Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Side 120

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2002, Side 120
Gunnlaugur A. Jónsson áhrif, notkun eða túlkun. Þar með er hugtakið „trúarleg kvikmynd“ óneitan- lega víkkað verulega. Ég leggst ekki gegn þessari skilgreiningu en vil geta þess að áhugi minn sem biblíufræðings hefúr verið meiri á kvikmyndum þar sem beinlínis er unnt að sýna fram á að um meðvitaða notkun eða túlkun biblíulegra steija hafi verið að ræða hjá kvikmyndaframleiðandanum, m.ö.o. einhvers konar áhrif hinna biblíulega texta á kvikmyndirnar. En ég verð líka í því sambandi að kannast við að oft hef ég komist að þeirri niðurstöðu að frekar sé um ómeðvituð áhrif eða notkun að ræða, framleiðandinn sé svo mótaður af biblíulegum áhrifum í vestrænni menningu að hann hreinlega geri sér ekki grein fyrir því að hann er að vinna með biblíulegt efni eða er undir áhrifum frá því. Árni Svanur Daníelsson sendi mér einnig sjónarmið sín um hvernig beri að skilgreina trúarlegar kvikmyndir. Hann segir: „Ég hef alltaf litið svo á að við værum að rannsaka trúar- og siðferðisstef í kvikmyndum og hefðum að vopni og nálgun það sem liggur undir í hefðbundinni skiptingu guðfræðinn- ar í fræðigreinar, þ.e. að styrkur okkar fælist að vissu leyti í því að við höf- um ólíkan bakgrunn í fræðigreinum guðfræðinnar og skoðum því kvikmynd- irnar sem viðfangsefni út frá ólíkum sjónarhornum, leitum að ólíkum stefj- um og beitum ólíkum aðferðum o.s.frv. En getum þó ætíð verið sammála um að við séum að vinna að hliðstæðum rannsóknum, rétt eins og trúfræðingur- inn og gamlatestamentisfræðingurinn eru sammála um að þeir séu báðir að vinna að guðfræðilegum rannsóknum.“ Undir þetta get ég í stórum dráttum tekið. Ef tekið er dæmi af grein Árna Svans í bókinni þar sem hann fjallar um kvikmyndina CastAway þá minnist ég þess að einhver sem heyrði að sú mynd væri meðal þess sem við værum að ijalla um spurði hvort við værum ekki farin að teygja okkur ansi langt ef við héldum því fram að sú mynd væri trúarleg eða byggði á biblíulegum grunni. Nú segir Árni Svanur það raunar hvergi í grein sinni að svo sé. Þess í stað talar hann um ákveðinn skyldleika milli Cast Away og hugmynda þýska guðfræðingsins og siðbótarmannsins Marteins Lúthers um frelsun mannsins.9 Annars staðar notar hann hugtakið „hliðstæður.“10 Sjálfúr er ég sannfærður um að aðstandendur myndarinnar hafa alls ekki verið með þessar hliðstæður í huga, enda heldur Árni Svanur því hvergi fram. En það kemur ekki í veg fyrir að hann sjái trúarlega vídd í myndinni, sbr. lokaorð hans: „...í þessari kvikmynd finnum við skýra framsetningu á 9 Árni Svanur Daníelsson 2001, „Brottkast manns: Lögmál og fagnaðarerindi og kvikmyndin Cast Away.“ í: Guð á hvíta tjaldinu, s. 114. 10 Sama rit, s. 117. 118
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.