Jökull


Jökull - 01.12.1992, Side 13

Jökull - 01.12.1992, Side 13
Þá fundust tíðir jarðskjálftar í Mývatnssveit og vestur í Bárðardal. Jón Sigurðsson á Gautlöndum ritar í Norð- anfara 3. mars 1875. „Smá kippir hafa fundist við og við, en engir hafa þeir verið stórfelldir. Að kveldi hins 18. þ. m. sást frá Grímsstöðum á Fjöllum eldur mik- ill í vestri. Eptir því sem frjetzt hefur hingað sýndist eldurinn koma fyrst upp á fleiri stöðum og renna síðan saman í eitt mikið bál, sem sýndist taka yfir svo mikið svæði, að nema mundi fleiri tiinlengdunf'. Þessi lýsing af byrjun gossins er dæmigerð fyrir slík gos. Gosið byrjar á mörgum sprungubútum sem síðan teygja sig í báðar áttir, til norðurs og suðurs, og ná oft saman þannig að gossprungan myndar einn samhangandi vegg af kvikustrókum. Gossprungan í Kröflugosum náði mest 9 km lengd, í byrjun gossins í september 1984 (Páll Einarsson, 1991b). Kröflugos- m náðu hámarki á fyrstu klukkustundunum en síðan dró úr þeim jafnt og þétt, virknin dróst saman í nokk- ur gosop, sem hlóðu upp eldborgir á gossprungunni. Sveinagjárgosin virðast hafa verið ólík Kröflugosum að því leyti að þau hlupu meira til á gossprungunni í stað þess að dragast saman í nokkra gíga. Friðrik Guðmundsson (1932) lýsir febrúargosinu 1875 þannig: „Stundum logaði í öðrum endanum á gjánni, og alt í einu datt eldurinn niður, en þá heyrðust sogandi org og hrynjandi dynkir og óhljóð, sem fylltu geiminn, en aðeins í eina eða tvær mínútur, og þá kom eldurinn upp í hinum enda gjárinnar, þó 20 mílur á að gizka væru á milli endanna". Þótt þessi lýsing geti verið ýkt þá sýnir hún að samband var á milli mis- munandi aðfærsluæða. Slíkt þekkist úr Kröflugosum en þar byrjaði landris svo að segja um leið og gos hætti, sem bendir til beins vökvasambands þama á milli. Þeir sem fylgdust með Kröflugosunum þekkja líka þessi sogandi orghljóð sem heyrast þegar gosrás tæmist snögglega af kviku og gasið streymir óhindrað. segj a má að gígamir orgi og hvæsi í dauðateygjunum. Febrúargosið stóð í nokkra daga, því var lokið 25. feb. Þann dag fóru nokkrir Mývetningar á gosstöðv- arnar. Jón Sigurðsson á Gautlöndumvar einn þeirra og skrifaði hann eftirfarandi bréf daginn eftir ferðina, sem birtist í Norðanfara 3. mars. „Það er ætlan mín að eld- gangi þessum sje nú lokið á þessum stað, en eigi þykir mjer ólíklegt, að eldurinn kunni að brjótast út aptur á öðrum stað hjer í grend, áður langir tímar líða“. Jón reyndist sannspár því enn átti mikið eftir að ganga á í Sveinagjá áður en árið var úti. Næsta gos braust út 10. mars. Segja má að svo til stöðug gosvirkni hafi verið á ýmsum stöðum í Sveinagjá næsta mánuðinn. Hinn 10. mars gaus í norðanverðri Sveinagjá, skammt norðangosstöðvannafráþvíífebrúar. Dagana 18.-19. mars gaus syðst í Sveinagjá og 23. mars braust út gos rétt við þáverandi þjóðveg austur. Báðum þessum gos- um fylgdu skjálftar sem voru það stórir að fólk vaknaði í Mývatnssveit, í um 35 km fjarlægð. Lýsing Friðriks Guðmundssonar hér að ofan á því hvemig gosvirknin hljóp eftir sprungusveimnum getur hæglega átt við of- angreind eldgos. Gosin stigmögnuðust í mars, en 23. mars sáust 40 eldar uppi samtímis. Enn hófst gos sunnantil í Sveinagjá 4. apríl sem stóð í a.m.k. fjóra daga, nálægt gosstöðvunum frá 18. mars. Ný gossprunga opnaðist 10. apríl, á svipuð- um slóðum og gosin 18. febrúar og 10. mars, nyrst í Sveinagjá. Gosinu var lokið næsta dag. Um þessi gos ritaði Jón Sigurðsson í Norðanfara 17. apríl; „það er ekki orðin nein ljett sök að lýsa greinilega þeim ósköp- um, sem hjer áganga, því eins er og eldurinn sje alltaf að magnast. Núna þessa dagana hefur hann verið svo mikill, að hálfljóst er í húsunum um há nótt og dynkir og dunur með mesta móti. Þó eldurinn liggi niðri dag og dag í senn, er hann jafnskjótt kominn uppi aptur, hingað og þangað á þessari línu, sem hann virðist halda við og sem er orðin á 3. mílu á lengd. í Dyngjufjöll hefur enginn komið síðan þeir 5 sem fóru hjeðan úr sveit á þorranum, en þar eru efalaust mikil umbrot í náttúrunni, því að uppí heilan mánuð hefur rokið þar fjarskalega og í fleiri stöðum ýmist austar eða vestar". Aftur gaus nyrst í Sveinagjá 20.-24. apríl, og 19. maí sást eldrauður reykjarstólpi „upp á hálopt" úr Dyngjufjöllum. Þá hafa Sveinagjárgosin legið niðri um hríð og eru menn farnir að vona að „eldurinn sje hættur til fulls“. Ekki var nú svo; enn gaus í norðan- verðri Sveinagjá, 2. júlí (Fjallagjá), 15. ágúst og 17. október. Einnig var talað um eldgos í byrjun og lok 1876. Dagblaðið Isafold birti grein um eldgosin, í 14. tbl„ 26. júlí. Þar lýsti „Mývetningur" gosunum. „Eldgosin byrja, eptir því sem þau hafa nú komið oss fyrir sjónir, stundum með aðdraganda, en stund- um í snöggri svipan. Jarðeldurinn er ekki logi, heldur bráðið glóandi grjót, sem spýtist með undraafli beint í JÖKULL, No. 42, 1992 11
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.