Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2015, Blaðsíða 35
5.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 É g vissi svo sem að hús- bílaferð okkar vinkvenn- anna um síðustu helgi yrði efni í heila bók en ég gerði mér ekki grein fyrir að svona þriggja daga ferðalag myndi hækka hamingjustuðulinn um 57%. Að vera í þrjá sólarhringa með vinkonum sínum, kryfja mál- efni líðandi stundar, borða hress- andi mat, þurrbursta á sér húðina og hleypa ævintýradólgnum út er ávísun á gleðivímu. Fyrir nokkrum árum fékk ég símtal frá annarri vinkonu minni sem vildi ólm kaupa húsbíl með mér og þáverandi eiginmanni mínum. Þau hjónin höfðu fundið húsbíl í litlu sjávarplássi og fannst upplagt að við myndum fjárfesta í þessari drossíu með þeim. Þegar þetta símtal kom hélt ég að yrði ekki eldri og afþakkaði snyrtilega án þess að hljóma hrokafull og leiðinleg (sem ég er náttúrlega ekki). Einhvern veginn sá ég ekki fyrir mér hvað svona sparigugga ætti að gera við húsbíl – hver þarf húsbíl þegar hægt er að sofa á sveitahóteli? Þess vegna er fyndið að upp- götva það núna (á gamalsaldri) að húsbíll sameinar í raun þrjú stærstu áhugamálin sem eru ein- mitt ferðalög, heimili og bílar. Við vorum varla komnar upp fyrir Ártúnsbrekkuna þegar vin- kona mín, sem sat í farþegasæt- inu, var farin að óska eftir veit- ingum. Hún spurði mig í sífellu hvort það væri til eitthvert SNAKK og ég byrjaði auðvitað á því að bjóða henni heimagert tóm- atasalat með ferskum mossarella osti, ferskri basilíku, kaldpress- aðri ólífuolíu og sjávarsalti að vestan. Það var ekki nógu gott fyrir hana og þá bauð ég henni dökkt súkkulaði með piparmyntu en hún vildi það ekki heldur. Þeg- ar ég bauð henni banana spurði hún: „Hvað við orðið SNAKK skilur þú ekki, Marta María Jón- asdóttir? Ég er að tala um djúp- steiktan viðbjóð í álpoka,“ sagði hún og var orðin pínu andsetin. Eftir töluverða leit fannst SNAKK sem hæfði farþegasæt- isguggunni. Fyrir þessa húsbílaferð áttaði ég mig bara ekki á því að SNAKK þýddi bara eitthvað eitt. Í mínum huga er SNAKK ekki bara djúp- steiktir kartöfluhringir sem hægt er að raða á puttana á sér heldur nettur millibiti með góðri nær- ingu. Ég hélt að svona fínar spari- guggur gættu þess vel að setja ekkert inn fyrir sínar varir sem ekki gæti verið gott fyrir must- erið – mér fórst! Þegar við spariguggurnar renndum inn á fyrsta tjaldstæði ferðarinnar upplifðum við tölu- verða fordóma af hálfu karlpen- ingsins. Karlarnir á stóru jepp- unum með hjólhýsin sín (og stóra bjórinn) snéru sig næstum því úr hálslið þegar spariguggurnar trítluðu út úr húsbílnum og voru búnar að koma upp tjaldborg með skjólveggjum, veifum og öllum helstu þægindum á innan við korteri. Þegar spariguggurnar voru að leggja lokahönd á verkið þurfu nokkrir menn að labba framhjá til þess að geta sagt þessa fleygu setningu: „Vel gert, stelpur.“ Rétt eins og við hefðu fengið helgarfrí af stofnuninni sem við værum vistaðar á og gæt- um ekki gert neitt nema hafa til- sjónarmann meðferðis. Í ferðinni vorum við með nóg af leiktækjum meðferðis og náðum bæði að þeytast um höfin blá á sæköttum og fara upp á Snæfells- jökul á vélsleðum, svona eins og konur gera þegar þær fara í frí. Lærdómur helgarinnar er mik- ilvægur og vill spariguggan ítreka það fyrir öðrum spariguggum að setja ekki á sig húðdropa og dag- krem áður en farið er út að leika á sæketti. Það er nefnilega pínu vandræðalegt að þurfa að gera hlé á meðan leikar standa sem hæst til þess eins að þurrka húð- dropana úr augunum … martamaria@mbl.is Þóra Sigurðardóttir, MM og Kolbrún Pálína Helgadóttir fyrir utan húsbílinn. Ekki setja á þig húðdropa áður en þú ferð út að leika. Þessar voru vel búnar í ferðalaginu. STOPP – ég er með húðdropa í augunum! KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 26 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Láttu okkur létta undir fyrir næstu veislu Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 Serviettu- og dúkaleiga Gardínuhreinsun Dúkaþvottur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.