Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 22
Heimili
og hönnun *Segja má að enn eitt „æðið“ hafi gripið um sig vest-anhafs – dagbækur eða svokallaðar „life planner“-bækur. Einn vinsælasti framleiðandi slíkra bóka erErin Condren en hún býður m.a. upp á að notendurhanni sjálfir forsíður á bækur sínar. Nýlega bættust„metallic“-dagbækur við línu fyrirtækisins og á þærer t.d. hægt að prenta nafn eigandans. Nánari upp-
lýsingar er að finna á erincondren.com.
Ný lína Erin Condren-dagbóka
H
jónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og
Tryggvi Þorsteinsson eru búsett
í Santa Monica í Los Angeles og
reka þar saman sína eigin arki-
tektastofu, Minarc, en bæði eru þau arki-
tektar að mennt.
„Ég flutti út árið 1990 en Erla kom að-
eins seinna, 1997,“ segir Tryggvi og bætir
því við að þau hafi einmitt kynnst úti í Los
Angeles. Árið 1999 voru þau síðan komin
með sjálfstæða stofu. „Við búum úti og eig-
um þrjár dætur, níu, tólf og tuttugu ára
gamlar,“ segir Erla. „Þær eyða hins vegar
öllum stundum sem þær geta heima á Ís-
landi. Okkur finnst við ekki mega taka það
af stelpunum að læra íslenskuna.“
Byggingartækni vandaðri hér
Þrátt fyrir að búa erlendis eru hjónin miklir
Íslendingar í sér og voru stödd hérlendis
þegar blaðamaður náði af þeim tali. „Við er-
um svo heppin að vera stödd á Vestfjörðum
í dag, hér er heiðskírt og sumarveður. Við
komum hingað til lands og njótum þess að
vera á Íslandi og að vera Íslendingar,“ segir
Tryggvi. „Auðvitað er samt notalegt að búa
í Los Angeles, ekki síst veðurlega séð. Og
svo eru tækifærin þar náttúrlega mun
stærri en hér heima. Ég myndi samt ekki
orða það þannig að við viljum frekar vera
úti en á Íslandi. Við fengum einfaldlega
tækifæri og maður grípur auðvitað þau
tækifæri sem koma til manns,“ bætir
Tryggvi við.
Þótt gríðarlegur stærðarmunur sé á Los
Angeles og Reykjavík segja hjónin það
fjarri lagi að allt sé betra úti í hinum stóra
heimi. „Við veittum því t.d. athygli strax eft-
ir að við komum út að húsin þar eru ekki
jafn vel byggð og heima. Íslendingar eru
vanir því að gera ráð fyrir veðri, vindum og
jarðskjálftum við byggingu húsa. Það er eig-
inlega alltaf sól í Los Angeles, svo að bygg-
ingartæknin þar er ekki alveg jafnvönduð,“
segir Tryggvi. Hann segir þó ýmislegt vera
að breytast hratt í Bandaríkjunum. „Hugs-
unarhátturinn er að breytast og t.d. er sjálf-
bærni (e. sustainability) mikið að ryðja sér
ÍSLENSKIR ARKITEKTAR HANNA ÚTI Í BANDARÍKJUNUM
Ísland brýst út
í arkitektúrnum
HJÓNIN OG ARKITEKTARNIR ERLA DÖGG INGJALDSDÓTTIR OG TRYGGVI
ÞORSTEINSSON BÚA OG STARFA Í LOS ANGELES, ÞAR SEM ÞAU REKA EIGIN STOFU.
ÞAU LEGGJA ÁHERSLU Á SJÁLFBÆRNI OG UMHVERFISSJÓNARMIÐ Í HÖNNUN SINNI.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Hjónin sóttu innblástur í magnaða
náttúru við litaval í þessu eldhúsi. Stóll-
inn er eftir þau líka og heitir HIDEnSit.
Erla Dögg og Tryggvi sækja innblástur til Íslands og njóta útiverunnar.
Stiga á milli hæða
einstaklega fallega
fyrir komið.
Gott dæmi um nútímalegan arkitektúr sem fellur vel að landslaginu. Hjónin teikna falleg einingahús sem setja svip sinn á götumyndina.