthjúpi Bláber eru bragðgóð fersk en jafnvel enn betri frosin og með grískri jógúrt. Sársauki minnkar strax • Kaldur gelsvampur & gel • Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C • Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af • Tea Tree & Lavender - sótthreinsar, róar & deyfir • Sterílar umbúðir Virkar á sviða og sársauka af: sólbruna - skordýrabiti brenninettlum - húðflúrum laser og núningsbruna Fæst í apótekum. Celsus ehf. www.celsus.is AbsorBurn® Kælir brunasár, hratt og lengi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.